Fréttablaðið - 05.11.2010, Blaðsíða 52
5. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR28
timamot@frettabladid.is
67 ÞORGERÐUR INGÓLFSDÓTTIR kórstjóri er 67 ára„Söngferðalögin eru sérstök og ólík öðrum ferðalögum að því leyti að þú ert
ekki einungis búinn að safna fyrir þeim veraldlega heldur einnig andlega.“
Tískusýning íslenskra hönnuða, Bolly-
wood-sýning, ráðleggingar stílista,
upplestur og happdrætti. Allt verður
þetta til skemmtunar á fyrsta gala-
kvöldverði kvenfélagsins Silfurs,
sem haldinn verður í fundarsal Hall-
veigar staða annað kvöld. Elsa María
Jakobsdóttir verður kynnir kvöldsins
og Unnur Arngrímsdóttir leggur gest-
um lífsreglur í sambandi við fram-
komu. Aðgangur kostar 6.500 krón-
ur og innifalið í því verði er matur
og drykkur. Afraksturinn rennur til
Neistans, styrktarfélags hjartveikra
barna. „Þetta er góðgerðarkvöldverð-
ur þar sem allir borga sig inn og við
leggjum mikinn metnað í að hann
heppnist sem best,“ segir Ingibjörg
Rafnar, ein fjögurra stúlkna í stjórn
kvenfélagsins Silfurs. Hún upplýsir
að nokkrir miðar séu enn eftir á gala-
kvöldverðinn sem er fyrsti viðburð-
urinn á vegum félagsins að hennar
sögn.
„Við erum í raun að hefja starfsemi
Silfurs,“ segir Ingibjörg og lýsir til-
drögum að félagsstofnuninni nánar.
„Við vorum nokkrar stelpur sem hitt-
umst um jólaleytið 2008. Okkur lang-
aði allar að láta gott af okkur leiða og
þá einkum að efla tengslanet kvenna
og styðja við málefni sem snúa að
konum og börnum. Byrjuðum á að
viðra hugmyndirnar við vinkonur
okkar og úr varð kvenfélagið Silfur
með 30 virkum félagskonum úr öllum
áttum sem vonandi á eftir að fjölga.
Starfið verður blanda af skemmtun
og fjáröflun til góðra mála og stefn-
an er sú að styrkja eitt til tvö málefni
hverju sinni.“
En af hverju að stofna nýtt kven-
félag í stað þess að ganga til liðs við
eitthvert þeirra sem fyrir eru? „Við
berum mikla virðingu fyrir öðrum
kvenfélögum og þeim konum sem
hafa rutt brautina. En í Silfri höfum
við áhuga á að móta starfsemina eftir
okkar höfði. Hver sem er getur kynnt
sér hana á fésbókinni og mætt á næsta
fund,“ segir Ingibjörg. Í þessum mán-
uði segir hún fyrirhugaða umræðu um
stjórnlagaþingið en næsti fundur þar
á eftir gæti snúist um haustliti í förð-
un og tísku. „Það veltur allt á félags-
mönnum um hvað fundirnir fjalla. Við
höfum allar eitthvað fram að færa og
þátttakan er lýðræðisleg,“ tekur hún
fram. Kvenfélagið Silfur gekk nýlega í
Bandalag kvenna í Reykjavík og er því
einn af hlekkjunum í Kvenfélagasam-
bandi Íslands, þar sem Ingibjörg segir
þeim Silfurskonum hafa verið sérlega
vel tekið. „Það er afl í ungum konum og
þegar þær koma margar saman eykst
slagkrafturinn. Við höfum hug á að
nýta hann til góðs.“ gun@frettabladid.is
HIÐ NÝJA KVENFÉLAG SILFUR: HELDUR FYRSTA GALAKVÖLDVERÐ SINN
Viljum láta gott af okkur leiða
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við fráfall ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og bróður,
Rúnars I. Sigfússonar
verkfræðings, Freyjugötu 35, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 11B,
deildar 11E og líknardeildar Landspítalans fyrir góða
umönnun.
Björg Østrup Hauksdóttir
Einar Þorbjörn Rúnarsson Eva Arnarsdóttir
Marta Margrét Rúnarsdóttir Daníel Pálmason
Sigrún Birna Rúnarsdóttir Helena Katrín Einarsdóttir
Baldur F. Sigfússon og fjölskylda
Sigmundur Sigfússon og fjölskylda
Elskuleg móðir okkar, fósturmóðir,
tengdamóðir og amma,
Þuríður Valgerður
Björnsdóttir
Hjallaseli 55,
andaðist mánudaginn 1. nóvember. Útförin fer fram
þriðjudaginn 9. nóvember kl. 15.00 frá Fossvogskirkju.
Alda H. Grímólfsdóttir Valdimar Guðlaugsson
Andrés H. Grímólfsson
Guðrún Grímólfsdóttir Jón Steinar Snorrason
Eiríkur Steinþórsson
Hjördís Björg Andrésdóttir Sverrir Ö. Hermannsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma
Guðborg Siggeirsdóttir
Kirkjulundi 8 (áður Álfhólsvegi 28a),
verður jarðsungin frá Vídalínskirkju mánudaginn
8. nóvember kl. 13.00.
Rannver Stefán Sveinsson
Sigurjón Sveinn Rannversson Fjóla Finnsdóttir
Guðrún Magnea Rannversdóttir Snorri Snorrason
Katla Björk Rannversdóttir Kristján Albert Eiríksson
Birna Mjöll Rannversdóttir Arnfinnur Daníelsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur, bróðir og mágur,
Gísli Hauksson
Hólmvaði 2, Reykjavík,
lést föstudaginn 29. október. Útför hans fer fram frá
Breiðholtskirkju mánudaginn 8. nóvember kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hans er bent á styrktarreikning
Krýsuvíkur samtakanna. 0313-26-004896 Kt: 610486-
1699.
Karen S. Kristjánsdóttir
Unnur Gísladóttir Einar Ómarsson
Anna Kristín Gísladóttir
Unnur Gísladóttir Haukur Berg Bergvinsson
Halldór Hauksson Sumarlína Pétursdóttir
Bergrós Hauksdóttir
Kristjana Berg Hauksdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þórunn Hekla Árnadóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn
1. nóvember. Útförin fer fram frá Áskirkju
föstudaginn 12. nóvember kl. 13.00.
Geir Guðmundsson
Margrét Geirsdóttir Gestur Jónsson
Árni Jón Geirsson Sigríður Þ. Valtýsdóttir
Guðrún Geirsdóttir Jón Friðrik Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir minn, sonur okkar,
bróðir og mágur,
Jón Sigurgeir
Sigurþórsson
véltæknifræðingur til heimilis að
Álftamýri 8, Reykjavík,
lést á Líknardeild Landspítalans 30 okt. sl. Útför hans
fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 9. nóv-
ember kl. 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Krabbameinsfélag Íslands.
Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna,
Sigurþór Jónsson
Sigurþór Jónsson Sigurborg V. Jónsdóttir
Garðar Sigurþórsson
Sigrún Sigurþórsdóttir Reynir Guðmundsson
Sigurþór Sigurþórsson
Hjartkær eiginmaður minn,
Tryggvi Georgsson
múrarameistari,
Hamragerði 13, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt 2. nóvember.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn
12. nóvember kl. 13.30.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Bergljót Pálsdóttir.
Innilegar þakkir færum við öllum
þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug
í veikindum og andláti okkar ástkæra
bróður og frænda,
Jónasar M. Bjarnasonar
Skeiðarvogi 1.
Bjarni S. Bjarnason
Páll Ragnar Haraldsson
Jóhann Óskar Haraldsson Anna Guðmundsdóttir
Lilja Hafdís Guðjónsdóttir Pálmi Hamilton Lord
Auður Sigurðardóttir Þorgrímur Guðmundsson
og fjölskyldur okkar
MOSAIK
STJÓRN SILFURS Jóhanna Ella Jónsdóttir, Inga Birna Kjartansdóttir, Katrín Stefánsdóttir og
Ingibjörg Rafnar Pétursdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA