Fréttablaðið - 05.11.2010, Blaðsíða 34
6 föstudagur 5. nóvember
Harpa Þórunn Pétursdóttir.
Aldur? 29 ára.
Starf? Lögfræðingur hjá Orkustofnun.
Lýstu þínum persónulega stíl? Ég held að ég geti ekki til-
einkað mér einhvern einn stíl. Ég breyti um fatastíl frá degi til
dags og jafnvel oftar en einu sinni hvern dag. Þá fer ég allt frá
rómantískum silkikjólum við lága hæla, yfir í rokkarabuxur og
alvöru hæla, allt eftir því hvernig skapi ég er í.
Myndir þú kaupa þér þessa flík sjálf? Já, ég er jafnvel að
hugsa um að gera það.
Af hvaða tilefni myndir þú klæðast þessari flík? Ég
myndi annaðhvort nota hana í vinnuna, þar sem ég þarf
að vera fín og gæti girt hana ofan í hátt pils eða við upp-
brettar khaki-buxur með belti. Hverdagslega myndi ég
nota hana svona eins og ég er á myndinni en ef ég væri
að fara eitthvað fínt myndi ég fara í súkkulaðibrúnar
leðurbuxur, meira og stærra glingur um hálsinn og
flotta hæla.
Hvernig gekk að blanda flíkinni saman við
þinn persónulega stíl og af hverju varð
þessi samsetning fyrir valinu? Það gekk fínt
að blanda henni inn í minn fataskáp þar sem ég
hef verið að bæta svolítið í brúnu tónana hjá
mér fyrir veturinn. Þegar fer að líða á haust-
ið klippi ég gjarnan á mig þungan topp, bæti
vetrarlitunum í fataskápinn og stóru þungu
peysunum. Ég myndi síðan skella mér í brún-
an tweed-jakka yfir með leðurbótum á oln-
bogunum.
Svala Lind Þorvaldsdóttir
Aldur? 21 árs.
Starf? Afgreiðsludama í Rokki & Rósum.
Lýstu þínum persónulega stíl? Stílinn minn er breyti-
legur og fer yfirleitt eftir því í hvernig skapi ég er í hverju
sinni. Ég á það til að blanda saman „vintage“ og nýju og
hef mikið dálæti á yfirhöfnum og skóm.
Myndir þú kaupa þessa flík sjálf? Mér finnst skyrtan
þægileg og flott. Ég gæti vel hugsað mér að kaupa hana
enda alltaf hægt að bæta við sig hvítum skyrtum.
Við hvaða tilefni myndir þú klæðast þessari flík? Mér
finnst bæði hægt að nota skyrtuna hversdags við gallabuxur
og blazer-jakka eða dressa sig upp með leðurbuxum og
flottum pels.
Hvernig gekk að blanda flíkinni saman við þinn per-
sónulega stíl og af hverju varð þessi samsetning fyrir
valinu? Það gekk vel að blanda flíkinni við minn persónu-
lega stíl þar sem mér finnst hvítar skyrtur mjög klassískar. Ég
valdi leðurbuxurnar og loðvestið við skyrtuna, því það er gaman
að blanda grófum og fínum efnum saman.
Hvítar skyrtur eru fyrir löngu orðnar klassískar
og tímalausar líkt og „litli, svarti kjóllinn“. Þær
passa við nánast allt og fara seint úr tísku og
eru því góð fjárfesting fyrir hagsýna tískuunn-
endur. Hvíta skyrtan fæst í mörgum ólíkum
stílum, hneppt, heil, með kraga eða síð og
flaksandi, og hana mátti meðal annars sjá
á tískupöllunum hjá Balenciaga, Celine og
Michael Kors.
1 FLÍK
3 konur
Elín Hrund
Þorgeirsdóttir
Aldur? 37 ára.
Starf? Hönnunar-
nemi.
Lýstu þínum per-
sónulega stíl?
Hmm, ætli hann sé
ekki einhvers konar
blanda af smá rokki
og svo einhverju
skrýtnu og skemmti-
legu sem oftast er
allt of dýrt. Klæði
mig líka mikið eftir
veðri og vindum vegna
þess að ég er ofur-
kuldaskræfa.
Myndir þú kaupa þér
þessa flík sjálf? Nei, lík-
lega ekki.
Við hvaða tilefni myndir
þú klæðast þessari flík?
Ég myndi ekki klæðast þess-
ari flík.
Hvernig gekk að blanda
flíkinni saman við þinn per-
sónulega stíl og af hverju
varð þessi samsetning fyrir
valinu? Það gekk svo sem
þokkalega því ég er að öðru
leyti mikið fyrir skyrtur. Þessi
samsetning lá beinast við.
Ómissandi í vetur
Angelica er íslensk náttúruafurð úr ætihvönn. Angelica gefur þér aukna
orku og þú færð sjaldnar kvef.
Sæktu styrk í íslenskt náttúruafl!
www.sagamedica.is
Þegar þú kaupir glas eða box af Angelicu
færðu annað eins á hálfvirði.
Tilboðið gildir 4.-8. nóvember 2010.
Kynning á vörum SagaMedica í Kringlunni 5. nóv. kl. 12-17.
Helgartilboð Heilsuhússins
Heilsuhúsið Laugavegi, Kringlunni, Smáratorgi, Lágmúla, Selfossi, Akureyri og Reykjanesbæ.