Fréttablaðið - 05.11.2010, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 05.11.2010, Blaðsíða 8
 5. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR til félaga í SVFR! ÁSKORUN Á morgun, laugardaginn 6. nóvember, opnar ný verslun á Strandgötu 11 í Hafnarfirði sem sérhæfir sig í vörum frá Tíbet og Nepal. Verslunin selur meðal annars Buddhastyttur, talnabönd, skartgripi, reykelsi, poncho og margt fleira á andlega sviðinu. Við bjóðum ykkur velkomin og að sjálfsögðu er alltaf heitt á tekatlinum. Verslunin er opin virka daga frá kl. 11-18 og laugardaga frá kl. 11-14. Strandgata 11, Hafnarfjörður l Sími 512 3777 l www.kailash.is ® SAMGÖNGUR Enn gæti verið langt í að fyrirtækið ECA fái nauðsynleg leyfi til að hefja flugtengda starf- semi á Keflavíkurflugvelli, þrátt fyrir að þegar hafi fimm starfs- menn verið ráðnir til fyrirtækisins og fyrsta þotan í flota fyrirtækisins sé væntanleg í byrjun desember. Í áliti sem Flugmálastjórn (FMS) vann fyrir samgönguráðuneytið kemur fram að verkefnið sé talið flókið og reynsla af slíku sé ekki til staðar hér á landi. Þess háttar þekkingar væri hægt að afla „ef fjármunir og vilji er fyrir hendi“, en tímaramminn í því tilliti er að sögn FMS mældur í árum en ekki mánuðum. Vélar ECA yrðu á ábyrgð íslenskra yfirvalda við notkun erlendis, en FMS veltir upp þeirri hugmynd að jafnvel væri hægt að skrá þær erlendis, án þess að það myndi hafa í för með sér minni umsvif hér á landi. Þar segir að „nær jafn mörg störf ættu að skap- ast við starfsemina hér á landi“. Þar segir einnig að undirbúning- ur þessa verkefnis myndi hlaupa á tugum milljóna og FMS geti ekki lagt út í slíkt án fjárveitingar. Í greinargerð á vef samgöngu- ráðuneytisins segir að ráðherra muni á næstu dögum gera ríkis- stjórn grein fyrir málinu og niður- stöðu sinni. - þj Flugmálastjórn telur flugtengdan rekstur ECA á Keflavíkurflugvelli flókinn: Enn virðist langt í land fyrir ECA LANGT Í LENDINGU Flugmálastjórn telur að það verði flókið að leiða málefni ECA til lykta. NORDICPHOTOS/AFP UPPLÝSINGATÆKNI Vodafone fær aðgang að ljósleiðara NATO sem er í umsjá og að hluta í eigu Mílu, samkvæmt nýrri ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunarinnar (PFS). Tengingu á helstu staði á að vera lokið fyrir 15. desember, að því er fram kemur í ákvörðuninni. Eftir útboð samdi Vodafone í byrj- un þessa árs við Varnarmálastofn- un um leigu á ljósleiðara í kapli NATO. Míla á fimm ljósleiðara- strengi í kaplinum, en þrír eru á forræði utanríkisráðuneytisins. Í ákvörðuninni er hafnað rökum Mílu (sem á og rekur fjarskipta- net Símans) um að kröfugerð Vodafone um aðgang hefði átt að beina til utanríkisráðuneytisins og um að Varnarmálastofnun, sem leigði Vodafone einn ljósleiðara í kapli NATO, hefði ekki heimild til fjarskiptastarfsemi. PFS vísar til þess að samkvæmt ákvörðun stofnunarinnar frá árinu 2007 og með vísan til fjar- skiptalaga hvíli sú kvöð á Mílu að veita aðgang að kaplinum. „Míla ehf. skal hafa forræði á því hvern- ig uppsetningu verður háttað og leggja til nauðsynlegar teikning- ar ef þurfa þykir. Fyrirtækið skal hafa hliðsjón af þeirri lýsingu sem fram kemur í erindi Og fjar- skipta,“ segir jafnframt í ákvörð- uninni. Um leið er áréttað að Míla megi rukka Vodafone um kostnað vegna breytinga sem ráðist verði í til að veita aðganginn. „Við fögnum að sjálfsögðu niðurstöðunni, enda er óheftur aðgangur að ljósleiðaranum, sem við greið- um fyrir sam- kvæmt samn- ingi við hið opinbera, for- senda þess að samkeppni skapist í gagna- flutningum um landið,“ segir Hrann- ar Pétursson, upplýsingafull- trúi Vodafone. „Fyrirtæki hafa þurft að kaupa gagnasambönd Mílu, sem hefur verðlagt þjón- ustuna í samræmi við stöðu sína á markaðnum,“ segir hann og boðar aukna þjónustu þar sem samkeppni hafi verið takmörkuð þar til nú. PFS hafnaði kröfu um að Míla yrði beitt dagsektum vegna drátt- ar tengingar Vodafone við kapal- inn. „Eins og málavöxtum er hátt- að verður að telja að sá dráttur sem orðið hefur á málinu sé ekki eingöngu af völdum Mílu, held- ur sé hann að hluta til á ábyrgð Varnarmálastofnunar sem gagn- aðila fyrirtækisins, meðal annars með því að draga að tilkynna um fjarskiptastarfsemi sína og ganga frá óleystum atriðum varðandi eignarhaldið á strengnum,“ segir í ákvörðuninni. Ekki náðist í Evu Magnúsdóttur, forstöðumann sölu hjá Mílu. Fyrirtækið getur innan fjögurra vikna skotið ákvörðun PFS til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. olikr@frettabladid.is HRANNAR PÉTURSSON Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI Með aflagningu Varnarmálastofnunar færast verkefni hennar til í stjórnkerfinu. Stofnunin samdi í byrjun þessa árs um að veita Vodafone aðgang að ljósleiðurum í ljósleiðarakapli NATO sem hringtengir landið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Mílu gert að veita Voda- fone aðgang PFS hefur gert Mílu að veita Vodafone aðgang að ljósleiðara NATO. Kröfu Vodafone um dagsektir var hafnað. Frestur er gefinn til 15. desember. LÖGREGLUMÁL Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á höfuðborg- arsvæðinu um kvöldmatarleytið í fyrrakvöld með þeim afleiðing- um að bíllinn rann upp á gang- stétt og hafnaði þar á sextán ára unglingspilti. Pilturinn var fluttur á slysa- deild. Hann reyndist óbrotinn og ekki alvarlega slasaður. Talið er að hálka hafi valdið þessu óhappi, sem varð við Austurberg á móts við Norður- fell, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. - jss Hálka í Breiðholti olli óhappi: Bíll hafnaði á unglingspilti DÓMSMÁL Kona á þrítugsaldri hefur verið dæmd í ellefu mán- aða fangelsi fyrir að stela bíl í Reykjavík. Honum ók hún um höfuðborgarsvæðið og síðan áleiðis til Eyrarbakka. Hún hafði áður verið svipt ökuréttindum. Fyrir dómi játaði konan brot sín. Hún gerði jafnframt grein fyrir aðstæðum sínum og við- leitni til að vera án fíkniefna. Með broti sínu nú raufkonan skilorð 10 mánaða skilorðsdóms frá 2008. - jss Kona dæmd í héraðsdómi: Ellefu mánuðir fyrir bílstuld
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.