Fréttablaðið - 05.11.2010, Blaðsíða 42
14 föstudagur 5. nóvember
ÁSGEIR KOLBEINSSON, 35 ÁRA
Umsjónarmaður sjónvarpsþáttarins Sjáðu á Stöð
tvö, einn af eigendum skemmtistaðarins Austurs og
sálfræðinemi í Háskóla Íslands
Ásgeir býr í flottri piparsveinaíbúð á Laugaveginum, eða í Stjörnuport-
inu þar sem Stjörnubíó var áður fyrr. Þar hefur hann búið í þrjú ár og
kann vel við sig á þessum stað í miðbænum, segir hann vera í hæfi-
legri fjarlægð frá skarkala skemmtanalífsins. Hann hefur búið í mörgum
hverfum í borginni um árin og því ekkert eitt sem á hug hans allan.
Áður en hann flutti í miðbæinn bjó hann í Vesturbænum í Reykjavík og
var einnig mjög ánægður á þeim slóðum.
TOPP
10
FARTÖLVA „Apple Macbook
Pro. Þegar maður eignast einn
hlut frá Apple þá líður ekki á
löngu þar til þú færð þér eitt-
hvað meira. Þessi fartölva er
sú skemmtilegasta sem ég hef
átt hingað til og nota ég hana
mikið í leik og starfi.“
BORÐTÖLVA „Apple iMac borðtölva. Þessi tölva er í miklu uppáhaldi, enda er
þetta ekki bara gríðarlega öflug vél heldur líka mikið augnayndi.“
SÍMINN „IPhone 4. Ég er forfallinn
iPhone-eigandi og er búinn að eiga alla
þá síma sem komið hafa frá Apple. Gríð-
arlega öflugt tæki sem er í raun eins og
lítil tölva, og því nota ég hann mikið.
LIST „Málverkið er eftir frábæra listakonu sem heitir Gerður Sigurðardóttir. Æðisleg
mynd og í réttu ljósi er hreinlega eins og sólsetrið lifni við í myndinni.“
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
TÓNLISTIN „Stórkostleg græja frá
GENEVA. Hátalari með alveg mögn-
uðum hljómi, geislaspilari, útvarp og
iPod-spilari, allt í einu og sama box-
inu. Þetta leysti mikið græjuvandamál
á mínu heimili.“
MÁLVERK „Þessi mynd eða klessa, er eftir stór-
vin minn Loga Bergmann. Hann gaf mér þessa
mynd í afmælisgjöf fyrir fjórum árum og ég trúi því
að þetta eigi eftir að verða verðmætasta eign mín
í komandi framtíð.“
KAFFIVÉLIN „Ég drakk ekki kaffi fyrr
en ég fékk að smakka það úr góðri
kaffivél. Þess vegna varð ég auðvitað
að eignast eina. Ég drekk samt voða
lítið kaffi, enda er kaffi ekki alveg
hollasti drykurinn sem völ er á.“
GRILL „Ég er mikill grillari og á því að
sjálfsögðu stórt og mikið gasgrill. Ég
elska að grilla og ekki bara á sumrin.
Grillið er í skjóli svo það er alveg verið
að setja jafn mikið af steikum á það í
janúar og í júlí.“
FJÖLSKYLDUMYNDIR „Myndir af mér og syni mínum Ívani Degi sem voru teknar
hjá Gassa fyrir fjórum árum. Það þarf kannski ekki að koma mikið á óvart að þessi
myndarammi sé í miklu uppáhaldi hjá mér.“
BLANDARI „Það er nauðsynlegt að
eiga góðan blandara. Ég geri mikið af
boozt-drykkjum, með ávöxtum, skyri
og söfum og því er þetta nauðsynleg
græja.“
Borgardekk