Fréttablaðið - 05.11.2010, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 05.11.2010, Blaðsíða 32
4 föstudagur 5. nóvember Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni. Netfangið er kynlif@frettabladid.is Á RÚMSTOKKNUM Sigga Dögg kynfræðingur N ý kynslóð leikara og söngvara er komin fram á sjónarsviðið og er að taka við kyndlinum af Johnny Depp og Brad Pitt sem heitustu menn heims. Þessi nýja kynslóð karlmanna virðist annars vegar skiptast í harðjaxla á borð við Jason Statham og Tom Hardy og „metró“ menn með bresku hefðarívafi hins vegar líkt og Theo Hutchcraft, söngvara bresku hljómsveitarinnar Hurts. Vel snyrtir karlmenn þykja með þeim heitustu í dag: Vel snyrtir herra- menn slá í gegn Heillandi Stjarna Ryans Gosling hefur risið hratt undanfarin ár og þykir hann bæði efnilegur leikari og sér- staklega laglegur. Harðjaxl Margar konur hafa fallið fyrir hrárri karlmennsku breska hasarleikarans Jasons Statham. Karlmennskan uppmáluð Breski leikarinn Tom Hardy þykir sérstak- lega myndarlegur og ekki skemma ótvíræðir leikhæfileikar fyrir heldur. Hann þykir karlmennskan uppmál- uð, vöðvastæltur og svolítið eins og óslípaður demantur. Sænskur sjarmur Sænski leikarinn Alexander Skarsgard sló í gegn sem vampíran Eric í sjónvarpsþáttunum True Blood. Hann er gott dæmi um hinn vel hirta sjentilmann, ávallt vel greiddur og vel klæddur. NORDICPHOTOS/GETTY Breskur herramaður Theo Hutchcraft, söngvari hljómsveit- arinnar Hurts, þykir afskaplega myndarlegur og heillar stúlkurn- ar upp úr skónum með vel greitt hárið og dáleiðandi brún augu. NORDICPHOTOS/GETTY Þessir komust líka á listann Fótboltakappinn Diego Forlán vakti mikla lukku meðal kvenkynsáhorfenda heimsmeist- aramótsins í fótbolta í sumar. Það er engin furða enda er maðurinn íþróttamannslega vaxinn og með dásamlega falleg blá augu. Bandaríski leikarinn James Franco komst einnig hátt á lista yfir myndarlegustu menn- ina í dag. Suðrænn og seiðandi. Flottur fýr Jon Hamm sló í gegn í sjónvarpsþáttunum Mad Men. Lýs- ingin hávaxinn, dökkur og myndarlegur passar fullkomlega við herra Hamm. Virker fr a dag 1 Fjerner træthed Giver ny energi Kender du fornemmelsen af at være træt på de forkerte tidspunkter? Så skal du prøve Ènaxin, der hver dag hjælper tusindvis af mennesker til at slippe af med trætheden og få ny energi. Ènaxin er et helt specielt naturpræparat, hvor virkningen kommer fra flere urter på en gang. Det giver en mere kraftfuld effekt, som du mærker allerede fra dag 1 - en rigtig god grund til at prøve Ènaxin. Ènaxin fås hos Matas, på apoteket, i helsekostforretninger og på www.mezina.dk. TR ÆT I UTIDE?ER TU SÍÞREYTT(UR)? Þekkir þú tilfinninguna að vera þreytt(ur) á óheppilegum augnablikum? ÉNAXIN hjálpar þúsundum manna hvern dag að losna við þreytu, leiða og orkuleysi. ÉNAXIN er náttúrulegt efni unnið úr öflugum og heilnæmum jurtakjörnum sem gefur þér orku og kraft strax. Mjög áhrifarík mixtúra eða töflur sem virka frá fyrsta degi – prófaðu ÉNAXIN strax í dag. Þú færð ÉNAXIN í heilsubúðum, apótekum og heilsuhillunum í Fjarðarkaup og Hagkaup. ORKA BEINT FRÁ NÁTTÚRUNNI Virkar fr á fyrsta degi Losar þ ig við þr ytu ÉNAXIN er ein vinsælasta heilsuvaran á Norðurlöndunum og nú fáanleg á Íslandi. Af mömmustrákum og samlífi ? Hæ Sigga Dögg. Ég er tiltölulega nýbyrjuð að hitta strák, við erum bæði tví-tug og búum bæði enn þá heima hjá foreldrum okkar. Ég gisti oftar heima hjá honum og hef tekið eftir að mamma hans sér um allt fyrir hann. Mér finnst það ótrúlega hallærislegt og er hrædd um að þetta verði kannski svona líka ef við ætlum einhvern tímann að flytja saman. Svar: Ég skil áhyggjur þínar og þær eru réttmætar en kannski óþarfar. Það er eitt að búa heima hjá foreldrum sínum, annað að búa einn í íbúð og svo enn annað að fara í sambúð. Skítaþröskuldur fólks er misjafn. Sumum finnst mikilvægt að búa um rúmið, þrífa baðherbergið og vaska upp, en öðrum ekki. Það sem þú því stendur frammi fyrir með kærastanum þínum er spurning um skítaþröskuld og hvort ykkar þröskuldur sé sambærileg- ur. Ef honum finnst óþarfi að búa um rúmið en þér finnst það mjög mikil- vægt þá er ekki ósennilegt að það gæti lent á þér að búa um það. Það sem er mikilvægast í þessu er að tala saman og komast að sameiginlegri niður- stöðu og skipuleggja verklag eftir því. Þetta gæti krafist þó nokkurra mála- miðlana en það er líka grundvöllur sambands. Gangi þér vel! ? Sæl Sigga Dögg. Ég var að eignast mitt fyrsta barn fyrir 9 vikum. Ég er sú fyrsta í vinahópnum sem eignast barn og þess vegna veit ég ekki alveg hvert ég á að leita í sambandi við spurningar sem vakna varðandi kynlíf eftir barnsburð. Ég rifnaði svolítið í fæðingunni og er enn að gróa, sambýlismaður minn er þó orð- inn nokkuð óþolinmóður, enda langt um liðið síðan við sváfum síðast saman. Ég er samt enn þá að jafna mig bæði eftir fæðinguna og er ekkert alltof hress með vöxt- inn og er þess vegna ekki jafn óþolinmóð og hann. Hvenær er eðlilegt að fólk byrji aftur að stunda kynlíf og er eitthvað sem þarf að passa upp á? Svar: Innilega til hamingju! Í rannsókn frá 2004 greindu 80% nýbakaðra mæðra frá kynlífsvandkvæðum þremur mánuðum eftir fæðingu barns, og hjá 66% þeirra kvenna voru vandkvæði enn til staðar þremur mánuðum seinna. Algengasta vandamálið var lítil kynlífslöngun sem stafaði af lík- amlegum og sálfélagslegum atriðum. Líkt og þú nefnir, þá tekur það tíma að jafna sig líkamlega eftir fæðinguna. Það sem þú ert að upplifa er því alls ekkert óeðlilegt eða óalgengt. Bati eftir fæðingu og andleg líðan er ein- staklingsbundin og því verður hver að finna fyrir sig hvenær rétti tíminn er. Sum pör segjast byrja að stunda kynlíf nokkrum vikum eftir fæðingu á meðan önnur bíða í allt að ár. Mig langar hins vegar að benda þér á að kynlíf er meira en samfarir og því má gera ýmislegt annað sem gæti full- nægt ykkur báðum. Mikilvægast er að ykkur líði báðum vel því meirihluti kynlífs fer fram í heilanum og því skiptir höfuðmáli að vera tilbúinn. Ef þú ert hikandi varðandi einhver líkamleg atriði þá finnst mér sjálfsagt að þú minnist á það við lækninn þinn og í framhaldinu getur þú spurt hvort hann telji að þú þurfi að varast eitthvað þegar kemur að samförum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.