Fréttablaðið - 05.11.2010, Blaðsíða 40
12 föstudagur 5. nóvember
tíðin
✽ Kveikið á kertum
mælistikan
Y
esmine Olsson hefur í nægu að snúast þessa
dagana. Hún heldur utan til Svíþjóðar í næstu
viku þar sem hún tekur þátt í ráðstefnu til-
einkaðri heilsu auk þess sem fyrsta mat-
reiðslubók hennar hefur verið gefin út í Austurríki
og Þýskalandi.
Von er á þriðju matreiðslubókinni frá Yesmine
innan skamms og mun sú vera með svolítið öðruvísi
sniði en fyrri bækurnar. Með bókinni fylgir mynd-
diskur sem sýnir hvernig best sé að matreiða hollan
indverskan og arabískan mat heima hjá sér. Yesmine
fer út í næstu viku og tekur fjölskyldu sína með sér í
ferðina. „Ég á svo mikið af íslenskum vinum sem búa
í Stokkhólmi þannig við ákváðum að fara saman öll
fjölskyldan. Svo tek ég líka með mér tvo dansara og
förðunarfræðing til að aðstoða mig á ráðstefnunni,“
segir hún.
Í Stokkhólmi mun Yesmine kynna Bollywood-dans-
ana sem hún hefur verið að kenna í World Class.
Af því tilefni birti sænskt heilsutímarit stórt fimm
blaðsíðna viðtal við hana þar sem Yesmine segir frá
þessari skemmtilegu líkamsrækt.
Yesmine stefnir á að gefa út þriðju matreiðslubók-
ina sína í lok nóvember. Aðspurð segir hún sig aldrei
hafa rennt grun í að bækurnar ættu eftir að ná slík-
um vinsældum þegar hún hóf að rita þá fyrstu. „Nei,
þetta var alls ekki planið og ég var búin að ákveða
að snúa mér að öðru eftir fyrstu bókina. Þau verk-
efni hafa svo setið svolítið á hakanum. En þetta er
búið að vera mikið og skemmtilegt ævintýri,“ segir
hún að lokum. - sm
Yesmine Olsson sækir heilsuráðstefnu í Svíþjóð og gefur út sína þriðju bók:
Kynnir Bollywood-
dansa fyrir Svíum
Mikið ævintýri Yesmine Olsson heldur út til Stokkhólms í
næstu viku til að kynna Bollywood-dansa. Hún vinnur einnig að
þriðju matreiðslubókinni sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/
Á uppleið:
Notalegar sam-
verustundir. Skólar
eru hafnir og sum-
arfríin búin og því
ættu menn að nýta
tímann í notalegar
samverustundir með
vinum og fjölskyldu.
Bjóðið heim í spjall
og heitt súkkulaði, leigið saman
kvikmynd eða farið í göngutúra.
Íslensk tónlist. Geislaplötur eru
teknar að streyma inn í plötuversl-
anir fyrir jólahátíð-
ina, þar á meðal
er ógrynnin öll af
íslenskri gæða-
tónlist. Því ekki
að taka smá for-
skot á sæluna og
smella ljúfum tónum á fóninn núna.
Framköllun. Stafrænu mynda-
vélarnar gera það að verkum að
fólk framkallar myndir í minna mæli
nú en áður. Það er þó svo miklu
skemmtilegra að blaða í gegnum
myndaalbúm heldur en að flétta
myndum á tölvuskjá.
Á niðurleið:
Þunnir jakkar.
Það er alveg
klárt að
vetur-
inn er
geng-
inn í garð.
Það er því
kominn tími til að skipta
út þunnu jökkunum fyrir eitthvað
aðeins hlýrra og rokheldara.
Háir símreikningar. Á tímum
farsímanna er fólk alltof gjarnt á
að hringja í hvert annað í tíma og
ótíma. Hvernig væri að taka skref
aftur til fortíðar og reyna þess í stað
að mæla sér mót einhvers staðar og
spjalla. Þetta lækkar símreikninginn
og sparar þannig pening.
Baktal. Það getur stundum verið
erfitt að sitja á sér og taka ekki þátt
í baktali, sérstaklega ef manni er
uppsigað við manneskjuna sem
verið er að tala um. Baktal er ljótt og
því ættu menn að hætta baknagi og
hrósa þess í stað.
H
önnunarmerkið E-label
opnar nýja verslun á
morgun við Laugaveg
27 og mun við sama
tækifæri kynna nýja fatalínu sem
ber heitið E-label Exclusive.
Að sögn Ástu Kristjánsdótt-
ur, annars eigenda E-label, hefur
mikið verið lagt í hönnun versl-
unarinnar og var innanhússarki-
tektinn Agnar Agnarsson, öðru
nafni Agzilla, fenginn til að sinna
verkefninu. „Hann er lærður inn-
anhúsarkitekt frá Parsons-skól-
anum í New York en hefur lítið
verið að sinna því starfi. Við telj-
um okkur því afskaplega heppnar
að hafa fengið hann í þetta verk-
efni með okkur. Nýja búðin verð-
ur mjög ólík þeirri gömlu og allar
innréttingarnar eru til dæmis
smíðaðar frá grunni,“ segir Ásta
og bætir við: „Okkur fannst kom-
inn tími á smá andlitslyftingu.“
Exclusive línan frá E-label er
meðal annars hönnuð af Hörpu
Einarsdóttur og Ernu Bergmann
og inniheldur hún flíkur sem eru
aðeins dýrari en aðrar flíkur frá
E-label.
Nýja verslunin opnar klukkan
11.00 og verður fimmtán prósent
afsláttur af öllum vörum í tilefni
dagsins. - sm
E-label opnar nýja verslun á Laugavegi:
Verslun E-label fær
andlitslyftingu
Ný verslun
E-label opnar nýja
og betri verslun
við Laugaveg 27
á morgun.
GOTT SKART. Skartgripahönnuðurinn Jóhanna Met-
úsalemsdóttir selur nokkur Kríu armbönd á afslætti til
styrktar eldri konum á Haíti. Hægt er að nálgast skartið
á kaffihúsinu Kaffi Haíti sem er í eigu föður Jóhönnu. Frá-
bært framtak og ekki er verra að geta skreytt sig til góðs.
Ný sending !
Þökkum frábærar viðtökur
Styrking • Jafnvægi • Fegurð
CC Flax
Frábært við fyrirtíðarspennu fyrir konur á öllum
aldri og öllum einkennum breytingaskeiðs
Mulin hörfræ – Lignans
Trönuberjafræ
Kalk úr sjávarþörungum
CC Flax gefur frábæran árangur við tifinningasveiflum, pirringi,
hita- og svitakófi, svefntruflunum, fitusöfnun og húðþurrki.
Stuðlar að hormónajafnvægi og vellíðan. Kemur í veg fyrir bjúg
og vökvasöfnun, styrkir nýru og hindrar sýkingu í þvagfærum.*
Fjölbreyttar trefjar og ríkt af Omega-3.
Heilbrigðari og grennri konur
Rannsókn sýndi að konur sem hafa mikið
Lignans i blóðinu hafa að meðaltali 8,5 kg
minni fitumassa en þær konur sem skortir eða
hafa lítið af Lignans.**
* Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082
** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University.
1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur
Fæst í apótekum og heilsubúðum www.celsus.is