Fréttablaðið - 05.11.2010, Blaðsíða 37
5. nóvember föstudagur 9
jafngóð stökk og allar hinar.
Hrefna segir íþróttina hafa
þróast mikið undanfarin ár og
að nú sé öll aðstaða orðin til
fyrirmyndar. Hún bendir einn-
ig á að fimleikar séu í dag fjöl-
mennari en flestar boltaíþróttir
en að lengi vel hafi fjárveiting-
ar til íþróttarinnar verið tak-
markaðar. „Það er mikill kostn-
aður sem fylgir þessu og hingað
til höfum við þurft að fjármagna
allar okkar keppnisferðir sjálfar.
Ég er búin að vera í fimleikum
nánast alla mína ævi og ég held
að fjölskylda mín sé komin með
alveg upp í kok af því að kaupa
klósettpappír og lakkríspoka af
mér. Við erum því afar þakklátar
fyrir ríkisstyrkinn sem við hlut-
um í kjölfar titilsins, hann mun
koma sér afskaplega vel.“
ERFITT AÐ HÆTTA
Aðspurð segist Hrefna oft hafa
leitt hugann að því að hætta í
fimleikum og snúa sér að öðru.
„Ég skal ekki neita því að ég hef
oft leitt hugann að því að hætta
í fimleikum en það er bara svo
erfitt að hætta þessu þegar
maður hefur áhugann og svona
góðan hóp í kring um sig. Það er
mjög erfitt að segja bless,“ segir
hún og hlær.
„Þetta tekur auðvitað mikinn
tíma frá einkalífinu en maður
reynir í staðinn að skipuleggja
frídagana enn betur svo maður
geti sinnt vinum og fjölskyldu.
Vinkonur mínar eru oftast mjög
skilningsríkar en það kemur
fyrir að maður fái samviskubit
yfir því hvað maður hefur lítinn
tíma aflögu fyrir sína nánustu.
Í raun hef ég samt alltaf verið
svona upptekin því ég hef verið
í fimleikum nánast alla ævina og
þekki ekkert annað.“
Þegar Hrefna er innt eftir því
hvort hún eigi sér önnur áhuga-
mál utan fimleikanna nefnir
hún ferðalög, göngur og skíði.
„Fimleikarnir eru samt eigin-
lega eina áhugamálið sem ég
sinni af alvöru enda gefst lítill
tími til annars.“
DEILA ÁHUGAMÁLINU
Björn Björnsson, kærasti Hrefnu,
stundaði fimleika í Ármanni á
árum áður og þar kynntust þau
fyrst. Hann þjálfar nú lið Gerplu
en hún segir það koma sér ágæt-
lega því þá sjái hún meira af
honum en annars. „Þetta fyrir-
komulag gengur mjög vel, við
höldum einkalífinu alveg fyrir
utan salinn en í salnum er ég
bara ein af stelpunum þó að það
geti af og til verið erfitt að láta
hann segja sér fyrir. Fimleikarn-
ir eru samt alveg heill heimur út
af fyrir sig og það er mjög gott að
við getum lifað og hrærst í sama
heimi. Það er heldur ekki verra
að geta eytt tíma með honum
þó maður sé á æfingum, ég er
mjög heppin með það,“ segir
hún brosandi.
Raddir hafa verið uppi um
að stúlkurnar í Gerplu eigi að
hljóta fálkaorðuna fyrir afrek
sín á sviði íþrótta. Hrefna segir
það gott og blessað og hefur
sjálf ekkert á móti því að hljóta
slíka viðurkenningu. „Við náðum
okkar markmiðum og hugsuðum
aldrei lengra en það. Mér þætti
frábært að fá slíka viðurkenn-
ingu og við höfum svo sannar-
lega unnið fyrir henni sem fyrsti
hópur á Íslandi sem hefur hamp-
að Evrópumeistaratitli. En hver
og einn verður að dæma um það
✽
b
ak
v
ið
tj
öl
di
n Hæfileikarík
Þarna er
ég að gera
spíkathopp á
trampolíni. Ég
fór með Ár-
manni í æf-
ingabúðir til
Danmerkur
árið 1997.
Ung fimleikastjarna
Ég á leið á mót í áhalda-
fimleikum í gamla einkennis-
búningi Ármanns.
Evrópumeistarar
P1 er samansettur af stelpum á aldrinum 17-
26 ára. Þrátt fyrir breitt aldursbil er þetta þétt-
ur hópur sem hefur gengið í gegnum súrt og
sætt saman til að ná sínum markmiðum.
Kringlunni