Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.11.2010, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 05.11.2010, Qupperneq 10
10 5. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR Sá næsti stóri frá Audi FRUMSÝNING Í HEKLU Á MORGUN. NÝR AUDI A1 - Opið frá 12 til 16 FAGMAÐUR Franski slátrarinn Yves- Marie Le Bourdonnec leikur listir sínar á Kjötkróknum, alþjóðlegri ráðstefnu slátrara sem haldin var í New York í vikunni. NORDICPHOTOS/AFP FJÖLMIÐLAR Eftir tæpan mánuð tekur gildi breytt verðskrá fyrir Stöð 2 Sport, Stöð 2 Sport2 og Fjölvarpið. Hinn 3. desember hækkar grunnverð áskriftar að þessum stöðvum um 5 prósent. Þannig hækkar áskriftarverð að Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport 2 um 300 krónur, en grunnverð áskriftar að Fjölvarpinu eins og hér segir; Fjölvarp Stóri um 270 krónur, Fjölvarp Toppur um 180 krónur, Fjölvarp Skemmtun og Fræðsla um 170 krónur og Fjölvarp Landsbyggð um 145 krónur. Eftir sem áður njóta vildar- áskrifendur Stöðvar 2 afsláttar- kjara, en þeir eru 90 til 95 pró- sent allra áskrifenda. Frekari fríðindi fyrir vildaráskrifendur eru væntanleg. - gb Áskriftarverð breytist: Sportrás og Fjölvarp hækka STJÓRNMÁL Björgvin G. Sigurðsson vildi ekki að Samfylkingin gengi til stjórnarsamstarfs með Sjálfstæðisflokknum eftir kosningarnar 2007. Hún ætti fremur að vera áfram í stjórnarandstöðu en að mynda stjórn með höfuðandstæðingi sínum. Frá þessu greinir Björgvin í bók um tíma- bilið fyrir, í kringum og eftir efnahagsham- farirnar 2008. Í henni lítur hann líka til baka og til framtíðar í stjórnmálum. Bókin kemur út eftir helgi. Björgvin kveðst hafa beitt sér mjög gegn samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn „sem var ljóst að stefndi í, næði stjórnarandstaða Sam- fylkingarinnar, Vinstri grænna og Frjáls- lyndra ekki meirihluta“. Helgi Hjörvar, Árni Páll Árnason og Katrín Júlíusdóttir hafi verið sama sinnis. Björgvin segir að þrátt fyrir þá afstöðu hafi hann vitað að svo gæti farið að hann yrði beðinn að taka að sér ráðherraembætti. „Ég hneigðist fremur til þess að hafna því ef það byðist, en vinir mínir og félagar í Suður- kjördæmi lögðu hart að mér að breyta þeirri afstöðu. Ég gæti ekki skorast undan slíkri ábyrgð sem oddviti flokksins í kjördæminu. Staða mín innan þingflokksins yrði bæði við- kvæm og erfið, ef ég ætlaði að sitja þar sem eins konar stjórnarandstæðingur.“ Hann hafi því ákveðið að taka því jákvætt ef forystan óskaði eftir honum í ríkisstjórn. Að sögn Björgvins var nokkuð almenn skoð- un innan flokksins að formaðurinn, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, ætti að verða fjármálaráð- herra en ekki utanríkisráðherra. Fjármála- ráðuneytið væri næstöflugasta ráðuneytið. Þá vildi flokkurinn hafa formanninn heima en ekki á sífelldum ferðalögum, enda sýndi reynslan að slíkt gæti veikt bæði formenn og flokka. „Það kom hins vegar fljótt fram að fólkið kringum Ingibjörgu Sólrúnu leit á stól utanríkisráðuneytisins sem næstþyngsta embættið, að minnsta kosti hvað virðingu snerti, og hún tók strikið þangað.“ Björgvin segist hafa talið það ranga ákvörð- un og raunar hafi hann verið óhress með að Samfylkingin skyldi sætta sig við að ganga inn í öll gömlu ráðuneytin sem Framsókn hafði farið með. „En flokkurinn kærði sig kollóttan í vím- unni yfir því að hafa náð því takmarki að komast í landsstjórnina,“ segir Björgvin í bókinni. bjorn@frettabladid.is Vildi ekki stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður og fyrrverandi ráðherra, var andvígur samstarfi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins eftir kosningarnar 2007. Fleiri Samfylkingarþingmenn lögðust gegn samstarfinu. „Helgi Hjörvar var eindreginn andstæðingur stjórnarsamstarfs- ins, og við Katrín Júlíusdóttir og Árni Páll Árnason lögðumst einnig mjög gegn því á fundi þingflokks daginn eftir kosning- arnar í maí 2007. Helgi gekk svo langt að bóka andstöðu sína á þingflokksfund- inum sem haldinn var daginn eftir kosningar. Sú bókun finnst nú hvergi. Honum var síðar tjáð að formaður flokks og þingflokks hefðu ákveðið að bókun hans skyldi ekki skráð. Fyrir því voru færðar einhverjar óskiljanlegar ástæður.“ Foringjahollur flokkur „Nú blasti hins vegar við sá veruleiki að flokkurinn hafði tekið stefnuna á samstarf við Sjálfstæðisflokk þrátt fyrir að engar líkur væru á að saman næðist um ákvörðun um að sækja um aðild að ESB. Forystan náði þó strax fram skilyrðum sínum um myndarlegar umbætur í málefnum lífeyrisþega og öðrum velferðarmálum. Það féll vel í kramið hjá flokksmönnum, sem á þeim tíma voru ekki fúsir til að gera ESB að úrslitaatriði. Rökin voru þau, að það væri ekkert annað stjórnarsamstarf, með eða án okkar, sem gæti náð árangri í þeim efnum. Okkur hefði altjent tekist að ná fram loforðum um Evrópunefnd og menn gerðu sér vonir um að með skynsemi og rökum mætti þróa starf hennar í átt að umsókn. Formaðurinn hafði flokkinn með sér í þessu enda Sam- fylkingin foringjahollur flokkur. Á flokksstjórnarfundi á Hótel Sögu var ákafur fögnuður yfir samkomulaginu við höfuðand- stæðinginn.“ Úr bók Björgvins. Bókun Helga um andstöðu ekki skráð AFSÖGNIN Björgvin G. Sigurðsson sagði af sér sem viðskiptaráðherra undir lok janúar á síðasta ári eftir tuttugu mánuði í embætti. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.