Fréttablaðið - 05.11.2010, Page 27

Fréttablaðið - 05.11.2010, Page 27
FÖSTUDAGUR 5. nóvember 2010 3 „Okkur langaði að lýsa upp skammdegið og gera eitthvað skemmtilegt á þeim árstíma þegar norð- urljós dansa á himni og fólkið okkar skín hvað skærast,“ segir Þórunn Sigurþórsdóttir í undir- búningsnefnd Norðurljósa, sem sett voru í gær og standa til sunnudags með fjölbreyttri dag- skrá fyrir unga jafnt sem aldna. „Þótt Ísland sé komið í vetrarbúning er engin ástæða til að láta sér leiðast, enda upplifun að keyra um íslenskar sveitir sem klæðst hafa frosti og mjöll. Mörgum finnst þetta notalegasti tími ársins og við það miðast dagskrá Norðurljósa; að geta stungið sér inn í huggulegt andrúmsloft og hlýju til að auðga andann og upplifa fallega listsköpun, en vitaskuld er líka leikur einn að gleðja munn og maga, og kitla fjör í krökkum með unglingaballi, listasmiðjum, þrautabraut eða námskeiði í afródansi.“ Þess ber að geta að frítt verður í sundlaug Stykkishólms alla helgina, sem og Vatnasafnið, bókasafnið, Norska húsið og Eldfjallasafnið. „Það þurfti ekki nema að nefna menningar- hátíðina, þá byrjaði síminn að hringja og Hólmar- ar úr öllum listgreinum óskuðu eftir að koma heim til að gleðja aðra Hólmara og aðkomufólk,“ segir Þórunn kampakát og víst er af nógu að taka í þessum yndisfríða bæ um helgina. Sem dæmi um spennandi viðburði má nefna tónleika Varsjárbandalagsins, sem flytur dill- andi austur-evrópska tónlist á Fimm fiskum, Ráðhúsbandið sem flytur hugljúf lög Vilhjálms Vilhjálmssonar í gömlu kirkjunni, opna kirkju- kórsæfingu með biblíusúpu, leikritið Kvöldhúm- ið í flutningi leikfélagsins Grímnis, upplestur Einars Kárasonar í Sjávarborg og stórdansleik Stykk og Draugabananna á Hótel Stykkishólmi, þar sem líka verður boðinn Norðurljósamatur. „Dagskráin stendur frá morgni til kvölds og ævintýri að eiga rómantískar stundir við vetur klæddan Breiðafjörð þar sem gestrisni og ylur stafar frá hverju húsi,“ segir Þórunn og hvetur sem flesta að renna í Hólminn um helgina. Sjá nánar um dagskrá Norðurljósa á www. stykkisholmur.is. thordis@frettabladid.is Lifað undir norðurljósum í vestri Menningarhátíðin Norðurljós lokkar og laðar um helgina í einum allra fegursta kaupstað landsins, Stykkishólmi. Þar mætir gestum undur- falleg tónlist af flestum gerðum, margvíslegar skemmtanir og ævintýri fyrir börn, unaðsleg sundupplifun, safnagrúsk og gestrisni Hólmara. Þórunn Sigurþórsdóttir með hvítklæddan Stykkishólm í baksýn, en þar verður mikið um dýrðir um á menningar- hátíðinni Norðurljósum um helgina. Séð inn í stásslega stofu Norska hússins, þar sem frítt verður fyrir gesti á menningarhátíðinni. Gömul og vel varðveitt hús eru eitt af aðalsmerkjum Stykkishólms og hrein unun að ganga þar um stræti. Leikfélag Hveragerðis frumsýn- ir Galdra-Loft eftir Jóhann Sig- urjónsson annað kvöld klukkan 20. Leikstjórar eru hjónin Kol- brún Björt Sigfúsdóttir og Erling- ur Grétar Einarsson, sem eru að setja upp sína fjórðu sýningu í sameiningu. „Verkið hefur verið æft af kappi síðastliðna tvo mánuði og sviði Litla leikhússins verið umbreytt til að leyfa þeim kjarnríku per- sónum sem í verkinu eru að njóta sín til fulls. Við Kolbrún höfum lagt mikla vinnu og ábyrgð á herð- ar leikurunum, sem hafa nálgast persónur sínar eins og atvinnu- fólk og staðið sig framar vonum í því,“ segir Erlingur Grétar. Upprunalegur texti Jóhanns hefur nokkuð verið skorinn niður, að sögn Erlings, auk þess sem leik- og hljóðmynd er brot- in upp til að koma betur á fram- færi þeim áhrifaríka kjarna sem verkið inniheldur. „Útkoman er 90 kraftmiklar mínútur af sam- skiptum fólks sem gætu allt eins átt sér stað í dag,“ svo notuð séu hans orð. - gun Kraftmiklar mínútur Galdra-Loftur verður frumsýndur í Litla leikhúsinu að Austurmörk 23 í Hveragerði annað kvöld. Lilja Björg Gísladóttir og Þorgils Óttar Baldursson sem Dísa og Loftur. MYND/GUÐMUNDUR ERLINGSSON Einvalalið tónlistarmanna kemur fram á tónleikum til styrktar Mæðrastyrksnefnd Kópavogs. Góðgerðatónleikar til styrktar Mæðrastyrksnefnd Kópavogs verða haldnir í Digraneskirkju á sunnu- dag. Kvennakór Kópavogs í sam- starfi við Digraneskirkju stend- ur fyrir tónleikunum en auk hans munu þau Margrét Eir, Regína Ósk, Guðrún Gunnarsdóttir og Kristján Jóhannsson stíga á svið. Þá ætla Skólakór Kársness, Barnakór Álf- hólsskóla og félagar úr Skólahljóm- sveit Kópavogs að hefja upp raust sína en ræðumaður kvöldsins verð- ur Gunnar Sigurjónsson prestur í Digraneskirkju. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og er áætlað að þeir standi í tvo tíma. Hægt er að panta miða með því að senda tölvupóst á hondkk@ gmail.com, í síma 899-0489 og við innganginn á meðan húsrúm leyf- ir. Allir listamenn gefa vinnu sína og rennur aðgangseyririnn, sem er 2.000 krónur, óskiptur til Mæðra- styrksnefndar Kópavogs. - ve Sungið og safnað Kristján Jóhannsson mun hefja upp raust sína ásamt Regínu Ósk og fleirum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.