Fréttablaðið - 05.11.2010, Síða 36

Fréttablaðið - 05.11.2010, Síða 36
8 föstudagur 5. nóvember H refna hefur æft fim- leika frá sex ára aldri og var það fyrir tilstuðlan vin- konu hennar að hún fór að æfa íþróttina. „Vin- kona mín var að æfa fimleika og einu sinni þegar við vorum á leikvellinum gat hún gert eitt- hvað á ránni sem mig langaði líka að geta gert, þannig að ég ákvað að byrja í fimleikum,“ út- skýrir Hrefna. Hún hóf ferilinn hjá fimleikadeild KR og æfði fyrst um sinn áhaldafimleika. Níu ára skipti hún um félag og hóf að æfa með Ármanni og þar var hún til sextán ára aldurs. „Þá tók ég mér smá gelgjupásu. Ég var þá komin í menntaskóla og mikið um að vera í félagslífinu auk þess var ég að kljást við meiðsli á þeim tíma og þurfti því að hætta æf- ingum tímabundið.“ Hrefna var þó ekki lengi frá og hóf að æfa hópfimleika með liði Stjörnunnar ári síðar. Hún segir töluverðan mun vera á áhalda- fimleikum og hópfimleikum þó grunnþjálfunin sé sú sama í báðum tilfellum. Það var svo árið 2005 sem hún gekk loks til liðs við Gerplu og hefur hún æft þar síðan. STERKUR HÓPUR Lið Gerplu er eina hópfimleika- lið kvenna í Evrópu sem hefur verið á verðlaunapalli stórmóta í eins langan tíma og raun ber vitni. Liðið hlaut meðal annars gullverðlaun á Norðurlanda- mótinu árið 2007, silfurverð- laun á Evrópumótinu árin 2006 og 2008 auk þess sem það lenti í þriðja sæti á Norðurlandamót- inu í fyrra. Liðið hefur því átt sæti á verðlaunapalli árlega allt frá árinu 2006. „Þetta er mjög góður og sam- heldinn hópur af stelpum og við erum allar jafn einbeittar í því að ná markmiðum okkar. Ef það er gott fyrir hópinn, þá gerir maður það. Það er bara þannig,“ segir Hrefna brosandi. Hún segir góðan anda ríkja innan hópsins og telur það hafa skipt sköpum. „Það skiptir miklu máli að ná góðum anda innan hópsins og þessi félagslegi þáttur er mjög mikilvægur. Ég hef aldrei upp- lifað jafn mikla einingu innan liðs og ég geri núna með þessum stelpum.“ Hópfimleikar eru nokkuð ung íþrótt og er Evrópumótið stærsta mót sem hægt er að keppa á innan íþróttarinnar. Það er því einstakur árangur hjá stúlkun- um að hafa unnið gullið í Sví- þjóð. Stúlkurnar ætla þó ekki að láta þar við sitja heldur ætla ótrauðar að halda áfram sig- urgöngu sinni. „Við ætlum að stimpla okkur inn sem besta liðið í Evrópu og halda áfram að vinna titla,“ segir hún ákveðin. EKKERT BAKTAL Margir hafa þá sýn á fimleika að þar ríki mikil samkeppni og bak- nag á milli stúlkna, Hrefna segir þetta þó ekki ganga upp í hóp- fimleikum heldur standi og falli liðið sem ein heild. „Dramatíkin felst kannski helst í því að við erum að keppast um sæti í lið- inu þegar nær dregur mótum. Það eru kannski tuttugu stúlk- ur í hóp og aðeins tólf sem fá að keppa inni á gólfinu. Það er auðvitað mjög svekkjandi að hafa lagt svona mikið á sig yfir árið og fá svo ekki pláss í liðinu. Maður þarf að vera mjög sterk- ur einstaklingur til að taka því og halda samt sínu striki á æf- ingum og styrkja liðið þannig.“ Eitt af því sem styrkti lið okkar í keppninni var að mikil sam- keppni ríkti um að komast inn í liðið og við vorum með stelpur á hliðarlínunni sem geta stokk- ið inn hvenær sem er og gert FIMLEIKAR HELSTA ÁHUGAMÁLIÐ Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir hefur stundað fimleika í tuttugu ár. Hún varð Evrópumeistari í hópfimleikum með liði Gerplu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Ef það er gott fyrir hópinn, þá gerir maður það. Það er bara þannig.“ Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir er fyrirliði fimleikaliðs Gerplu sem sigraði á Evrópumeistara- mótinu í hópfimleikum sem haldið var í Svíþjóð fyrir skömmu. Hún hefur stundað fimleika í tuttugu ár og segir nánast óhugsandi að hún muni nokkurn tímann geta sagt skilið við íþróttina. Viðtal: Sara McMahon Stílisti: Katrín Alda Ljósmyndir: Valgarður Gíslason Fatnaður: Einvera www.sifcosmetics.is • Vinna gegn öldrun húðarinnar • Byggja á rannsóknum á líffræði húðarinnar • Án ilm- og rotvarnarefna Íslensk nýsköpun, hugvit og framleiðsla Gefa fallegri húð PI PA R\ TB W A • SÍ A • 0 22 0 2 010

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.