Fréttablaðið - 05.11.2010, Síða 56

Fréttablaðið - 05.11.2010, Síða 56
 5. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR menning@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Föstudagur 05. nóvember 2010 ➜ Tónleikar 18.00 Framhaldsprófstónleikar verða í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar – Hásöl- um í kvöld, en þar flytur Ingibjörg Þor- steinsdóttir verk á píanó á útskriftartón- leikum sínum. Tónleikarnir hefjast kl. 18 og er aðgangur ókeypis. Allir velkomnir. 20.00 Hjaltalín verður með tónleika í Menningarhúsinu Hofi auk Sinfóníu- hljómsveitar Norðurlands í kvöld. Tónleikarnir hefjast klukkan 20 og fer miðasala fram á www.midi.is 20.30 Í Tónbergi, Akranesi flytur Orri Harðarson lög af nýútkomnu Albúmi, auk eldra efnis, í félagi við gítarleikarann Ragnar Emilsson. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og eru liður í dagskrá Vökudaga á Akranesi. 22.00 Helgi og hljóðfæraleikararnir verða með tónleika á Græna Hattinum, Akureyri, í kvöld. Tónleikarnir hefjast klukkan 22. 22.00 Hljómsveitin Hjálmar ásamt dúettinum Nolo verða með tónleika á skemmtistaðnum Sódómu í kvöld. Húsið opnar klukkan 22 og fer miðasala fram við hurð. Aðgangseyrir er 1500 krónur. 23.00 Hljómsveitin Worm Is Green spilar á skemmtistaðnum Venue ásamt The Esoteric Gender í kvöld. Húsið opnar klukkan 23 og er aðgangur ókeypis. ➜ Hátíðir 21.00 Gítarveisla Bjössa Thor verður haldin í Salnum, Kópavogi, í kvöld. Fram koma Björgvin Gíslason, Gunnar Þórðarson, Guðlaugur Falk, Andrés Þór og fleiri. Dagskrá hefst kl. 21.00. Forsala aðgöngumiða er á www.salurinn.is. ➜ Dansleikir Skvettuball FEBK verður í félagsheimil- inu Gullsmára, að Gullsmára 13 í Kópa- vogi næstkomandi laugardagskvöld. Ballið hefst klukkan 20.30 og stendur til 23.30. Haukur Ingibergsson leikur og syngur fyrir dansi. 1000 krónur inn. ➜ Málþing 20.00 Málþing um samtímamyndlist á Norðurlöndum hefst í dag. Setning og móttaka fer fram Hafnarhúsinu frá kl. 20-22 í kvöld. Málþingið er ókeypis en skráning nauðsynleg. Nánari upplýsingar má fá í síma 590 1200. ➜ Fyrirlestrar 15.00 Gunnvor Kronman, forstjóri Hanaholmen, flytur fyrirlestur í boði Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og Norræna hússins í dag. Fyrirlesturinn fer fram í Norræna húsinu og hefst kl. 15. Myndlist ★★★★★ Eggert Pétursson - málverk Hafnarborg Hvað er Eggert Pétursson að mála? Það virðist augljóst við fyrstu sýn en gerist flóknara þegar betur er að gáð. Eggert sækir myndefni sitt til íslenskrar náttúru, jurta, blóma og yfirborðs. Að sögn lýkur hann hér með úrvinnslu sinni á mynd- um sem byggja á skoðun hans á ákveðnu svæði í Úthlíðarhrauni í Biskupstungum. Spurningunni hér að ofan ætti því að vera auðsvar- að; Eggert málar íslenska náttúru. Ég er samt ekkert viss um það, þó vissulega megi nafngreina blóma- og jurtategundir á myndfletinum. Málverk Eggerts eru mjög langt frá því að vera raunsæ. Rétt upp úr miðri síðustu öld skrifaði franski fræðimaðurinn Roland Barthes um raunsæi í bók- menntum. Hann varpaði ljósi á þá staðreynd að raunsæi í bókmennt- um og myndlist lýtur ekki síður sínum eigin, innri lögmálum en önnur listform, rétt eins og órím- uð ljóð eða abstrakt list. Öll list- form eru tilbúningur, hluti af kerfi á borð við tungumálið eða málara- listina. Í þessum verkum er Eggert, eins og málarar hafa lengi gert, fyrst og fremst að glíma við málverkið sjálft. Jafnvel þó að tegundirnar séu enn þekkjanlegar; fífill, maríu- stakkur, birki, krækiberjalyng, er augljóst að skipan þeirra á mynd- fletinum lýtur engum náttúrulög- málum. Hér er ekki allt í bendu eins og í móanum og hrauninu held- ur vandlega raðað á myndflötinn samkvæmt myndbyggingu og lita- samsetningum. „Raunveruleikinn“ leysist síðan upp í algleymi litanna, lambagrasið verður að víbrandi hringformi sem iðar á myndflet- inum, dökkir skuggar í bakgrunni eru í raun margbrotið litasamspil. Niðurstaðan er ekki áferðarfalleg og það er hvorki náttúruleg birta né litir í þessum myndum en þetta eru spennandi málverk sem vekja upp spurningar. Í hverri mynd eru ótal hlutir að gerast. Auðveld- lega má sjá tengsl við aðra málara sem á undan hafa gengið, Kjar- val auðvitað, en líka málara seint á nítjándu öld, táknhyggjumálara eins og Gustave Moreau og nor- rænt táknhyggjulandslag þar sem þættir í náttúrunni svara til þátta í mannlegu eðli. Dimma, myrkur og rætur geta vísað til þessa en líka til ævintýra og þjóðtrúar tengdri nátt- úrunni. Á sama tíma tekst Eggerti að vera nær algjörlega abstrakt á stórum hluta myndflatarins, pensil- för og litasamsetningar skapa eigin veröld. Það er engu líkara en Eggert hafi hér náð einhvers konar hástigi, horfið á vit taumlausrar málara- nautnar sem er líkt og erótísk í algleymi sínu. Í miðju kafi við nost- urslega teikningu á myndfletinum leyfir hann litunum að taka sig yfir, brjótast fram og ryðja þekkjanleg- um formum til hliðar en missir þó ekki tökin, jafnvel á hápunkti lita- dýrðarinnar ríkir agi og nákvæmni. Það er við hæfi að kveðja viðfangs- efni þegar hápunkti er náð og afar forvitnilegt að sjá hvað Eggert hefur fram að færa í framhaldinu. Ragna Sigurðardóttir Niðurstaða: Eggert Pétursson hefur farið alla leið með myndefni sitt og náð hástigi málaranautnar á mynd- fletinum. Hver mynd býr yfir eigin, persónulegum og margbreytilegum myndheimi, málverk Eggerts eru sérkennilega áleitin og þröngva sér inn á vitundina. Algleymi á myndfleti ALLI NALLI Í MÖGULEIKHÚSINU Möguleikhúsið sýnir barnaleikritið Alli Nalli og tunglið í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi á laugardag klukkan 14. Pössunarpíurnar Ólína og Lína hafa ýmsar sögur að segja af honum Alla Nalla, sem var fyrsti krakkinn sem þær pössuðu. „Það er engu líkara en Eggert hafi hér náð einhvers konar hástigi, horfið á vit taumlausrar málaranautnar sem er líkt og erótísk í algleymi sínu,“ segir í dóminum. TAKTU VEL Á MÓTI SÖLUFÓLKI OKKAR 12:00 Fyrirlestur Reykjavík Central Park h a p p y s p a c e, Ráðhús Reykjavíkur 15:00 Fyrirlestur Skandinavisk nu Gunvor Kronman, Norræna Húsið 22:00 Tónlist direkt Datarock/Retro Stefson/Berndsen, nasa Myndlist Þjóðmenningarhúsið Guðmundur og Samarnir Guðmundur frá Miðdal Aðgangur ókeypis Norræn listahátíð Nordisk kulturfestival Reykjavík www.norraenahusid.is/ting 28.10.—7.11.2010 í d ag K lettag arð ar K ö llu n a rk le ttsve g u r Sæ b rau t Héðinsgat a Tolli vinnustofa, Héðinsgötu 2, 104 Reykjavík V I N N U S T O F A Ég verð með vinnustofu mína opna almenningi hvern föstudag frá kl. 14-18 fram að jólum. Allir velkomnir. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.