Fréttablaðið - 10.02.2011, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 10.02.2011, Blaðsíða 10
10 10. febrúar 2011 FIMMTUDAGUR www.myllan.is Búðu þig undir góðar stundir Kauptu beyglur frá Myllunni Spurðu um beyglur frá Myllunni í versluninni þinni Beyglurnar frá Myllunni eru bragðgóðar og henta við öll tækifæri. Eigðu þær alltaf í frystinum. Spurðu um beyglur í næstu búð. Taktu með þér poka til að eiga núna. Berðu beyglur á borð fyrir gesti eða smyrðu ljúffenga beyglu fyrir svanga krakka. Betri helming- urinn kann líka að meta volga beyglu beint í rúmið. Mundu eftir beyglunum frá Myllunni. Nú fæst 50% meira af beyglum á sama verði og áður. Gríptu með poka af bey glum í búðinni, í dag! Fylgstu með okkur á: VIÐSKIPTI Slitastjórn og skilanefnd Landsbankans hafa sent fyrr- verandi bankastjórum bankans og fjórum fulltrúum í bankaráðinu bréf þar sem óskað er skýringa á þætti þeirra í meintu misferli með fé bankans við hrun hans. Fólk- inu er jafnframt greint frá því að hugsanlega sé talið tilefni til bóta- krafna á hendur því. Bréfið var sent í byrjun vikunnar á bankastjórana Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjáns son og fjóra sem sátu í bankaráðinu við hrunið í október 2008; Andra Sveinsson, Kjartan Gunnarsson, Svöfu Grönfeldt og Þorgeir Baldursson. „Í þessum bréfum er verið að koma á framfæri mögulegum kröfum og sjónarmiðum og óska skýringa á ákveðnum atriðum sem hafa komið í ljós við rannsóknir sem hafa farið fram innan bank- ans,“ segir Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndar- innar og slitastjórnarinnar. „Svo er beðið eftir andmælum eða viðbrögðum frá þessum aðilum. Síðan verður það metið í bankan- um hvort það verður gripið til ein- hverra frekari aðgerða.“ Björgólfur Guðmundsson, aðal- eigandi bankans og formaður bankaráðsins, fékk ekki bréf af þessu tagi. „Það er fyrst og fremst út af því að hann hefur ekki for- ræði á sínum málum lengur þar sem bú hans er í gjaldþrota- skiptum,“ segir Páll. „Auk þess hefur bankinn þegar lýst eitthvað um tíu milljarða króna kröfu á hans bú, þannig að það var ekki talin sérstök ástæða til að senda honum svona bréf.“ Hin meintu brot sem nú er kannað hvort sexmenningarnir beri ábyrgð á eru hin sömu og sérstakur saksóknari réðst í aðgerðir vegna fyrir skemmstu. Annars vegar er þar um að ræða fimmtán milljarða millifærslur út af reikningum Landsbankans í Seðlabankanum 6. október 2008, til MP banka og Straums. Síðast- nefndu fjármálafyrirtækin höfðu átt í endurhverfum viðskiptum við Seðlabankann ásamt Lands- bankanum. Hitt málið snýst um 20 millj- arða kaup Landsbankans á bréfum í Landsbankanum sjálfum og Straumi út úr Landsvaka, verð- bréfasjóði bankans, sama dag. Páll segir að þetta sé í fyrsta sinn sem slitastjórn eða skila- nefnd bankans aðhefst eitthvað af þessu tagi gagnvart bankaráðinu. „Formlega held ég að við höfum ekki beint neinu að þeim öðru,“ segir hann. stigur@frettabladid.is Kanna skaða- bótaskyldu bankaráðsins Slitastjórn Landsbankans kannar hvort hægt sé að sækja bætur til bankastjóra og bankaráðs vegna vafasamra viðskipta upp á 35 milljarða. Björgólfur Guðmundsson ekki krafinn neins, enda gjaldþrota. ÞORGEIR BALDURSSON SVAFA GRÖNFELDT ÞRÍR KRAFÐIR SVARA Kjartan Gunnarsson, Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason eru krafðir svara vegna málsins. Björgólfur Guðmundsson er gjaldþrota og er því látinn vera. EVRÓPUMÁL Katrín Jakobs- dót t i r men nta má la - ráðherra hefur ekki áhyggjur af því að óeining við ríkisstjórnar borðið geti tafið fyrir aðildar- viðræðum Íslands og Evrópusambandsins. Norðlenski fréttavefur- inn Vikudagur hafði á dög- unum eftir Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi, að nú þegar styttast fer í að Íslend- ingar setji fram eiginleg samnings- markmið sín gæti slík óeining tafið fyrir í ferlinu. Án samstöðu innan ríkisstjórnar og á Alþingi gætu markmiðin orðið óskýr og jafnvel breytileg. Katrín, sem situr í ráðherra- nefnd um Evrópumál, segir að unnið hafi verið mikið og gott undirbúnings- starf í utanríkismála nefnd Alþingis, en á áliti þess verða markmið Íslands byggð. „Ég held að allir séu sammála um það mark- mið að ná sem bestum samningi,“ segir Katrín. Summa sendiherra mun hafa látið orðin falla á fyrirlestri í Háskólanum á Akureyri á fimmtu- dag fyrir viku og bætt við að ESB muni ekki þrýsta á um niðurstöðu, komi til fyrrgreindra tafa, enda sé Ísland að sækja um aðild að ESB og verði því að koma fram með kröfur sínar og óskir. - kóþ Óeining innan ríkisstjórnar tefur ekki ESB-viðræður: Sammála um að ná sem bestum samningi KATRÍN JAKOBSDÓTTIR Súdan Suður-Súdan Norður-Súdan Kongó Eþíópía Egyptaland Juba Khartoum R au ð ah afið SÚDAN Súdan verður formlega skipt í tvö ríki, Norður- og Suður- Súdan, 9. júlí næstkomandi. Yfir- gnæfandi meirihluti íbúa Suður- Súdans, um 98,8 prósent, greiddi aðskilnaðinum atkvæði sitt í þjóðar atkvæðagreiðslu. Mikið verk bíður nú stjórn- valda í ríkjunum tveimur. Sam- þykkja þarf ný landamæri, hvern- ig skuldir og eignir skiptast milli landanna og hvernig olíulindir á landamærunum eigi að skiptast, að því er fram kemur á vef BBC. Stjórnvöld í Súdan hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir mis- skiptingu auðs frá olíulindum landsins, sem hefur aðallega farið í uppbyggingu í norðurhluta landsins. Súdan fékk sjálfstæði frá Bret- landi árið 1956. Borgarastyrjöld ríkti í landinu til ársins 1972, og braust aftur út tíu árum síðar. Talið er að yfir tvær milljónir manna hafi fallið í styrjöldinni. Friðarsamkomulag var undir- ritað árið 2005, og hluti af því samkomulagi var sátt um að haldin yrði þjóðaratkvæða- greiðsla í suðurhluta landsins um hvort skipta ætti landinu í tvennt. Stjórnvöld í landinu hafa heitið því að koma ekki í veg fyrir sjálfstæði Suður-Súdans. Mikill munur er á landslagi og lífsháttum fólks í norður- og suðurhluta þessa stærsta ríkis Afríku. Í norðurhlutanum, sem er ríkari, er meirihluti íbúanna múslimar en sunnar í landinu eru kristnir og fólk sem er andatrúar í meirihluta. Í norðurhluta landsins er þurrt landslag og eyðimörk, en frum- skógar og mýrar í suðurhlutan- um. Um 44 milljónir manns búa í Súdan. - bj Íbúar í Suður-Súdan samþykkja stofnun nýs þjóðríkis í þjóðaratkvæðagreiðslu: Nýtt ríki verður stofnað í júlí TEFLDI VIÐ SEX HUNDRUÐ Íranski skákmeistarinn Ehsam Ghaem Mag- hami tefldi við meira en sex hundruð manns í vikunni og sló þar með heimsmet. Fjölteflið stóð yfir í rúman sólarhring. NORDICPHOTOS/AFP BELGÍA, AP „Það var búið að ákveða þetta fyrir mörgum árum, löngu áður en kreppan skall á,“ sagði Oana Lungescu, talskona Atlantshafsbandalags- ins, um nýju höfuðstöðvarnar sem reistar verða í Brussel. Framkvæmdirnar munu kosta nærri 160 milljarða króna, og segja gagnrýnendur þarna óþarflega mikið í lagt á tímum aðhalds og sparnaðar. Byggingarnar eiga að vera tilbúnar árið 2015, en frá 1966 hefur NATO haft höfuðstöðvar í húsnæði sem átti að vera til bráðabirgða. Lungesu segir mikinn viðhaldskostnað sparast þegar flutt verði í nýja hús- næðið. „Við erum ekki að eyða meira, heldur minna,“ sagði Lungescu. - gb Nýjar höfuðstöðvar NATO: Glæsibyggingar reistar í Brussel
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.