Fréttablaðið - 10.02.2011, Side 12

Fréttablaðið - 10.02.2011, Side 12
12 10. febrúar 2011 FIMMTUDAGUR12 hagur heimilanna Eitt af þeim mörgu verkefn- um sem falla á Íslendinga með nýju ári er að láta skoða bílinn. Af þeim þremur aðilum sem bjóða upp á bif- reiðaskoðun á höfuðborgar- svæðinu er Tékkland með lægsta verðið. Aðilar FÍB fá 15 til 20 prósenta afslátt á öllum bifreiðaskoðunum. Það kostar á bilinu 7.495 til 8.680 krónur að láta skoða fólksbíl. Endurskoðunargjald á bifreiðar er um og yfir 1.500 krónur. Þrír aðilar bjóða upp á þjónustuna hér á landi; Frumherji, Aðalskoðun og Tékkland. Samkvæmt verðlistum á heima- síðum fyrirtækjanna er Tékkland með lægsta verðið fyrir bifreiða- skoðun, eða 7.495 krónur. Frum- herji rukkar 8.400 krónur og hjá Aðalskoðun kostar bifreiðaskoð- un 8.680 krónur. Er þá um að ræða fólksbifreið sem er undir 3.500 kílóum. Endastafur í bílnúmeri segir í flestum tilfellum í hvaða mánuði ber að láta skoða bílinn. Þannig á að láta skoða bifreið með 1 í enda- staf í janúar, 2 í endastaf í febrúar og svo framvegis. Tveggja mán- aða frestur umfram þetta er til að færa ökutækið til skoðunar. Bifreið með 1 í endastaf hefur þá frest út mars á skoðunarári. Þó má koma með bifreið í skoðun allt að sex mánuðum fyrr en endastafur segir til um. Undantekningarnar á þessum reglum ná til fornbifreiða, bif- hjóla, húsbíla og ferðavagna. Þau tæki á að skoða fyrir 1. ágúst með lokafresti fyrir 1. október. Aðilar að Félagi íslenskra bif- reiðaeigenda (FÍB) fá allt að 20 prósenta afslátt hjá öllum skoðun- araðilum og er ársgjald þar 5.820 krónur. Félagar í FÍB eru að nálg- ast 16.000. Henrik Knudsen hjá FÍB segir hafa fjölgað hvað mest í félaginu eftir að vegatollunum um Suður- landið var mótmælt í janúar síðast- liðnum, þegar rúmlega 40 þúsund manns skrifuðu nafn sitt á mót- mælalista á netinu. sunna@frettabladid.is Ódýrast að láta skoða bílinn hjá Tékklandi BÍLNÚMER Síðasti tölustafur bílnúmera gefur til kynna hvenær skal láta skoða bílinn. Frestur er þó gefinn í tvo mánuði án þess að sekt falli á eiganda bílsins. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Verðdæmi tengd bifreiðaskoðunum Tékkland Aðalskoðun Frumherji Skoðun (+3.500 kg) 8.600 kr. 8.980 kr. 9.500 kr. Bifhjól, skoðun 5.050 kr. 5.980 kr. Létt bifhjól, skoðun 2.650 kr. 3.680 kr. Endurskoðun bíla 1.500 kr. 1.450 kr. 1.600 kr. Og fjarskipti ehf. hafa verið sekt- uð um 2,6 milljónir króna fyrir rangar fullyrðingar í auglýsingum sínum og brot á hinum ýmsu greinum laga um eftirlit með við- skiptaháttum og markaðssetn- ingu. Og fjarskipti báru saman kostn- að við Vodafone og Símann, og komst Neytendastofa meðal ann- ars að þeirri niðurstöðu að þar væru bornir saman reikningar fyrir mismunandi tímabil án þess að sýnt hafi verið fram á að verð séu rétt á þeim tíma sem auglýs- ingarnar voru birtar. Einnig hafi ekki verið greint frá því hvort þjónustan hafi verið nákvæmlega sambærileg og ef ekki í hverju mismunurinn er falinn. Vegna þessa leggur Neytenda- stofa stjórnvaldssekt á Og fjar- skipti ehf. sem nemur 2,6 milljón- um króna. - sv Birtu rangar fullyrðingar: Og fjarskipti sektað um 2,6 milljónir króna Margir reyna að eiga alltaf hakk í frysti til að grípa til eftir þörfum. Á því er þó sá ljóður að ákveða þarf með smá fyrirvara að elda úr hakkinu svo það nái að þiðna. Gott ráð til að stytta þann tíma verulega er að setja hakk í hentugu magni fyrir eina máltíð í hreinan plastpoka, lofttæma hann og loka honum. Svo er hakkið flatt út í kringlótta köku, eins þunna og pokinn leyfir. Frosið hakk sem meðhöndlað er með þessum hætti er mjög fljótt að þiðna í gegn, ólíkt þykkari stykkjum sem flestir skella í frystinn. GÓÐ HÚSRÁÐ Fletja út hakkið ■ Hakk má nota í marga rétti og gott að geta gripið einn skammt úr frystinum Ársgjald fyrir aðild að Félagi íslenskra bifreiðaeigenda er 5.820 krónur. Félagar fá ýmis fríðindi og afslátt með skírteini sínu, þar á meðal 20 prósenta afslátt í bifreiðaskoðun hjá Frumherja og 15 prósenta afslátt hjá Tékklandi og Aðalskoðun. FÍB hefur sama hlutverki að gegna og AAA (Triple A) vestanhafs, það er að segja, félagið veitir þjónustu á borð við dekkjaskipti úti á vegum og gangsetningu straumlausra bifreiða með rafmagnsköplum. Er sú þjónusta innifalin í ársgjaldinu. Einnig eiga meðlimir rétt á ókeypis þjónustu dráttarbíls einu sinni á ári. Félagið starfrækir lögfræði- og tæknimannaþjónusta þar sem félögum er veitt almenn ráðgjöf í gegn um síma þeim að kostnaðar- lausu. Lögfræðingar FÍB taka þó ekki að sér einstök mál, en veita alla þá aðstoð og ráðgjöf eins og þeim er unnt. Hægt er að panta símatíma hjá lögfræðingi í gegn um skrifstofu FÍB. Dæmi um annan afslátt FÍB: ■ Miði í Hvalfjarðargöngin: 600 krónur (í stað 900 króna) ■ Dælulykill FÍB og Atlantsolíu: 4 krónu afsláttur á bensíni á öllum bensínstöðvum Atlantsolíu. Þar að auki getur þú valið þér þína uppáhaldsstöð sem mun þá veita 6 krónu afslátt. ■ Barnabílstólar: Verslanir N1 veita 37 prósenta FÍB afslátt af BRITAX barnabílstólum til félagsmanna. Sjá skrá yfir fleiri fríðindi FÍB: www.fib.is Ýmis fríðindi fylgja aðild að FÍB „Verstu kaupin mín voru án efa þegar ég fékk í fyrsta sinn útborgað úr ungl- ingavinnunni og keypti mér sólgler- augu fyrir öll launin mín,“ segir Úlfar. „Ég fór með félaga mínum í strætó niður á Laugaveg og starfsmaður gler- augnaverslunarinnar sem við fórum í sá strax að hann var þarna með ómót- aðan leir í höndunum. Hann greip það tækifæri með því að selja mér rándýr og ljót sólgleraugu í John Lennon-stíl.“ Úlfar þurfti að fá lánað hjá félaga sínum til þess að komast heim í strætó á fyrsta útborgunar- degi ævi sinnar. Bestu kaupin Úlfars er gömul amerísk matreiðslu- bók sem hann keypti í danskri fornbókaverslun. „Þar eyddi ég nánast engum pening en fékk mikið út úr kaupunum,“ segir hann. „Bókin er endurútgáfa úr gömlum matreiðsluritum frá seinni heimsstyrjöld. Einn kaflinn sem ég hef skemmt mér vel yfir heitir Wartime Cooking. Hann er ætlaður húsmæðr- um sem eru að taka á móti mönnum sínum úr stríðinu og eiga að venja þá af herfæðinu. Þar er allt kjötið úr dós og það eru alltaf einhverjar þurrk- aðar baunir í réttunum.“ Úlfar segist líka hafa afar gaman að kaflanum um barnamatinn, þar sem allt sé með sykri. „Meira að segja ristað brauð með smjöri er líka með sykri, til að gleðja litlu börnin,“ segir Úlfar. „Þó að ég hafi ekki eldað mikið upp úr bókinni hefur hún veitt mér mikla gleði. Og hún kost- aði mig í kringum 50 íslenskar krónur.“ NEYTANDINN: Úlfar Linnet, sérfræðingur hjá Landsvirkjun Sykraður barnamatur og hermannafæði frá stríðinu Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér r ét t til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 45 3 0 8 5.-9. maí. Frá aðeins 109.000 kr. á fjögurra stjörnu hóteli í 4 nætur Heimsferðir, í samstarfi við Valitor, bjóða VISA korthöfum ferð til Barcelona á frábæru tilboðsverði. Um mjög takmarkaðan fjölda flugsæta er að ræða og gistirými er einnig takmarkað. Beint flug með Icelandair báðar leiðir. Sértilboðið er til handhafa VISA korthafa og er bundið við að greitt sé með viðkomandi korti. Frá kr. 109.900 Hotel Zenit Netverð á mann í tvíbýli, 5.-9. maí. Barcelona Sértilboð til korthafa VISA! Gildir til 15. febrúar VODAFONE Og fjarskipti hafa gerst sek um brot á lögum með röngum fullyrð- ingum í auglýsingum sínum. MYND/TEITUR 500 GRÖMM eru það magn ávaxta og grænmetis sem nær hvarvetna er mælt með að fullorðinn einstaklingur borði á dag. Neyslukannanir hér sýna að Íslendingar borða aðeins 275 grömm á dag. Neysla unglinga er enn minni, um 50 grömm.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.