Fréttablaðið - 10.02.2011, Blaðsíða 51

Fréttablaðið - 10.02.2011, Blaðsíða 51
FIMMTUDAGUR 10. febrúar 2011 39 ÚRSLIT IE-deild kvenna (A): KR-Hamar 54-65 KR: Margrét Kara Sturludóttir 14/12 fráköst, Hildur Sigurðardóttir 13/8 fráköst/5 stolnir, Signý Hermannsdóttir 11/5 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 9/7 fráköst, Helga Einarsdóttir 4/9 fráköst, Hafrún Hálfdánardóttir 2, Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir 1. Hamar: Jaleesa Butler 29/15 fráköst/5 stoð- sendingar/5 stolnir/6 varin skot, Fanney Lind Guðmundsdóttir 16/4 varin skot, Kristrún Sig- urjónsdóttir 10, Slavica Dimovska 4/4 fráköst/6 stoðsendingar/6 stolnir, Guðbjörg Sverrisdóttir 3/5 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 3. Haukar-Keflavík 53-74 Haukar: Ragna Margrét Brynjarsdóttir 19/13 frák- öst, Kathleen Patricia Snodgrass 16/14 fráköst, Guðrún Ósk Ámundardóttir 6, Íris Sverrisdóttir 6/4 fráköst, Dagbjört Samúelsdóttir 4, Margrét Rósa Hálfdánardótir 2. Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir 16/7 stoðsend- ingar, Bryndís Guðmundsdóttir 15/4 fráköst, Jacquline Adamshick 15/12 fráköst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 14/7 fráköst/5 stolnir/3 varin skot, Ingibjörg Jakobsdóttir 5, Marina Caran 4/6 fráköst, Marín Rós Karlsdóttir 3, Hrund Jóhannsdóttir 2. Þýski handboltinn: Fuchse Berlin-Rheinland 33-28 Alexander Petersson skoraði fimm mörk fyrir Berlin en Sigurbergur Sveinsson skoraði sex fyrir Rheinland. Melsungen-TuS N Lubbecke 30-33 Þórir Ólafsson komst ekki á blað hjá Lubbecke. Flensburg-Hannover 36-26 Vignir Svavarsson skoraði sex mörk fyrir Hann- over, Ásgeir Örn Hallgrímsson þrjú og Hannes Jón Jónsson tvö. Rhein-Neckar Löwen-Ahlen Hamm 33-28 Róbert Gunnarsson og Guðjón Valur Sigurðsson skoruðu báðir tvö mörk fyrir Löwen. Ólafur Stef- ánsson lék ekki með liðinu vegna meiðsla. Hamburg-Wetzlar 35-27 Danski handboltinn: AaB-AG Köbenhavn 26-31 Arnór Atlason var markahæstur í liði AGK með sex mörk. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði þrjú. Ingimundur Ingimundarson var ekki á meðal markaskorara hjá AaB. Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000 Spennan fer vaxandi í N1 deildinni og það eru fjölmargir frábærir leikir á dagskrá um allt land. Mætum öll á völlinn og hvetjum okkar fólk til dáða. BOLTAVEISLA UM ALLT LAND N1 DEILD KARLA – FIMMTUDAG 10. FEB. Selfoss – Akureyri Selfossi kl. 18:30 Haukar – HK Ásvöllum kl. 19:30 Afturelding – Fram Varmá kl. 19:30 FH – Valur Kaplakrika kl. 19:30 N1 DEILD KVENNA – LAUGARDAG 12. FEB. ÍR – Fram Austurbergi kl. 16:00 Fylkir – Valur Fylkishöll kl. 16:00 Stjarnan – Grótta Mýrinni kl. 16:00 HK – Haukar Digranesi kl. 16:00 ÍBV – FH Vestmannaeyjum kl. 18:00 KÖRFUBOLTI Hamar vann virkilega góðan sigur gegn KR í 15. umferð Iceland Express deildar kvenna í gær en leikurinn fór fram í DHL- höllinni í Vesturbænum. Mikið var um tæknimistök í leiknum og liðin áttu erfitt með að finna taktinn. Hamarsstúlkur voru samt sem áður ávallt skrefinu á undan og unnu að lokum sanngjarnan sigur, 65-54. Jaleesa Butler, leikmaður Hamars, var atkvæðamest í leikn- um en hún skoraði 29 stig og tók 15 fráköst. „Þetta var ekki mjög fallegur körfuboltaleikur,“ sagði Ágúst S. Björgvinsson, þjálfari Hamars, eftir sigurinn í gær. „Leikurinn var frekar bragð- daufur og náði aldrei að vera eins stór og bikarleikurinn á laugar- daginn. KR-ingar hittu mjög illa og við náðum að nýta okkur það. Við vorum með yfirhöndina nánast allan leikinn og sigurinn var í raun aldrei í hættu. Lykillinn að sigr- inum var að við náðum að finna ákveðnar lausnir á varnarleik KR en þær pressuðu gríðarlega mikið á okkur. Stelpurnar fóru einnig að taka fráköst í síðari hálfleik, sem reyndist okkur mikilvægt,“ sagði Ágúst nokkuð ánægður eftir leik- inn í gær. „Ég er alveg hundfúll en það má segja að við höfum lagt grunninn að þessu tapi með stjarnfræði- lega lélegum fyrri hálfleik,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, eftir leikinn í gær. „Við náum í raun aldrei neinu flæði í sóknarleik okkar og erum allan leikinn að reyna að finna taktinn. Það var mögulega ein- hvers konar spennufall í gangi hjá mínu liði eftir sigurinn á þeim á laugardaginn en það á hreinlega ekki að gerast. Við réðum ekk- ert við bandaríska leikmanninn þeirra og Hamarsstelpurnar náðu að halda haus allan leikinn. Það er okkar stíll að spila hraðan körfu- bolta en það gekk ekki í kvöld því Hamar hafði ákveðnar lausnir á leik okkar. Hamarsliðið á mikið hrós skilið fyrir frammistöðuna í kvöld og átti sigurinn skilinn. Ég var samt sem áður nokkuð ánægð- ur með varnarleikinn hjá okkur en stelpurnar náðu að stoppa sóknar- aðgerðir Hamars á köflum,“ sagði Hrafn Kristjánsson frekar daufur í bragði eftir leikinn í gær. - sáp KR og Hamar mættust öðru sinni í DHL-höllinni á aðeins nokkrum dögum: Hamar hefndi fyrir bikartapið BARÁTTA Sem fyrr var lítið gefið eftir í leikjum KR og Hamars en Hamar hafði betur að þessu sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI Enska landsliðið fór sátt heim frá Kaupmannahöfn í gær með 1-2 sigur. Daniel Agger kom Dönum yfir en Darren Bent jafn- aði og Ashley Young tryggði Eng- landi sigur í síðari hálfleik. „Ég er ánægður með úrslitin, sem og frammistöðu ákveðinna leikmanna. Sérstaklega þeirra sem hafa minna fengið að spila hjá mér,“ sagði Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands. „Þetta var áhugaverð frum- raun hjá Jack Wilshere, sem stóð sig vel. Slíkt hið sama gerði Bent, sem var líka duglegur. Ég er samt ekki búinn að ákveða hvernig liðið verður í leiknum gegn Wales í undankeppni EM.“ Ítalir nældu í jafntefli gegn Þjóðverjum þar sem Þjóðverjar voru miklu betri allan leikinn. Þeim tókst þó aðeins að skora eitt mark og Rossi refsaði fyrir það í lokin. Þjóðverjum hefur ekki tek- ist að leggja Ítali síðan 1995. - hbg Vináttulandsleikir: Young tryggði Englandi sigur VEL GERT Darren Bent fagnar marki sínu gegn Dönum í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.