Barnablaðið - 01.02.1974, Side 10

Barnablaðið - 01.02.1974, Side 10
Þú lesandi, sem ekki hefur tekið á móti Jesú, ef þú vilt það skaltu biðja hann um að frelsa þig. Það þýðir ekki að biðja sjálfan sig um að frelsa sig, það mun aldrei takast. Það er bara Jesús sem frelsar. Hann frelsaði mig þegar ég var tiu ára. Sumarið 1971 var ég á Vopnafirði. Einn dag var ég og aðrir strákar að leika niður á bryggju þegar bátur kom að með tvo hákarla. Allt i einu rann ég til og það munaði ekki miklu að ég rynni útaf. Ég trúi að Jesús hafi verið þar að verki og verndað mig. ,,Og eins og Móse hóf upp höggorm- 'nn á eyðimörkinni, þannig á manns- sonurinn að verða upphafinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilift lif.” (Jóhannes 3:14-15) Jesús hefur frelsað mig. Jesús sagði: ,,Komið til min, allir þér, sem erfiðið og þunga eru hlaðnir, og ég mun veitayður hvild.” (Matteus 11:28). Ég þáði þetta boð og sé ekki eftir þvi. Varðveisla hans og náð hefur aldrei brugðist mér. Ég hef beðið til Jesú fyrir minum minnstu og stærstu vanda- málum, og ávallt fengið bænheyrslu. Ef þú sem lest þessar linur, hefur ekki tekið á móti Kristi, þá gerðu það strax. Hann leið og dó fyrir þig svo að þú gætir eignast eilift lif. Þvi að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilift lif.” (Jóhannes 3:16). Guð blessi þig til 'að þiggja boð Jesú Krists, áður en það. verður of seint. Páll Pálsson, Hraunbæ 170, Reykjavik. Haraldur Haraldsson, Birkimel 10 B, Reykjavik.

x

Barnablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.