Barnablaðið - 01.02.1974, Síða 16
V
I
David Wilkerson:
Úr bókinni
The Cross
and the Switchblade
... Afi var mikill bænamaður og i þvi
var öll fjölskyldan eins. Hann gerði
pabba að bænamanni, og pabbi kenndi
mér svo að biðja.
— David, sagði afi einu sinni, þegar
hann var á ferð, þorir þú að biðja þegar
þú átt i erfiðleikum?
Þetta sýndist vera saklaus spurning i
fyrstu, en þegar hann gekk á mig, þá
fann ég að hann var að fiska eftir ein-
hverju sérstöku.
Ég þakkaði Guði oft, fyrir allt sem
gekk eftir vilja minum, sérlega i sam-
bandi við foreldra mina og heimilið og
matinn og skólann. Og ég bað eins og
þorri manna biður, hálfóákveðinn, að
Guð vildi einhverntima velja mig til að
vera verkfæri sitt. En að biðja um sér-
staka hjálp, það var sjaldgæft.
16