Barnablaðið - 01.02.1974, Blaðsíða 22

Barnablaðið - 01.02.1974, Blaðsíða 22
UNDRAVER BJÖRG UN Þegar búið var að eyða 5000 dollurum i rekstur gömlu kolanámunnar i Batt- ford, var hætt starfsemi þar. Hún þótti ekki bera sig. 70 metra djúp gryfja og löng jarðgöng i Battfordsfjallinu var hið eina, er bar vitni um það sem þarna hafði verið gert. Eitt sinn var Pétur Newman á göngu i þessum fjöllum og villtist frá félögum sinum. Hann bar að hinni yfirgefnu jarðholu og hrapaði niður i þetta hræði- lega djúp. Til allrar lukku hafði hann með sér langan, sterkan staf, sem dró ögn úr hrapinu niður, en samt var hann illa farinn er hann kom til botns. En á lifi var hann. Hann engdist sundur og saman af kvölum, en eigi að siður var hann þakk- látur, þegar hann kom til meðvitundar. Lifi hans hafði verið bjargað. En hafði hann bjargazt til þess eins að deyja úr hungri þarna, 70 metra undir yfirborði jarðar? Næstu nótt lá hann þarna og reyndi að hugsa út möguleika til björgunar, hvernig hann gæti komizt upp á yfirborðið, en honum veittist engin lausn á málinu. 22

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.