19. júní - 19.06.1957, Qupperneq 9
GUÐRÚN ÓLAFSDÖTTIR CAND. MAG.:
STÚDENTALÍF í OSLÓ
Við sjálft lá, að stúdentalíf yrði ekkert í Osló,
því að stofnandi háskólans, Friðrik konungur VI.,
var því andvígur, að honum yrði fenginn staður
þar, enda var Osló, eða Kristjanía, eins og borgin
hét þá, 1811, langt frá því að vera stærsta eða
voldugasta borg Noregs, eins og nú er. En atvik
réðu því, að Det Kongelige Fredriks Universitet,
eða Universitas regia Fredriciana eins og það hét
upp á latínu allar götur fram til 1939, þegar nafn-
VALBORG BENTSDÓTTIR:
Við gröf Bríeiar
27. sept. 1956.
Á gröf þína leggjum viS lifandi blóm
til a8 litprýSa moldina snauSa.
En hvers virSi er hefS sú, ef höndin er tóm,
sem heiður þann ber á þig dauSa?
Ef konan, sem heiÖrar þitt hundraÖ í kvöld,
ei heldur til sigurs því merki,
sem hófstu svo djörf fyrir helmingi’ af öld,
og heiðrar þitt lífsstarf í verki,
er fánýtt allt hjal um þann fortiSararf,
þáS er framtíS, sem ber í sér dóminn.
Og hugsjónir gleymast viS hálfvelgjustarf,
ef heit okkar fölna’ eins og blómin.
En baráttuverk þitt ei gleymist viS gröf,
og þá gœfust þér dýrastar bœtur,
ef færum viS lífinu’ aS framtíSargjöf
frjálsbornar hugsandi dætur.
Guðrún Ólafsdóttir,
cand. mag.
inu var breytt í Universitas Osloensis, var staðsett
í Kristjaníu þvert ofan í óskir stofnandans. Þar
með var Oslóarborg tryggð staðan sem miðstöð
vísinda og menntalífs Norðmanna, því að með há-
skólanum fylgdu ekki aðeins stúdentar og prófess-
orar, heldur og margs konar vísindafélög og út-
gáfustarfsemi, auk safna, eins og þjóðfræðasafn,
þjóðminjasafn og fyrst og fremst bókasafn, en há-
skólabókasafnið, Universitets biblioteket, var stofn-
að um leið og háskólinn með 30.000 bindum, sem
stofnandinn gaf því úr tvíritum Konunglega bóka-
safnsins í Kaupmannahöfn. Það er nú stærsta
bókasafn Noregs með yfir 1.2 millj. binda, auk
kortasafns, handritasafns o. fl. Það er ríkissafn og
því ber með lögum eintak af öllu því, sem út er
gefið í Noregi.
Fyrir stofnun háskólans höfðu norskir mennta-
menn eins og íslenzkir, orðið að sækja til Hafnar-
háskóla, eða til hinna þriggja háskólanna á Norð-
urlöndum, en þeir voru háskólinn í Uppsölum,
19. JÚNl
7