19. júní


19. júní - 19.06.1957, Page 23

19. júní - 19.06.1957, Page 23
ar þessi órói grípur telpur, sé það vegna veilu i skapgerð bamsins, sem má oftast rekja til erfið- leika, sem steðjað hafa að á heimili þess, svo sem veikindi, drykkjuskapur eða húsnæðisleysi og upp- lausn heimilisins af þeim ástæðum. Oftast er for- eldrum þetta ljóst,, og mér hefur alltaf reynzt vel samstarf við foreldrana. Hjá sumum telpum gætir lika vonleysis: „Ég kem frá drykkjuheimili, er ekki von, að ég sé svona.“ Þetta er ekki óalgengt að heyra. — Hvað álítið þér um þessa kröfu kvennasam- takanna, að koma upp vinnuskóla? — Ég tel, að slíkur skóli sé mjög nauðsynlegur, að einhver staður sé til, þar sem þessi börn geta lært að vinna. Ef slíkur skóli væri fyrir hendi, þá mætti vænta meiri árangurs og hægt væri að forða fleiri frá glötun. Persónulega álit ég, að slíkur skóli þyrfti að geta haft trúarleg áhrif á unglingana. Þau þekkja ekki grundvallaratriði kristindómsins, það siðgæði, sem ég tel grundvöll fyrir heilbrigðu lífi. — Teljið þér, að ein lögreglukona geti annað þessum verkefnum sem skyldi? -—- Nei, það vantar mikið á að svo sé. Það þarf að fjölga kvenlögreglunni. — Hafið þér ekki sömu launakjör og aðrir lög- regluþjónar? — Nei, það hef ég ekki. Ég er ráðin samkvæmt 10. launaflokki ríkisstarfsmanna, en ég fæ ekki greidda neina eftirvinnu eða næturvinnu, eins og allir aðrir lögregluþjónar. Yinna mín er mjög oft á kvöldin og jafnvel er ég kölluð út á nætumar líka. Beiðni minni um eftirvinnugreiðslu eins og karl- lögreglan fær, hefur ekki verið sinnt. — Það er þá ekki farið að lögum um launa- greiðslur kvenlögreglunnar. Það er þó skýlaust lagaákvæði, að konum beri sömu laun hjá ríkinu, þegar þær vinna sambærileg störf. — Já, mér er það ljóst. En ég tel, að þessi þátt- ur í starfi lögreglunnar megi aldrei falla niður, úr því sem komið er. — Við gætum lengi haldið áfram, það er svo margt fleira, sem ég vildi spyrja um, en nú hef ég þegar tafið yður lengi. Ég þakka yður kærlega fyrir viðtökumar og óska yður alls góðs í starfi yðar. VALBORG BENTSDÖTTIR: Við lækinn. ViS bláa lœkinn blöS ég óf í sveig og beiS þín löngum sumarhlýja nótí, þá blundur hafSi á bleikan smára sótt og blómin drukku þráSa svalaveig. Er leiS um dalinn lognsvæfS vorsins ró, í IjóSi nóttin blessun okkur gaf. Bjartsýn og glöS, er blœr í lautu svaf, blómgySjan vakti ein í þöglum mó, hjá okkur tveim, sem töfruS huldumögn tóku í faSm sinn nœturlangt um vor. Nú þegar döggin dylur gengin spor, draumur þess liSna er sem gömul sögn. ViS bláan læk, ef biSi hann, sem var, bliknáSir draumar rætast myndu þar. (1945). Verðlaunasamkeppnin. 1955—56 efndi 19. júní til verðlaunasamkeppni um smásögu, sem frumsamin væri af íslenzkri konu, og var lieitið 1000 kr. verðlaunum. Alls bár- ust 8 sögur. Það var einróma álit dómnefndar, að bezt væri sagan Ófæran. Höfundur hennar reynd- ist vera Halldóra B. Björnsson, og lilýtur hún þvi umrædd verðlaun. Dómnefnd skipuðu: Andrés Bjömsson fulltrúi, Líba Einarsdóttir cand. mag. og Valborg Bentsdótt- ir skrifstofustjóri. Halldóra B. Björnsson, höfundur verSlaunasög- unnar, er lesendum bláSsins aS göSu kunn. Hún var í ritnefnd 19. júní 1953—1956 og eftir hana hafa birzt þar IjóS, frumsamin og þýdd, smá- saga og greinar. Bækur, sem komiS hafa út eftir Halldóru, eru: LjöS, 1949, og Eitt er þaS land, 1955. 19. JÚNl 21

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.