19. júní


19. júní - 19.06.1957, Page 30

19. júní - 19.06.1957, Page 30
KATRlN SMÁRI: Hugleiðingar um æskuna Æska hverrar þjóðar er fjöregg hennar, — og svo fer um framtíð hennar, sem að þessari dýr- mætustu eign þjóðarinnar er búið. 1 rauninni er enginn heilvita maður svo skyni skroppinn, að hann ekki sjái þetta, ef hann þá yfirleitt leiðir hug- ann að því, — þetta er svo augljóst mál. Þvi furðulegra er það, hversu það virðist vera tilviljunar- og handahófskennt, sem að æskunni berst í þvi augnamiði að sjá henni fyrir skemmt unum, að maður nú ekki tali um það, að svo virð- ist, sem beinlinis sé stefnt að því af ábyrgðarlaus- um aðilum í fjárgróðaskyni —, að ala á ofbeldis- hneigð og æsa upp frumstæðar og vanþroskaðar hvatir barna og unglinga. En heilbrigð skemmtun er hvild, og hvíldar og afslöppunar frá starfi þurfa — Jú, ég held, að foreldraráðið geti gert mikið gagn, ef rétt er á haldið. Annars virðist mér helzt sem enginn hafi tíma til samvinnu, hvorki for- eldrar né kennarar. Það er mikið um þetta rætt og margar leiðir reyndar í hinum ýmsu skólum, en allir hafa svo mikið að gera, og í ölduföllum daglega lífsins drukkna hæglega hin góðu áform. — Að síðustu langar mig að vita, hvort það er ekki eitthvað sérstakt, sem þér vilduð segja um skóla og uppeldismál yfirleitt? — Um þetta mætti margt segja, sem ekki er hægt í stuttu viðtali. Við höfum tekið upp viðamikið fræðslukerfi, þar sem til mikils er ætlazt af börnunum. Við látum þau taka próf og rannsökum þekkingu þeirra. En til er annar þáttur uppeldisins, sem ekki er minna um vert, en erfiðara er að prófa. Það er hinn félagslegi þroski og siðgæði. Við þurfum víst öll, sem umgöngumst börn, að taka höndum sam- an og vera þeim fyrirmynd, því það læra börnin, sem fyrir þeim er haft. Og gætum við gefið börn- börn og unglingar ekki síður en fullorðnir. En þar er bara sá munur á, að þar sem fullorðnir þykj- ast yfirleitt vera orðnir nokkuð leiknir í listinni að lifa, þá fara þeir ekki á skemmtanir eða horfa á leiklist til þess að læra þaS, — heldur til þess að „drepa timann“ og gleyma amstri hversdagslífsins, þar sem bömin og unglingamir aftur á móti drekka í sig áhrifin af því, sem þeir sjá og heyra, með það fyrir augum, — án þess að þau geri sér það beinlínis ljóst, — að læra á því, hvemig á að hegða sér, og bregðast við í hinum ýmsu tilfell- um, og leggja svo mat sitt á lífið og gang þess út frá þessum áhrifum, sem þau verða fyrir. Þetta stafar af vaxtarþránni, sem er svo sterk í ungling- unum og þeim, sem eru ungir í anda, þótt ámn- unum bjartsýna lifstrú og tillitssemi við aðra, er það bezta veganesti þeirra, er út í lífið kemur. — Mætti ég spyrja, hvers vegna þér völduð kennarastarfið að lífsstarfi? — Þetta er nú hálfgerð samvizkuspurning. En ég held, að það hafi verið af því, að ég ólst upp í stómm systkinahópi og strax, er ég gat eitthvað gert, hafði ég þann starfa að gæta yngri systkina minna. Mér finnst alltaf ég kunna bezt við mig þar, sem fullt er af börnum. Það er kannske af því, að ég er barnaleg í mér sjálf, en það er lika af því, að þar er maður í mestum tengslum við vorið og gróðurinn í þjóðlífi okkar. Ég kveð nú frú Helgu og þakka henni fyrir við- talið. Á heimleiðinni verður mér hugsað til þess, er hún sagði um jafnrétti innan kennarastéttar- innar, og það styður það, sem raunar lengi hefur verið mín skoðun, að jafnrétti sé bezta tryggingin fyrir góðu og árekstralitlu samstarfi, og eini ör- uggi grundvöllurinn, sem gerir tvær eða fleiri persónur að góðum félögum. B 28 19. JÚNl

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.