19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1957, Qupperneq 38

19. júní - 19.06.1957, Qupperneq 38
að konur í borgum annarra landa ynnu við hlið manna sinna á heimilunum. Uppeldi barna kom þá í hlut beggja líkt og nú er til sveita hér á landi. Vinna konunnar var talin svo mikils virði, að hún gaf henni nokkurn rétt og gildi sem mannveru, jafnvel þótt hún væri ambátt karlmannsins, hins ótvíræða drottnara heimilisins. Þrátt fyrir allar hinar miklu breytingar, er þó svo, að enn þann dag í dag vinna konur í sveitum og sjávarþorpum þríþætt störf: heimilisstörf öll og barnaumsjá ásamt vinnu við framleiðslustörfin, stundum myrkranna á milli. Við hlið manna sinna standa þær, i það minnsta sumarlangt, og leggja fram ómetanlega vinnu til þjóðarbúsins í heild, skapa sér og sínum betri kjör, jafnvel hindra, að ýmsir atvinnuvegir í þorpum landsins leggist nið- ur sökum fólkseklu eða jarðir fari í eyði meir en orðið er. Störf þessara kvenna eru vissulega ómet- anleg fyrir þjóðfélagið, en það gefur að skilja, hve erfitt er fyrir barnakonur að leysa af hendi erf- iðisvinnu ásamt öllum öðrum störfum án nokk- urrar hjálpar. II. Þrátt fyrir alla byrjunarörðugleika og mót- spyrnu, þokast sá timi nær og nær, að konur hér á landi hefji störf sem virkir þjóðfélagsþegnar með jafnan rétt og sömu laun sem karlmenn. Vandamálin, sem upp koma, eru knýjandi og verða ekki leyst nógu fljótt og vel, nema allt sé undirbúið í tíma. Mál málanna er og verður jafn- an, að starf konunnar er tvíþætt í langflestum tilfellum. Hún er líka móðirin. Hin andlega frjálsa kona, er neitað hefur að sætta sig við að vera lengur liálf manneskja, ein- skorðuð við vanabundin störf, losnar ekki að fullu, fyrr en almenn, varanleg lausn er fundin á þessu máli. Hvernig verður bezt séð fyrir börnum kvenna, er vinna úti, hvort sem þær sjá börnum sínum einar farborða eða foreldrar báðir? Það er létt fyr- ir talsmenn gamla tímans að gera vandlætingar- hróp að móður, er sækir vinnu sína utan heimilis, að hún vanræki börn sín, en erfitt að andmæla með fullum rétti, fyrr en fengin er varanleg og örugg lausn. Það er næstum útilokað fyrir bæjar- konur að stunda misjafnlega erfiða vinnu og jafn- framt hugsa um heimili og nokkur börn. Barna- heimili og aftur barnaheimili eru svo nauðsynleg, að án þeirra stæði fjöldi kvenna í dag algerlega í vandræðum. Þau verða þó aldrei fullnægjandi. I greinarkorni, er ég skrifaði í Tímann s.l. haust, gat ég þess lauslega, hvernig Svíar reyna að leysa þessi viðfangsefni, án þess þó að þeim hafi tekizt það að öllu leyti. Það er síður en svo, að vanrækt börn tilheyri frekar mæðrum, er vinna úti, enda ætti ekki að þurfa að koma til þess í nútíma-þjóð- félagi, ef konur hafa öruggan samastað fyrir þau. Það er sannarlega af allt öðrum ástæðum en vinnu, sem fjöldi barna er vanræktur, bæði and- lega og líkamlega, hér sem annars staðar. Skýrslur, er gerðar hafa verið í Englandi um afbrot barna, sýna, að þar eru ekki í meiri hluta börn þeirra kvenna, sem stunda vinnu utan heim- ilis. Talið er öruggt, að skapgerð foreldra ráði þar miklu meira um, hvort barn lcndir á glapstigum. Vandræði, er skapazt hafa annars staðar, vegna fjarveru beggja foreldra mikinn hluta dags frá heimilum, ættu að verða okkur til varnaðar. Trúað gæti ég því, að tala giftra kvenna, er koma til með að vinna utan heimilanna, verði svipuð hér sem annars staðar í náinni framtíð, ekki sízt vegna hinnar öru þróunar á öllum svið- um, er kallar eftir vinnuafli. Ég leyfi mér að taka tvær skýrslur, er frú Alva Myrdal hefur gert, aðra frá Ameríku, en hina frá Svíþjóð. I Svíþjóð hækkaði á árunum 1945—50 tala giftra kvenna, er unnu úti, um 53%. 1 Am- eríku unnu á árinu 1930 11.5%, á árinu 1940 17%, og á árinu 1950 24%. Ég leyfi mér jafnframt að vitna í ummæli cand. polit. Karen Gredal. Hún telur, að helmingur allra liúsmæðra í Kaupmannahöfn muni vinna úti, en fjórði hluti kvenna í Danmörku allri. Ennþá er algengt, bæði hér á landi sem annars staðar, að konurnar sjálfar telji afkomu sína bezt tryggða með giftingu. Það er jafnframt nokkuð áberandi, að þær taki hvorki nám né vinnu nægilega alvar- lega. En þær ungu stúlkur, er rjúka í að hætta námi eða vinnu við giftingu, ættu að skoða hug sinn og aðstæður vel. Aldurinn milli fertugs og sjötugs er langur tími. Konan getur á þeirh árum skapað mikil verðmæti, jafnt andleg sem veraldleg, í því starfi, sem hún er menntuð til. Með breyttum hugsunarhætti get- ur lífsstarf hennar engu síður orðið á því sviði en að ala upp börn sín. Nútímakonan á færri börn en áður. Umönnun móðurinnar er vissulega líka nauðsynleg eftir að böm hennar stækka, en á allt annan hátt, og alls ekki æskilegt, að sé um of, allra sizt eftir að þau fara að heiman. Sé ekki stór hópur af börnum, 36 19. J ONl
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.