19. júní


19. júní - 19.06.1957, Blaðsíða 40

19. júní - 19.06.1957, Blaðsíða 40
PETRlNA JAKOBSSON: Lög um barnavernd 25 dra Á þessu sumri eru liðin 25 ár frá því Alþingi samþykkti lög um barnavernd. Samkvæmt þeim voru kosnar barnaverndarnefndir i öllum kaup- stöðum á landinu, en skólanefndum falin barna- vemdarmál í sveitum. Lögin voru staðfest af Krist- jáni konungi X. þ. 23. júní 1932. Lög þessi voru að nokkru leyti samin eftir lög- um um þessi mál á Norðurlöndum, sem verið höfðu í gildi í Noregi frá 1896, í Svíþjóð frá 1902 og í Danmörku frá 1905. Hér á landi voru fram að þessu nokkur ákvæði á fátækralögunum um að fátækrastjóm ásamt við- komandi ráðuneyti eða valdsmanni væri skylt að athuga og fylgjast með aðbúð og uppeldi barna. Sérstaklega var þó tekið fram: óskilgetinna barna og sjúkra. Framkvæmd þeirra ákvæða og það vald, sem fátækrastjórnir og hreppsnefndir þar með höfðu yfir fátækum og munaðarlausum, áttu oft litlum vinsældum að fagna. Einstæðingum eða vangæf- um einstaklingum var ekki ósjaldan holað þar nið- ur, sem hagstæðast þótti fjárhirzlu hreppsins. Það var ekki fyrr en 1947, þegar barnaverndar- lögin vom endurskoðuð, að upp í þau voru tekin ákvæði, sem áttu að tryggja, að umhyggja fyrir velferð barnsins væri látin ráða, þegar dvalarstað- ur var ákveðinn, en ekki hagsmunir sveitarfélags- ins. 1 niðurlagi 23. gr. laganna segir um ráðstöfun barna: „. . . . enda er óheimilt að vista slík börn á öðmm heimilum en þeim, sem barnavemdar- nefnd sú, er í hlut á, samþykkir“. Fram að þeim tíma kom oft til ágreinings, hvort heimilið ætti að taka, það sem fátækrafulltrúinn mælti með, eða hitt, sem nefndin átti völ á. Með barnaverndarlögunum voru öll ákvæði varð- andi vernd og velferð bama sameinuð í ein lög og bamaverndarnefndunum fengið töluvert vald í þeim málum, sem. hafið var yfir hið þrönga svið, sem fjárhirzlan setti venjulega. Fyrsti kafli laganna telur upp hlutverk þeirra í stórum dráttum. Ég tek hann hér upp, af því að konur hafa yfirleitt ekki handbær lögin. 1. kafli. Vernd bama og unglinga tekur yfir: 1. Almennt eftirlit með aðbúð og uppeldi á heim- ilum. 2. Eftirlit með hegðun og háttsemi utan heimilis. 3. Ráðstöfun í vist, í fóstur, til kjörforeldra eða á sérstakar uppeldisstofnanir. 4. Eftirlit með uppeldisstofnunum, svo sem barna- hælum, dagheimilum, leikskólum, sumardvala- heimilum, fávitahælum fyrir börn og ung- menni o. s. frv. 5. Eftirlit með börnum og ungmennum, likam- lega, andlega eða siðferðislega miður sín. Koma einkum til greina börn og ungmenni, blind, málhölt, fötluð, fávita og á annan hátt vangef- in, svo og börn og ungmenni, sem framið hafa lögbrot eða eru á annan hátt á siðferðislegum glapstigum. 6. Vinnuvernd. 7. Eftirlit með skemmtunum. Með lögum þessum var einnig skipað Barna- verndarráð, eða Yfirbarnaverndarnefnd, eins og það var nefnt. Það fer með æðsta vald í öllum þeim málum, er lögin taka til, um allt land. Ef einstaklingur sættir sig ekki við úrskurð eða ráðstöfun nefndanna, getur viðkomandi áfrýjað málinu til ráðsins og fengið það tekið upp aftur. Barnavemdarnefndir um allt land eru skyldar að senda ráðinu árlega skýrslur um störf sín. Fram að fyrra stríði voru atvinnuhættir lands- manna að mestu bundnir við landbúnað. Kaup- staðir ekki fjölmennari en svo, að öll börn þaðan gátu átt þess kost að dvelja í sveitunum við rækt- un, skepnuhirðingu og framleiðslustörf, sem um 38 19. JfJNl í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.