19. júní - 19.06.1957, Síða 44
hana siðferðiski'öfu, því að það færist nú æ meira
í vöxt, að fólk hætti við að gifta sig vegna þess-
arar skattalagningar á hjónabönd, þar sem þann-
ig hagar til, að hjónin vinna bæði utan heimilis,
sem nú er orðið mjög algengt.
Tvö frumvörp um sérsköttun hjóna liggja nú
fyrir Alþingi, og hver svo sem örlög þeirra verða,
má gera ráð fyrir, að þetta vandamál leysist á þessu
ári eða því næsta, þar sem fjármálaráðherra hefur
lofað að skipa milliþinganefnd í málið, ef það ekki
verður leyst á því Alþingi, er nú situr.
Barnavernd og skólamál hafa lengi verið á dag-
skrá hjá félaginu, og hefur verið komið á samvinnu
foreldra og skóla við tvo af barnaskólum bæjarins.
Þannig mætti lengi halda áfram að telja upp
áhugamál félagsins. Kvennatíma útvarpsins annað-
ist félagið hálfsmánaðarlega í um 10 ár, eða þang-
að til þeir voru felldir niður.
50 ár eru ekki langur tími í lífi þjóðar, en þessa
síðastl. hálfa öld hefur íslenzkt þjóðlíf tekið þeirri
stökkbreytingu, að fágætt má teljast, og hafa kon-
urnar ekki látið sinn hlut eftir liggja.
Fyrir 50 árum mátti það heita undantekning,
að konur stunduðu utan heimilis annað en ströng-
ustu erfiðisvinnu, en vegna þeirrar þróunar, er
orðið hefur í opinberri þjónustu, verzlun og iðnaði,
getur þjóðfélagið ekki verið án þátttöku þeirra í
atvinnulífinu.
LaunajafnréttiS hefur verið eitt af aðalbaráttu-
málum K.R.F.Í. allt frá því að það beitti sér fyrir
stofnun Verkakvennafélagsins Framsóknar árið
1913. Á afmælisdegi félagsins afhenti félagsmála-
ráðherra, Hannibal Valdimarsson, formanni félags-
ins bréf, þar sem hann skýrði frá, að ríkisstjórnin
mundi leggja fyrir Alþingi þingsályktun um full-
gildingu á samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunar-
innar frá 1951 um jöfn laun karla og kvenna fyrir
störf af sama verðmæti. Þingsályktun þessi hefur
nú verið samþykkt á Alþingi og má því vænta,
að brátt verði bætt úr því misrétti, sem konur hafa
orðið að þola hingað til í þessum efnum, og það
þvert ofan í skýlaus lagafyrirmæli, svo sem greint
er frá á öðrum stað í þessu blaði.
Afmœlissýning. Sunnud. 27. janúar var opnuð
bóka- og listsýning kvenna í „bogasal“ þjóðminja-
safnsins, og sýndi forsetafrú Dóra Þórhallsdóttir
félaginu þá vinsemd að vera verndari sýningar-
innar og opnaði hana með hlýlegri ræðu. Einnig
talaði við þá athöfn menntamálaráðherra, Gylfi Þ.
Gíslason, og sagði m. a.: „Það var afbragðs hug-
mynd að minnast þessa merka afmælis með list-
sýningu, með kynningu á skerfi íslenzkra kvenna
til íslenzkrar menningar. Baráttan fyrir auknum
kvenréttindum hefur verið árangursrík. En þessi
réttindi hafa ekki verið markmið í sjálfu sér, frem-
ur en önnur mannréttindi. Þeim hefur jafnframt
verið ætlað að vera gróðurmold, sem fagrir og
nytsamir ávextir á sviði lista og vísinda gætu
sprottið úr, og þau hafa reynzt það. Þau hafa orð-
ið grundvöllur fegurra og fjölbreyttara lífs.“
Formaður gat þess í ávarpi sínu við opnun sýn-
ingarinnar, að vegna takmarkaðs húsrúms hefði
ekki verið unnt að hafa þar allar þær bækur, er ís-
lenzkar konur hafa skrifað, en að gerð hefði verið
bókaskrá, þar sem skráðar eru eftir beztu getu
allar bækur, blöð og tímarit, sem konur hafa ritað
og gefið út síðastliðin 156 ár. Aðsókn að sýning-
unni var góð, miðað við veður og færð, en einmitt
þessa daga geisaði óvenjulegt óveður, stormur og
fannkoma. Rithöfundar lásu úr verkum sínum
flesta daga eða kvöld þann tíma, sem sýningin var
opin. Hafa þau erindi síðan komið í útvarpi. Þá
hafði félagið einnig útvarpskvöld til að minnast
liðinna 50 ára. Afmælishóf félagsins sóttu 136 kon-
ur þrátt fyrir slæmt veður.
Landsfundur K.R.F.I.
Vegna aldarafmælis Bríetar Bjarnhéðinsdóttur
var Landsfundi K.R.F.l. 1956, sem venjulega hef-
ur verið haldinn í júní, frestað þangað til í sept-
ember. Var hann haldinn dagana 22.—27. sept.,
og eru ályktanir hans birtar hér á eftir.
Einn daginn sóttu fundarkonur boð forsetahjón-
anna að Bessastöðum. Kvöldið 26. sept. flutti Aðal-
björg Sigurðardóttir í útvarp erindi það, sem birt
er í blaðinu. Sigríður J. Magnússon flutti kveðjur
frá erlendum kvenréttindakonum og átti viðtal við
Védísi Jónsdóttur og Þóru Vigfúsdóttur um kynni
þeirra af B. B. og starfi hennar. Arnheiður Sig-
urðardóttir las upp úr verkum Bríetar. Afmælis-
daginn gengu fundarkonur í fylkingu suður í
kirkjugarð og lögðu blómsveig á gröf Bríetar. Um
kvöldið var fundinum slitið í fjölsóttu og virðulegu
hófi í Tjarnarcafé, en þar hafði fundurinn verið
haldinn.
42
19. JÚNl