19. júní - 19.06.1957, Page 45
mœ
á
tóáýrung-
Ji.tt.3J.
1 tilefni af 50 ára afmæli Kvenréttindafélags
fslands þann 27. janúar 1957, efndi félagið til sýn-
ingar í Bogasal Þjóðminjasafnsins, á bókmenntum,
listaverkum og listiðnaði kvenna.
Höfuðtilgangur sýningarinnar var sá, að vekja
athygli almennings á því, livað mikinn skerf kon-
ur leggja til menningar þjóðarinnar með verkum
sinum, ekki hvað minnst á sviði bókmennta og lista.
Tilgangurinn var einnig sá, að sanna að aukin
réttindi konum til handa hefur skapað þeim aukna
möguleika til þess að þroska hæfileika sína og hafa
áhrif á sköpun menningar samtíðarinnar.
Stærsti þáttur sýningarinnar var sýning á bók-
um, sem íslenzkar konur hafa skrifað.
Þar voru sýndar bækur eftir konur, sem skrif-
að hafa allt frá fjögra síða bæklingum til skáld-
verka, sem telja 2189 blaðsíður. Auk þess voru
sýnd tímarit, blöð og safnrit.
f þessu safni gaf að líta sjaldséðar bækur og
merkar. Til dæmis var þar fyrsta ljóðabókin, sem
út kom eftir íslenzka konu, Júlíönu Jónsdóttur,
prentuð á Akureyri 1876, fyrsta húsmæðrafræðslu-
bókin, sem út kom, „Vasakver fyrir heldri manna
húsfreyjur",. gefin út af frú Assessorinnp Mörtu
Maríu Stephensen i Leirárgörðum árið 1800 o. fl.
o.fl.
Ýtarleg bókaskrá var einnig gefin út með sýn-
ingarskrá, og teljum við það töluverðan feng, að
hafa í einni skrá allar ba'kur og rit, sem konur
hafa gefið út. En höfundar eru um 300 og auk
þess hafa konur gefið út um 40 tímarit, blöð og
safnrit.
Margvíslegur hstiðnaður var einnig til sýnis,
svo sem silfursmíði, allt frá hefðbundnum stíl víra-
virkisins til nútíma stils. Bókband, útskurður, postu-
linsskreyting og margt fleira var einnig til sýnis.
Síðast en ekki sízt var töluvert af vcrkum fær-
ustu listamanna okkar íslendinga, kvenna, sem
haslað hafa sér völl bæði hér heima og víða um
lieim, með verkum sínum. Til dæmis má nefna
myndhöggvarana Gerði Helgadóttur, Nínu Sæ-
mundsson, Ólöfu Pálsdóttur og Gunnfríði Jóns-
dóttur, og málarana Nínu Trvggvadóttur, Júlíönu
Sveinsdóttur, Guðmundu Andrésdóttur, Karenu
Agnete Þórarinsson, Grétu Björnsson, Barböru
Árnason og Vigdisi Kristjánsdóttur, sem sýndi
myndvefnað.
Sýningin var opin frá 27. janúar til 3. febrúar.
Á kvöldin kynntu konur ritverk sín eða fluttu fyr-
irlestra:
Þann 28. janúar fluttu skáldkonurnar Elinborg
Lárusdóttir og Margrét Jónsdóttir verk eftir sig.
30. janúar flutti Ragnheiður Jónsdóttir rithöf-
undur frumsamið efni, en Guðrún Ólafsdóttir flutti
erindi um stúdentalíf í Osló.
31. janúar flutti Selma Jónsdóttir listfræðingur
43
19. JtJNl