19. júní - 19.06.1957, Side 46
BROSTNIR HLEKKIR
Þessar félagskonur hafa hátizt síðan blaðið kom
út í fyrra:
Þórdís Jónsdóttir Carlquist, f. á Hofi í Svarfaðar-
dal 19. okt. 1879, d. 7. nóv. 1956. Hún lærði ung
ljósmóðurfræði bæði í Reykjavík og Kaupmanna-
höfn. Var skipuð ljósmóðir í Reykjavík 1. nóv. 1904
og gegndi því starfi í 45 ár, oft við erfið skilyrði,
fyrstu árin a. m. k. Þórdís var mjög farsæl i starfi
sínu og elskuð og virt af öllum, sem nutu hjálpar
hennar. Hún giftist 1915 Axel V. Carlquist kaup-
manni í Reykjavík. Mann sinn missti Þórdís árið
1922.
GuÖrún Halldórsdóttir, f. 3. des. 1894 í Reykja-
vik, d. 6. ág. 1956. Hún var áhugasöm um félags-
erindi með skuggamyndum: Konan í íslenzkri
myndlist, en Halldóra B. Björnsson rithöfundur
las frumsamið efni.
1. febrúar las Þórunn Elfa rithöfundur frumsam-
ið efni og Vigdís Kristjánsdóttir flutti erindi um
listvefnað.
2. febrúar flutti Guðrún Helgadóttir kennari er-
indi: Fjallkonan í íslenzkum bókmenntum, og Val-
borg Bentsdóttir las frumsamda smásögu og kvæði.
3. febrúar, síðasta dag sýningarinnar, fluttu þær
skáldkonurnar Arnfríður Jónatansdóttir, Jóhanna
Friðriksdóttir og Sigríður Einarsdóttir frá Munað-
arnesi kvæði.
Sýningunni var mjög vel tekið og oft var mikill
fjöldi áheyrenda á kvöldvökunum.
I sýningarnefnd voru þessar konur: Sigríður J.
Magnússon, formaður, Bjarnveig Bjarnadóttir,
Guðný Helgadóttir, Soffía Ingvarsdóttir og Valborg
Bentsdóttir.
Kvenréttindafélagið þakkar öllum þeim mörgu
konum og körlum, sem lögðu sinn skerf til þess að
sýningin varð svo myndarleg sem raun varð á.
mál, átti lengi sæti í „19. júni“-nefndinni, er safn-
aði fé til Landsspítalans. Starfaði í Mæðrastyrks-
nefnd og var lengi í stjórn hennar. Hún gekk ótrauð
að hverju verki, er henni var trúað fyrir, þar á
meðal fjársöfnun fyrir Hallveigarstaði.
GuÖrún Ólafsdóttir, f. 14. des. 1892 í Reykjar-
firði, N.-Isafjarðarsýslu, d. 5. maí 1957. Stundaði
húsmæðrakennaranám í Noregi, og var húsmæðra-
kennari víða á Vestfjörðum. I 6 ár var hún for-
stöðukona Sjúkrahúss Akureyrar og 4 ár barna-
heimilisins í Laugarási. 1917 giftist hún Bjarna
Hákonarsyni frá Reykhólum og eignuðust þau 7
börn. Hún var áhugakona um kvenréttindamál
eftir að hún fluttist til Reykjavikur. Einnig starf-
aði hún mikið fyrir Húsmæðrafélag Reykjavíkur.
Jósefína Rósantsdóttir, f. 18. janúar 1902 á Saur-
um, Vindhælishreppi, Húnavatnssýslu. Fluttist til
Reykjavíkur 1920. Giftist 1930 eftirlifandi manni
sínum, Birni Andréssyni. Hófu þau búskap að
Leynimýri í Fossvogi og bjó hún þar til dauðadags
15. des. 1956. Þau hjón eignuðust 3 börn, sem öll
eru á lífi og eiga heima í Leynimýri. Hún hafði
mikinn áhuga fyrir kvenréttindamálum og fylgd-
ist með þeim af lifi og sál, þótt hún gæti eigi beitt
sér við þau eins og hún óskaði, vegna þess að hún
var lengst af fremur heilsuveil.
Engilborg Helga SigurÖardóttir, f. 19. maí 1896
að Ölvaldsstöðum í Borgarfirði, dáin 29. marz 1957.
Fluttist ung til Reykjavíkur með foreldrum sínum.
Hún giftist 9. okt. 1915 Helga Gugmundssyni, nú-
verandi umsjónarmanni með kirkjugörðum Reykja-
víkur. Þau eignuðust 7 börn, öll mannvænleg.
Auk þess sem hún var félagi í Kvenréttindafélagi
Islands o. fl. kvenfélögum, starfaði hún af miklum
áhuga í Góðtemplarareglunni.
44
19. JÚNl