19. júní - 19.06.1957, Blaðsíða 47
Fulltrúar á 9. Landsfundi K.R.F.I. í boSi forsetahjónanna aS BessastöSum.
Tiilögur samþykktar á Landsfundi Kvenréttindafélags íslands 1956
Atvinnu- og Iauniiniál:
I. 9. Landsfundur K.R.F.l. skorar á rikisstjórnina að gera
nú }>egar nauðsynlegar róðstafanir til }>ess að samþykkt
Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, um jöfn laun kai'la
og kvenna fyrir jafnverðmœta vinnu, geti orðið stað-
fest ó Islandi.
Til þess að hraða framgangi þessa mannréttindamáls
skorar fundurinn á rikisstjórnina að skipa nefnd, er
vinni að undirbúningi þess. Fundurinn œskir þess, að
í nefndinni eiga sæti, meðal annarra, konur, sem til-
nefndar séu af Alþýðusambandi Islands, Bandalagi
starfsmanna rikis og bæja og Kvenréttindafélagi Is-
lands.
Jafnframt vill fundurinn leggja áherzlu á það, að á
meðan þessu lokamarki er ekki náð, skuli þvi beint til
}>eirra kvenfélaga, sem fara með launamál félaga sirrna,
að beita sér fyrir því, að bilið milli kvenna- og karla-
kaups styttist að verulegu leyti, og heitir Kvenréttinda-
félag Islands að styðja það mál af fremsta megni.
II. Þar sem vitað er, að stærsta hluta þjóðartekna er afl-
að með landbúnaði, fiskveiðum og iðnaði, telur fund-
urinn nauðsynlegt, að þessum höfuð-atvinnugreinum
séu sköpuð heilbrigð vaxtai'skilyrði, er ti-yggi aukna at-
vinnu og aukin þjóðarverðmæti.
Telur fundurinn því bezt náð með því:
a) að fiskurinn sé ekki sendur óunninn úr landi,
b) að afla nýrra atvinnutækja til lands og sjávar,
c) að komið sé upp fiskiðjuverum víðar á landinu, og
þau nýtt til fulls, sem fyrir eru,
d) að komið yrði upp verksmiðjum til vinnslu á ýms-
45
19. JÚNl