19. júní - 19.06.1957, Side 48
um efnum úr fiskúrgangi, svo sem plastefni o. fl.,
svo og verksmiðjum, er vinni úr ýmsum landbún-
aðarafurðum, svo sem úr garðávöxtum,
e) að innflutningur á nauðsynlegum hráefnum til iðn-
aðar verði aukinn og tollum af þeim létt, svo inn-
lendi iðnaðurinn verði samkeppnisfær við sams
konar innfluttar vörur og sparaður með því útlend-
ur gjaldeyrir.
III. Fundurinn telur aðkallandi, að skipulögð sé vor- og
sumarvinna fyrir námsfólk og unglinga, til þess að
námsfólk geti gengið að ákveðnu starfi, er skólum
lýkur.
Vegna þess, hve mikil eftirspurn er sums staðar eftir
vinnuafli við framleiðslustörfin snemma á vorin, vill
fundurinn beina því til fræðslumálastjórnarinnar,
hvort ekki sé þörf ó því, að námstími unglinga sé eitt-
hvað breyttur fró þvi, sem nú er, þar sem svo hagar til.
IV. 9. Landsfundur K.R.F.I. skorar á ríkisstjórnina að láta
rannsaka, hvernig jafnréttisákvæði laga um réttindi
og skyldur starfsmanna ríkisins eru í framkvæmd, og
láta fara fram endurmat á þeim störfum hjá ríkis- og
bæjarfélögum, sem hingað til hafa verið vanmetin til
launa með tilliti til þess, að þau hafa verið talin
kvennastörf, svo sem störf ljósmæðra, talsimakvenna,
hjúkrunarkvenna, vélritara o. fl. Fundurinn væntir
þess, að athugun þessi sé framkvæmd af konum og
körlum, og leitað sé álits K.R.F.l. og B.S.R.B. með val
kvenna til starfsins.
V. 9. Landsfundur K.R.F.Í. skorar á stjórn félagsins að að-
stoða Ljósmæðrafélag Islands eftir föngum við að fó nú
þegar endurmetin kjör félaga þess og bætt til sam-
ræmis við kjör annarra opinberra starfsmanna.
Tryggingamúl:
I. Grunnupphæð bamalífeyris verði hækkuð um allt að
50% (sbr. næstsíðustu málsgr. 17.gr. Tryggingarlag-
anna).
II. Barnalifeyrir vegna munaðarlausra bama verði greidd-
ur tvöfaldur (sbr. siðustu málsgr. 17.gr. Tryggingar-
laganna).
III. Felld verði niður síðasta málsgr. 22. gr., er veitir heim-
ild til skerðinga á lífeyrisgreiðslum.
IV. Árlegur ellilífeyrir sé eigi lægri en % hluti árslauna
Dagsbrúnarverkamanns. Sama gildi um örorkulífeyri
eftir því sem við á. (Sjá 13.gr.).
V. 13. gr. verði breytt í það horf, að hjón njóti sama elli-
lífeyris sem tveir einstaklingar.
VI. Tryggingarstofnuninni sé heimilt, ef sérstaklega stend-
ur á, að lóta rétt til ellilífeyris ekki falla niður við
sjúkrahússvist allt upp í 26 vikur (sjó 59.gr.).
VII. Ellilifeyrisþega, sem missir maka sinn, skuli greiddar
bætur. Sama gildi um örorkulífeyrisþega.
VIII. Dánarbætur slysatrygginganna almennt verði hinar
sömu og dúnarbætur lögskráðra sjómanna.
IX. Hjónum sé greiddir sjúkradagpeningar eftir sömu reglu
og öðmm einstaklingum, og gildi það um gifta konu,
hvort sem hún vinnur utan heimilis eða eigi. (Sjá sein-
ustu málsgr. 53. gr.).
X. Heimilað verði, ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi,
að greiða mæðralaun einstæðum mæðrum, sem hafa
eitt barn á framfæri sinu.
XI. Tekinn verði aftur inn í lögin kafli um heiisugæzlu,
sem komi í stað þess, er felldur var niður við endur-
skoðun laganna.
XII. Fundurinn telur aðkallandi nauðsyn að koma upp fyr-
ir öryrkja: Vinnuheimilum, vinnumiðlun og verkþjólf-
un, ásamt leiðbeiningum um nám og starfsval. Allra
ráða sé leitað til að fyrirbyggja örorku. Jafnframt lýs-
ir fundurinn ánægju sinni yfir að hafizt hefur verið
handa um þessi mál.
XIII. Fundurinn vekur athygli á nauðsyn þess, að laga-
ákvæði um innheimtu barnsmeðlaga verði færð í það
horf, að þau verði innheimt mánaðarlega af launum
á sama liátt og útsvör, og skorar á rikisstjórn og Al-
þingi að taka þetta atriði til meðferðar og úrlausnar
þegar á þessu ári.
Skattamál:
I. 9. Landsfundur K.R.F.Í. skorar á rikisstjórnina að gera
svo fljótt sem auðið er nauðsynlegar róðstafanir til þess
að breyta þeim ákvæðum í gildandi skattalögum, sem
„ofþyngja hjónum í opinberum gjöldum" miðað við
aðra skattþegna, og torvelda stofnun hjónabanda. Enn-
fremur sé þess gætt, að einstæðum foreldrum með börn
á framfæri sé ekki gert að greiða hærri skatt en hjón-
um með jafnháar tekjur.
Fundurinn telur nauðsyn, að skipuð sé nú þegar
nefnd, til þess að vinna að undirbúningi málsins, með
það fyrir augum, að það geti hlotið afgreiðslu ó næsta
Alþingi.
Til nefndarstarfa sé valið jafnt konur og karlar
Fundurinn beinir þeim tilmælum til væntanlegrar
nefndar, að hafa tillögur 8. landsfundar og 5. fulltrúa-
ráðsfundar K.R.F.I. til hliðsjónar við störfin, eftir því
sem við verður komið.
Fundurinn felur stjórn K.R.F.I. að semja greinargerð
með tillögum þessum og treystir henni til að fylgja
málinu fast eftir.
II. 9. Landsfundur K.R.F.l. beinir þeim tilmælum til ríkis-
stjórnarinnar, að framkvæmd skattalaganna sé gerð
einfaldari en verið hefur, t. d. með staðgreiðslukerfi,
þar sem miðað sé við tekjur þess árs, sem skatturinn
er innheimtur á.
Áfengismúl:
I. 9. Landsfundur K.R.F.I. leggur áherzlu á nauðsyn
þess, að unnið sé gegn ofnautn áfengis. Telur fundur-
inn mikilvægt, að þeim málum sé fyllsti gaumur gef-
inn og hvetur til aukinnar bindindisstarfsemi í landinu.
II. Þá telur fundurinn nauðsynlegt, að haldið sé uppi
öflugri fræðslu um skaðsemi áfengis fyrir andlega og
likamlega heilbrigði manna, og hvetur æskulýðs- og
menningarfélög til þess að stuðla að ófengislausu
skemmtanalífi.
III. Fundurinn lýsri ánægju sinni yfir vaxandi skilningi á
nauðsyn þess ,að rekin sé í landinu starfsemi til hjálp-
ar og lækningar drykkjusjúku fólki, og þakkar þeim
aðilum, sem hafa haft forgöngu um að hún kæmist á.
Jafnframt skorar fundurinn ó rikisstjórn og Alþingi,
að láta fram fara gaumgæfilega athugun á því, á
hvern hátt bezt megi samræma með lögum þær ýmsu
tilraunir, sem gerðar hafa verið í þessum efnum af
46
19. JtJNl