19. júní - 19.06.1963, Qupperneq 43
HVERNIG ÁÉG AÐ LOSNA VIÐ EIGINMANNINN
Nokkur undanfarin ár hefur varla verið hægt
að opna svo blað eða tímarit hér á landi, að ekki
blasti við manni hjartnæmar og viturlegar ráð-
leggingar í 10—20 liðum með gleiðletraðri fyrir-
sögn:
Hvernig á ég að fara að því að halda í eigin-
manninn?
Samkvæmt þessum ráðleggingum, er þeirri
sjálfsafneitun, sem konum ber að sýna, í sam-
skiptum við eiginmanninn, lítil takmörk sett. Einn-
ig eru gefin mörg óbrigðul ráð, hvernig fara skuli
að því að klófesta sér eiginmann með sem allra
lævísustum hætti. Og auðvitað er gengið út frá
því sem gefnu, að hver einasta eiginkona setji
það ofar öllu að ríghalda í þann mann, sem henni
hefur tekist með brögðum að klófesta til eignar.
Hvernig svo sem maðurinn er, þá hljóti það að
skifta mestu máli að láta hann ekki ganga sér úr
greipum, og sjálfsagt réttlætismál að beita til þess
öllum hugsanlegum ráðum.
Saumaklúbbur einn tók mál þetta til umræðu.
Þóttu ráðin að vísu góð, en nokkuð einhliða, því
ekki gilti sama nú og fyrr á tímum, meðan kon-
um var lífsnauðsyn að halda dauðahaldi í eigin-
menn sína, þá var hjónabandið svo að segja eina
staðan, sem konur gátu átt völ á, brygðist það,
var tæpast um annað að ræða, en að verða þurfa-
lingur ættingja sinna. Nú á dögum er konan ekki
dæmd til útskúfunar úr samfélaginu, þótt hún af
einhverjum ástæðum kjósi ekki að deila borði og
sæng með sama karlmanni ævilangt. Hún getur
jafnvel borið höfuðið hátt, þó hún leyfi sér það, að
eignast barn hjónabandslaust.
Að öllu þessu athuguðu tók saumaklúbburinn
það ráð að snúa sér til fjölvísrar konu og fela
henni að semja haldgóðar ráðleggingar fyrir þær
eiginkonur, sem vildu gjarnan losna við eigin-
mennina á sem vansaminnstan hátt. Fara hér á
eftir nokkur af ráðum völvunnar:
1) Láttu sem þú sért afbrýðisöm, til að minna
hann á, að hann sé maður til að ganga í augu ann-
arra kvenna.
2) Nöldraðu í honum sýknt og heilagt, ekki sízt
þegar hann vill eiga rólega stund heima.
3) Láttu hann bursta skóna og festa tölurnar
sjálfan og hafðu aldrei til handa honum heila
sokka, en minntu hann þó sífellt á, að engin önn-
ur gæti búið honum eins gott heimili og þú.
4) Láttu hann finna, að þú álítir hann sjálfsagða
eign þína, sem þú þurfir ekkert að hafa fyrir að
halda í, en láttu hann þó gruna, að þér sé ekkert
um það, að hann sé að gjóa augunum til annarra
kvenna.
5) Notaðu gáfur þínar og menntun, þó þú sért
gift manni sem hefur hvorugt til jafns við þig.
6) Láttu sem oftast í það skína í áheyrn vina
ykkar og kunningja, að þú standir honum sízt að
baki andlega.
7) Haltu öl'lu í svo mikilli röð og reglu á heim-
ilinu, að honum finnist sér alls staðar ofaukið.
8) Bjóddu heim ógiftum vinkonum þínum og
gefðu þeim tækifæri til að hlusta á gáfulegt tal
hans og laxveiðisögur, meðan þú subbast í eld-
húsverkunum illa tilhöfð.
9) En þegar þú ert orðin örugg um að losna
við hann, þá láttu samt í það skína, að þú munir
sakna hans ofurlítið, því það er ekki gustuk að
láta hann fara í burtu óánægðan með sjálfan sig.
Það er vissast að taka það fram, að eitt eða tvö
af þessum ráðum gera í fæstum tilfellum mikið
gagn, en ef þú getur tileinkað þér að minnsta
kosti sex þeirra, eru meiri líkindi til, að áform
þitt heppnist, en ef þú ferð eftir þeim öllum, get-
urðu verið örugg um að fórnardýrið hypjar sig
fljótlega.
19. JÚNÍ
41