19. júní - 19.06.1963, Side 48
strax og lokið er endurskoðun samnorrænu sifja-
laganefndarinnar á hjúskaparlögunum.
Samþykkt var að senda eftirfarandi ábending-
ar til milliþinganefndar, sem vinnur að endur-
skoðun lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins:
A. að réttur maka til lífeyris eftir fráfall sjóð-
félaga eigi ekki að falla niður, þótt hjúskap sé slit-
ið að lögum og sjóðsfélagi hafi stofnað til nýs
hjúskapar. Lífeyrissjóðsgreiðslum sé skipt hlut-
fallslega milli eftirlifandi maka sjóðsfélaga.
B. að ekki sé rétt að fella niður lífeyrissjóðs-
réttindi fyrir maka, enda þótt sjóðsfélagi hafi
verið orðinn 60 ára, er hann gekk í hjúskap.
C. að greiðslur úr lífeyrissjóði starfsmanna rík-
isins og öðrum lífeyrissjóðum, eigi ekki frekar en
aðrar tekjur manns, að skerða rétt til ellilífeyr-
is skv. lögum um almannatryggingar.
D. að ósanngjarnt sé, að lífeyrissjóðsgreiðslur
til eftirlifandi maka séu háðar aldursmun hjóna.
E. að lífeyrisgreiðslur vegna barna látins sjóðs-
félaga greiðist að minnsta kosti til 18 ára aldurs,
sé unglingurinn við nám.
Um úthlutun listamannalauna var gerð svo-
hljóðandi samþykkt:
„Fundurinn mótmælir harðlega úthlutunarað-
ferðum á hinum svokölluðu listamannalaunum í
ár og undanfarin ár, bæði almennt, en þó sér-
staklega, að því er tekur til listamannalauna
kvenna“.
Mál sitt studdi fundurinn með rækilegri grein-
argerð, er lauk með áskorun á Alþingi og rík-
isstjórn, að sjá um að framvegis eigi jafnan kon-
ur sæti í nefnd þeirri, sem sér um úthlutun
listamannalauna, svo að sjónarmið kvenna geti
komið þar fram.
Aðaldeild K.R.F.Í. heldur fundi mánaðarlega
frá því í október þangað til í maí að báðum mán-
uðum meðtöldum, auk þess sem fundur er jafn-
an haldinn í septembermánuði með kvenréttinda-
nefndum úr Reykjavík og nágrenni. Hóf er og
ætíð haldið með ýmis konar skemmtiatriðum 19.
júní. Er öl'lum konum þar heimill aðgangur. Hin
síðari ár hafa vesturíslenzkar konur fleiri eða
færri jafnan setið það hóf.
A öllum fundum félagsins nema aðalfundi eru
rædd ýms mál, er segja má, að ekki varði félagið
sérstaklega. Á fyrsta fundi félagsins síðastliðið
haust, októberfundinum, flutti Laufey Olsen er-
indi um starfsemi Diakonissu-systra í söfnuðum
vestan hafs. Á næsta fundi töluðu 9 menntaskóla-
stúlkur, 17 — 21 árs að aldri, um sín sjónarmið
varðandi réttindi kvenna í þjóðfélaginu. Var hluti
af þeim ræðum flutt í útvarpinu í þættinum „Við
sem heima sitjum.“
Fundurinn í desember er venjulega nefndur
jólafundur og liggja þá sjaldan ákveðin umræðu-
efni fyrir, ennfremur er flutt eitthvert skemmti-
atriði. I vetur var þó nokkuð út af þessu breytt,
því að fluttar voru fréttir af réttindamálum
kvenna erlendis.
Janúarfundinn má telja mjög merkan fund. Þar
flutti Hákon Guðmundsson, hæstaréttarritari, að
tilhlutan félagsstjórnarinnar, erindi um ættleið-
ingar, þróun þeirra mála hérlendis og ættleiðing-
arlöggjöfina sem er tiltölulega nýleg. Spunnust
miklar umræður um þetta mál, ekki aðeins á
fundinum heldur og í blöðum, eins og kunnugt
er.
I febrúar var svo haldinn aðalfundur félagsins
að venju og vannst þar ekki tími til annars en
nauðsynlegra félagsstarfa.
Á marzfundi voru ræddar breytingartillögur
við lögin um almannatryggingar, sem lagðar voru
fyrir síðasta alþingi og nokkrar samþykktir gerð-
ar, er alþingi voru sendar.
I apríl flutti Helga Níelsdóttir erindi um starf-
semi hjálparstúlkna heimilanna. Var það mál auð-
vitað rætt allmikið.
Á fundinum í maí, sem verður síðasti fundur
þessa starfstímabils, heldur Magnús Gíslason,
námsstjóri gagnfræðastigsins í Reykjavík, erindi
um skólakerfi landsins.
A landsfundi 1960 var kosin útvarpsnefnd, er
skyldi hafa með höndum að sjá um útvarpsdag-
skrá félagsins, bæði fyrir 19. júní og fyrir merkja-
söludaginn 27. september. Auk þess skyldi nefnd
þessi leitast við að koma því til vegar, að konur
kæmu oftar fram í útvarpi en raun er á. Hefur
nefndin gert tillraunir í þá átt, bæði með því að
skrifa útvarpsráði og senda uppástungur um ýms
efni og benda á konur, er fást mundu til flutnings
á efninu, auk þess sem kvenfélögum var skrifað og
þau beðin að benda á konur á sínu félagssvæði,
sem fáanlegar væru til þess að flytja einhvers
konar efni í ríkisútvarpinu. Hafa tilraunir þessar
þó eigi borið neinn árangur enn sem komið er,
svo að vitað sé. Að öðru leyti er alþjóð kunn
störf nefndarinnar viðvíkjandi dagskrám þeim,
sem fluttar hafa verið á vegum félagsins síðan
nefndin tók til starfa.
46
19. JÚNÍ