19. júní - 19.06.1972, Blaðsíða 5
K.R.F.l. var stofnað 27. janúar 1907 og varð því
65 ára í byrjun þessa árs. Félagið hefur alla tíð
unnið að fullu jafnrétti karla og kvenna. Lagalega
séð má segja, að jafnrétti sé nokkurn veginn náð,
en í framkvæmd viil verða misbrestur þar á, svo
sem þegar um stöðuhækkun er að ræða, þá er það
karlmaðurinn, sem situr í fyrirrúmi.
Nafn félagsins gefur hreint ekki rétta hugmynd
um tiigang þess, því það hefur unnið og vinnur að
almennum mannréttindum, en engum sérréttind-
um konum til handa.
Með tillögum sínum og ábendingum hefur félag-
inu tekizt að hafa áhrif á löggjöf þjóðarinnar og
má þar til nefna tryggingarlögin og skattalögin
auk annara. Einnig fær K.R.F.I. lagafrumvörp og
þingsályktunartillögur til umsagnar frá þing-
mönnum og sýnir það traust og virðingu þá, sem
félagið hefur áunnið sér.
Þegar blaðað er í 19. júní, blaði félagsins, má
glöggt sjá og fylgjast með þeim málum, sem unnið
hefur verið að, ár eftir ár, og hvernig þau hafa náð
í höfn á endanum.
Erfitt hefur verið að kveða niður aidagamla
siði og fordóma í þessu sambandi, en það ætti að
ganga betur nú, þegar unga fólkið teiur jafnrétti
sjálfsagðan hlut og ræðir og ritar um hvernig hægt
sé að framkvæma jafnrétti svo vel fari. Heimilið,
f jölskyldan, má ekki líða fyrir það og einstakling-
urinn ekki heldur, en þjóðfélagið samanstendur af
báðum þessum aðilum.
Á þessu afmælisári K.R.F.I. eru allar líkur til að
verði brotið blað i sögu félagsins, því samþykkt
var á aðalfundi þess í vetur að leyfa karimönnum
inngöngu í félagið. Landsfundurinn í sumar á svo
eftir að samþykkja það líka, sem hann gerir áreið-
anlega, og er það ágæt afmælisgjöf.
L. S.
Sigríður
J. Magnússon
áttræð
Frú Sigríður J. Magnússon var fædd þ. 5. júní
1892 í Otradal í Arnarfirði. Foreldrar: Séra Jón
Árnason prestur í Otradal, og kona hans Jóhanna
Pálsdóttir frá Dynjanda. — Þann 1. janúar 1969
var S. J. M. sæmd riddarakrossi Fálkaorðunnar
fyrir félagsmálastörf. Þá kom viðtal við frú Sig-
ríði í ,,19. júní“, ársriti K.R.F.Í., eftir Sigríði Ein-
ars frá Munaðarnesi. Þar sem í þessu viðtali er að
finna ítarlegar upplýsingar um ævi og störf frú S.,
þá vísast hér til þessarar ágætu greinar.
Þegar frú S. er minnzt, er það ekki aðeins vegna
virtra foreldra, góðs uppeldis og þjóðfrægs eigin-
19. JÚNÍ
3