19. júní - 19.06.1972, Blaðsíða 27
tvisvar í viku frá klukkan 1—6 e.h., annan dag-
inn er klúbbstarfið, en alla miðvikudaga er „opið
hús“. Liggja þá frammi spii, töfl, dagblöðin, viku-
rit o.s.frv. Skemmtiatriði eru flutt um kaffileytið
flesta miðvikudaga, eða fluttir stuttir fyrirlestrar
um þau mál, sem komið gætu eldri borgurum að
gagni. Hafa allir skemmtikraftar, bæði einstakling-
ar og hópar, skemmt þar endurgjaldslaust. Upp-
lýsingarþjónusta er þar einu sinni í viku og einnig
útlán bóka frá Borgarbókasafninu.
Smáferðalög og skoðunarferðir.
Yfir sumarmánuðina hefur verið efnt til smá-
ferðaiaga, t.d. í fjörulífsskoðun, fuglaskoðun,
grasaferð, kynnisferð um Reykjavík o.s.frv. Einnig
hafa verið heimsótt öll söfn í Reykjavík og ná-
grenni. Þessar ferðir eru aðallega farnar í júní
og júlímánuði.
Sjálfboðaliðar.
öll þessi félagsstarfsemi er rekin í náinni sam-
vinnu við sjálfboðaliða frá 10 kirkjufélögum
kvenna í Reykjavík, Rauða kross konum og eldri
skátum. Er sú samvinna framúrskarandi góð og
algjörlega ómetanleg. Annast sjálfboðaliðar fata-
geymslu, þjónustu við kaffiveitingar og öll þau
margvíslegu störf, sem vinna þarf, þegar stór hóp-
ur er saman kominn, t.d. eru oftast á 3ja hundrað
manns á miðvikudögum og eru sjálfboðaliðar þá
rúmlega tuttugu.
Félagsstarf í Norðurbrún.
Telja verður mjög æskilegt að auka þessa starf-
semi og standa nú vonir til að það takist, er jarð-
hæð íbúðarbyggingarinnar við Norðurbrún, sem
áður var nefnd, verður tekin í notkun. Mun þar
verða aðstaða til að auka að mun f jölbreytni fé-
iagsstarfsins. Er nú verið að vinna að innréttingu
þess húsnæðis.
Vonandi verður nú einnig aðstaða til að auka
þann þátt félagsstarfsins, sem ætla mætti, að karl-
menn hefðu meiri áhuga á, þar sem margir þeirra
klúbba, sem nú eru starfandi, em vinsælli meðal
kvenna. Vonandi verður nú t.d. unnt að opna
smíðastofu með öllum nauðsynlegum tækjum til af-
nota fyrir þá, sem þess óska.
Með því að bæta hag elztu kynslóðarinnar í
dag reynum við, sem yngri erum að greiða upp í
þá skuld, sem aldrei verður að fullu greidd.
Kaffidrykkja í Tönabæ. Kaffi og brauÖ dagsins kostar fjörutíu og fimni krónur.
19. JÚNÍ
25