19. júní


19. júní - 19.06.1972, Blaðsíða 42

19. júní - 19.06.1972, Blaðsíða 42
held ég, að oft á tíðum verði þörf áfarmhaldandi samvinnu við nágrannaþjóðir okkar á þessu sviði. En hve^ finnst þér, að eigi að vera framtíðar- stefnan í máium áfengissjúklinga hér á iandi? Auk hinnar fyrirhuguðu byggingar við Víf- ilsstaðahæli er nauðsynlegt að koma upp þjálfun- arstöðvum á borð við Reykjalund fyrir áfengis- sjúklinga og mætti samræma aðgerðir á þvi sviði af fjárhagsástæðum. Einnig þyrfti að koma upp ,,vernduðum vinnustöðum“ fyrir þá, sem hafa skerta starfsorku af völdum áfengisneyzlu, eins og aðra öryrkja. Líka er nauðsyn á vistheimilum fyr- ir 10—15 manns, þar sem þeir áfengissjúklingar gætu dvalizt, sem lokið hefðu að vera í endurhæf- ingu og ekki eiga fjölskyldu. Ekki er nauðsyn- legt að einskorða þessi heimiii við áfengissjúkl- inga. Þegar setja á mann í lækningu vegna áfeng- isneyzlu getur komið til sjálfræðissviptingar, sem reynir mjög á aðstandendur, þar sem sú skylda er lögð þeim á herðar í núgildandi lögum, að æskilegt sé, að þeir fari fram á slíkt, ef viðkomandi óskar ekki eftir því sjálfur. Eru nokkrar breytingar, sem gera mætti til bóta í þeim efnum? Komið hefur fram hugmynd um, að koma mætti á fót óhlutdrægri nefnd sérfróðra manna, sem hefði úrskurðarvald í slíkum málum, og þyrfti þá ekki að bíða dóms, sbr. lög um berklasjúklinga og lög um barnaverndarnefndir. Síðan öðluðust menn sjálfræði sjálfkrafa aftur að lækningu lok- inni. Einnig hafa heyrzt raddir um, að fela ætti stofnun eða nefnd, að taka að sér skyldur lög- ráðamanns, þar sem það viil oft og tíðum vera ó- vinsæit fyrir einstaklinga að taka sér slikar skyld- ur á herðar. Nú er komið fram yfir miðnætti, senn tekur að birta á ný, og enginn veit, hvað morgundag- urinn kann að bera í skauti sínu. 1 rann og vrrn <rl és* aA AA-Kamlökín hafi hjargaö lifi iiiiiin Ég held, að það uppeldi, sem ég fékk, hafi bjarg- að mér frá algjörri glötun, þar sem ég var alin upp á algjöru regluheimili hjá trúuðu fólki, enda þótt við byggjum við kröpp kjör, eins og þá var títt. Þótt ég lenti sjálf úti í þeim vitahring að drekka, var það samt andstætt mínum hugsunar- hætti og lífsviðhorfum, eiginlega í andstöðu við ailt, sem ég hefði viljað. Oft geta lítilfjörleg atriði valdið þvi, að fólk lendi út í drykkjuskap, þar sem oft getur lítil þúfa velt þungu hlassi. Ég hafði aldrei bragðað vín og aldrei hugsað mér að drekka, alveg þangað til ég var á nítjánda ári. Þá kynntist ég manni, sem ég síðar giftist, og var hann tíu árum eldri en ég. Hafði hann þá þegar drukkið mikið og lengi. Við bjuggum í húsi með hjónum, sem við höfðum mik- ið samband við. Voru þau hjónin bæði mikið gefin fyrir skemmtanir og drukku talsvert. Sjálf gat ég skemmt mér á eðlilegan hátt án þess að drekka. Þessi hjón bæði og maðurinn minn einnig voru alltaf að klifa á því, að ég væri leiðinleg, þar sem ég hagaði mér ekki eins og „siðuð manneskja“, af því að ég gæti ekki haldið á glasi. Leiddist mér þetta. Og finnst mér nú, að ég hafi verið áhrifa- gjörn að láta þetta á mig fá. En hver dregur dám af sínum sessunaut, og lét ég leiðast til að fá mér glas. Þetta glas hefur valdið mér miklu böli. Frá þvi að þetta gerðist, hefi ég verið meira og minna við di-ykkju í tuttugu og sjö ár, að vísu ekki mikið í byrjun. En þessi drykkja mín þróaðist upp í það að verða mér fjötur um fót. Þannig held ég, að það sé hjá flestum. Samt tel ég, að til sé fólk, þótt teljandi fátt sé, sem getur neytt víns í hófi. Min drykkja var farin að valda mér geysilegum vand- ræðum, þegar áfengislöngunin var orðin svo sterk hjá mér, að hún sótti á mig, þegar öll skynsamleg rök mæltu gegn því, að ég drykki, þar sem ég var vinnandi manneskja. Á miðjum vinnudegi gat grip- ið mig svo sterk löngun í áfengi, að ég lét undan, þótt ég vissi, að ég yrði f jarverandi úr vinnu, jafn- vel heila viku. Löngu áður en ég kynntist AA-samtökunum, var ég farin að gera mér grein fyrir því, að ég stóð á barmi glötunar. Skömmin og niðurlægingin yfir að hafa lent út i drykkjuskap var svo mikil, að ég var alltaf að reyna að dylja mitt raunvenjlega 40 19. JÚNÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.