19. júní


19. júní - 19.06.1972, Blaðsíða 29

19. júní - 19.06.1972, Blaðsíða 29
Vigdís Finnbogadóttir tekur við starfi leikhússtjóra Leikfé- lags Reykjavíkur 1. sept. 1972. Auðvitað er ég bjartsýn. Ég er þannig spákona að mér sýnist alltaf vera að koma betra veð- ur. Og mér dettur ekki í hug að þeir karlar, sem í þessari sumar- byrjun kvenna hafa þá ábyrgð að veita öðrurn ábyrgðarstöður, séu svo vanþroska og ábyrgðar- lausir að þeir velti því fyrir sér sérstaklega hvort um karl eða konu er að ræða, ef þeir teija að manneskja geti unnið eitt- hvert verk. Hitt er svo annað mál hvort kvenfólk vill axla ábyrgð í þjóðfélaginu. þessu starfi var lögð hjúkrunar- menntun, það sótti enginn karl- maður um það, og þvi var ekkert val milli kynja. Ég er mikill rauðsokkur, og tel, að barátta kvenna til jafns við karla sé fyrst og fremst bar- átta fyrir mannréttindum. Ingibj. B. Magnúsdóítir. Steinunn Finnbogadóttir tók við starfi sem aðstoðarmaður fé- iagsmálaráðherra um síðustu áramót. Hún segir: I-Iví skyldi ég ekki vera bjart- sýn á möguleika kvenna til jafns við karia. Bjartsýni var beinlinis lífsakkeri þess byggðarlags sem fóstraði mig, en ég er fædd og uppalin í Bolungarvik. — Án hennar hefði óblíð bai'átta sjó- mannsins ekki skilað þeim arði, sem var og er hornsteinn af- komu og menningar á Islandi. — Án hennar hefðu jafnréttishug- sjónir vinnandi fólks aldrei náð að þróast svo sem raun ber vitni og — án bjartsýni ná konur aidrei því marki sem þær stefna að í þjóðfélagslegri aðstöðu. Aukin réttarvitund og stór- bætt menntunarskilyrði kvenna, hljóta að leiða til vaxandi hlut- deildar þeirra í opinberum störf- um. öllum er nú ljóst, að almættið mismunar ekki kynjunum hvað gáfnafar snertir og mannkosti. Það var glæsilegt 1908 að koma 4 konum í bæjarstjórn, en þar gætti sérstöðu. Það er í eina skiptið, sem hreinn kvennalisti hefur verið borinn fi’am. Áiit mitt er, að síðan hafi ekki verið stigið spor aftur á bak í jafnréttismálum kvenna, heldur þvert á móti, og nú munu vera 23 konur í sveitarstjórnum viðsveg- ar um landið. Kvenréttindabaráttan hefur verið háð í áratugi og oft verið hörð og stundum virzt vonlítil. Þessi barátta hefur þó skilað miklum árangri og eru ávextir hennar smám saman að koma í ljós. Þannig eru þær stöðuveit- ingar, sem hér er rætt um í for- mála, aðeins rökrétt afleiðing þess mikla starfs, sem unnið hef- ur verið í jafnréttismálum kvenna. Hér er aðeins um einn áfanga að ræða, ef svo mætti að orði komast, ekki þann fyrsta og áreiðanlega ekki þann síðasta. öll byrjun er erfið og þróun kvenréttindamála var hæg fram- an af, en trú mín er sú, að þessi þróun muni á næstu árum sigla hraðbyri og þess verði ekki langt að bíða að konur skipi til jafns við karla háar stöður sem lágar, ef við sjálfar viljum láta það verða svo — minnugar orða skáldsins Einars Benediktssonar: „Reistu í verki viljans merki, — vilji er allt, sem þarf.“ Steinunn Finnbogadóttir. 19. JÚNÍ 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.