19. júní


19. júní - 19.06.1972, Blaðsíða 25

19. júní - 19.06.1972, Blaðsíða 25
Ellilífeyririnn í dag. Ellilífeyrir hefur farið ört hækkandi. Samkvæmt lögum um almannatryggingar, sem tóku gildi þann 1. janúar s.l., er sérhverjum ellilífeyrisþega (þ.e. 67 ára og eldri) tryggðar lágmarkstekjur, sam- kvæmt 19. grein þessai’a laga, en hún hljóðar þann- ig: ,,Nú eru tekjur elli- eða örorkulífeyrisþega lægri en kr. 120.000.00 á ári, og skal þá hækka lífeyri hans um það, sem á vantar þá f járhæð. Sama gildir um hjónalífeyri, eftir því sem við á. Heimilt er að greiða frekari uppbót á elli-eðaör- orkulífeyri, ef sýnt þykir, að lífeyrisþegi geti ekki komist af án þess. Við ákvörðun um hækkun líf- eyris samkvæmt 1. og 2. málsgrein hér að framan skulu umsóknir um hækkun rökstuddar t.d. með skattaframtölum. Ennfremur skal höfð hliðsjón af því, hvort eignum bótaþega hefur verið ráð- stafað með þeim hætti, að það valdi synjun hækk- unar. Að fengnum tillögum tryggingarráðs setur ráð- herra reglugerð um framkvæmd lífeyrishækkunar samkvæmt þessari grein.“ Samkvæmt þessu skal greiða sérhverjum ellilíf- eyrisþega, sem ekki hefur aðrar tekjur en elli- lífeyri, kr. 10.000.00 á mánuði, en hins vegar þarf að sækja um þessa tekjutryggingu, eins og allar aðrar bætur, til Tryggingarstofnunar ríkisins. Lífeyrir hjóna, sem bæði fá ellilífeyri, skal nema 90% af lífeyri tveggja einstaklinga. Tekjutrygg- ing hjóna, sem bajði fá ellilífeyri ogekki hafa aðrar tekjur, er því kr. 18.000.00 á mánuði. Hafi ellilíf- eyrisþegi hins vegar einhverjar aðrar tekjur en ellilífeyri, fer ellilífeyririnn lækkandi, en ellilíf- eyrir einstaklings skal þó aldrei vera lægri en kr. 6.468.00 á mánuði. Er hér gerð tilraun til þess að bæta með lögum hag þeirra, sem verst eru settir, þótt þetta sé engan veginn endanleg lausn. Þessi lagagrein kemur sérstaklega illa við þá, sem hafa vinnulaun allt að kr. 3.500.00 á mánuði, sem dragast frá lögboðinni tekjutryggingu (þ.e. kr. 10.000.00 á mán.) Sá ellilífeyrisþegi, sem hefur kr. 3.500.00 á mánuði í atvinnutekjur, fær kr. 6.468.00 í ellilífeyri. Hætta er því á, að lög þessi dragi úr starfslöngun þeirra, sem hafa skerta starfsorku, þar sem ekki er hægt, samkvæmt lögum þessum, að bæta fjárhag sinn með litlum vinnutekjum. Samkvæmt 2. málsgrein þessarar lagagreinar er heimilt að greiða ellilífeyrisþega hærri lífeyri en kr. 10.000.00 á mánuði, ef sýnt þykir, að lífseyris- þegi geti ekki komizt af án þess. Skal þá sérstak- lega sótt um þessa uppbót til Tryggingarstofnun- ar ríkisins. p* 4 n 'TfM 1 ffi >m\ ' ■ MiSvikudagur í Tónabœ. 19. JÚNÍ 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.