19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1972, Qupperneq 6

19. júní - 19.06.1972, Qupperneq 6
manns, heldur fyrst og fremst hennar eigin verð- leika. Hún fór snemma að sinna margháttuðum fé- lagsmálum, svo sem Lestrarfélagi kvenna, Hjúkr- unarfélagi Líknar og Mæðrastyrksnefnd. Þekkt- ust ef til vill er frú S. fyrir störf sín í K.R.F.I., þar sem hún var formaður frá 1947—1964. 1 áður áminnztu viðtali er þess vegna mest f jall- að um mikilvæg störf frú S. á opinberum vettvangi, en aðeins iítillega minnzt þeirra ára, sem hún var húsmóðir á Vífilsstöðum, eiginkona Sigurðar Magnússonar yfirlæknis og seinna prófessors. En niðurlagsorð viðtalsins gefa í skyn, hve þau ár voru frú S. mikill hamingjutími. Hún segir svo: ,,Ég hef alltaf kunnað vel við mig hér í Reykja- vik, en þó eru það tveir aðrir staðir, sem togast á í huga mínum, hraunið, vatnið og hlíðin á Vífils- stöðum og fjöllin í Arnarfirði. Þótt ég hafi víða farið um ævina, hef ég hvergi séð þeirra líka“. Höfundur þessarar greinar dvaldist sem barn hluta úr sumri á heimili frú S. Þetta var árið 1920. Læknisbústaðurinn var þá svo til nýreistur, stór- glæsilegt hús á þeirra tíma mælikvarða, og jafnvel enn í dag. Mér er í barnsminni, þegar við móðir mín komum fyrst inn í anddyrið. Þar voru veggir hvítir, en breiður eikarstigi lá upp á loftið. Skrifstofa prófessorsins var á hægri hönd, þá inn var gengið, og prýddu bækur þar alla veggi. Við dymar að skrifstofunni hékk á veggnum stórt isaumað teppi, gert af frú S. eftir fyrirmynd frá Þjóðminjasafninu, svokallað Riddarateppi, mjög mikið verk. Þegar komið var inn í stássstofuna, blöstu við meiri og bjartari gluggar en ég hafði áð- ur augum iitið. Þarna inni voru dökkrauðar pluss- mublur af ríkmannlegustu gerð, og allt annað í stofunni eftir því. Þá var frú Sigríður ung og í blóma lifsins. Hún var há og grönn, ákaflega reisuleg, dökkbrýnd, og með litaraft, sem gerir útslagið um fegurð kvenna. Hún bar tiginmannlegt fas og glæsileiki hennar varð mönnum minnisstæður. Þó man ég bezt eftir þeirri móðuriegu hlýju, sem einkenndi hana öllu öðnj fremur. Sjaldan hafði ég séð þvílikt heimili, þar sem allt bar að því eina, að mynda heild hamingju allra, sem þar voru, hvort heldur áttu í hlut húsbændur, börn, hjú eða gestir. Þetta sumar man ég eftir móður frú Sigríðar, sem mun hafa dvalið þar um sinn. Frú Jóhanna var stórhöfðingJeg kona og elskuieg í viðmóti. Þeg- ar hún sat við hlið dætra sinna þriggja, þeirra Sig- ríðar, Ragnheiðar og Svanhildar, þá voru þar sam- ankomnar einhverjar þær fegurstu mæðgur, sem ég minnist að hafa séð. Mér var sagt seinna, að séra Jón, faðir Sigríðar, hafi verið fagur maður, og að Sigríður hafi líkzt honum í ásýnd. Hann hafði verið einstakt góð- menni, og í eftirmælum um hann var vitnað í hið forna latneska ljóði: Integer vitae scelerisque pu- rus —. Hinn vammlausi —. Þannig virtist frú S. á þessum árum einhver sú farsælasta manneskja, sem hugsazt gat. Góðleiki og virðuleiki foreldranna, gáfur og mikilleiki eig- inmannsins — elskulegu og failegu litlu börnin —. öll þessi gæfi féll frú S. í skaut og hún umvafði þetta allt með elskusemi og tign, eins og drottning í sínu farsæla ríki. Mér er hún enn i minni, vorkvöldin löng, þar sem hún sat í einföldum hvítum kjól við gluggann í stofunni sinni, fögur sem álfkona. Stundum var hún að sauma, eða þá að lesa í bók. Hún var líka að tala um bækur, annað hvort við manninn sinn eða hinar ma^gurnar — og jafnvel við ellefu ára telpuna úr Hafnarfirði. Enn man ég, þegar frú Sigríður lánaði mér þriðja bindið af Þús- und og einni nótt, en það hafði ég ekki séð áður. Þá fékk frú Sigríður mér enn bók, Fornar ástir. Það nafn fyllti hugann undarlegum trega. Sannleikur- inn var sá, að þau prófessorshjónin keyptu víst all- ar þær bækur, sem þá komu út á íslenzku, og hvöttu sína heimamenn til lestrar. Þessi ólýsanlega rómantík, sem fylgdi Fornum ástum, settist að í huganum og festist í því landslagi, sem umkringdi þessa bókarkynningu. Þar skeðu allir hlutir í austri, átt morgunroðans. Einhvern veginn rann þetta allt saman, og það varð kvöldskinið að vori Vífilsstaða, sem minn- ingin geymir. Hlíðin og vatnið, rjóð í aftanskini og svanasöng, þar sem ung og sæl kona situr við gluggann og horfir í ró og kyrrð fagurrar sálar yfir úfið hraun til bjartrar stjörnu á austurleiðum. Þannig man ég þig bezt, Sigríður J. Magnússon. Margir munu minnast þín með þökk og virðingu á þessum tímamótum ævi þinnar. Sigurveig GuSmundsdóitir, Hafnarfirði. 4 19. JÚNÍ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.