19. júní


19. júní - 19.06.1972, Síða 32

19. júní - 19.06.1972, Síða 32
Hvað vilt þú segja okkur um hjónin í leikritinu? — Lárus er pabbinn í verkinu og fær ekki svigrúm til neins meira. Hann er barn- góður sjómaður og því mjög eðlilegt að hann gefi sér góðan tíma með börnunum. — Við þurfum ekki annað en fara í tuttugu ára gamalt hús til að finna svipaða konu og mömmuna, Elinu. Hún sker sig þó úr sem sjómannskona, þar sem hún er aldrei ánægð með að hafa mann sinn á sjónum. Hún er, og sú eina í f jölskyldunni, sem er á móti barninu, en telur alla þurfa að standa ábyrga gerða sinna. — Úti á við eru þau ósköp typisk hjón. Finnst þér æskilegt hlutverk Elínar á heimilinu? Ég held, að við þurfum gæta okkar mjög í uppeldinu, þegar konan er heima og maðurinn úti að vinna. Uppeldið ýtir mikið undir kynjamismuninn og hlægilega mikið í sambandi við barneignir þessara barna síðar meir. Konan hefur og „ten- dens“ til að halda barninu svolítið „privat" fyrir sig, en föðurhlutverkið er ekki síður mikilvægt. Er það eitthvað sérstakt, sem þú vilt koma á framfæri um leikritið? Nei, ég tel, ef leikritið hefur náð settu marki, ekki þörf á að skýra neitt sérstakt atriði úr því. Lárus: Svona þú ert kominn heim. Þú hefðir átt að skrifa okkur. Maria: Það virtist svo tilgangslaust að skrifa. Þegar þau höfðu sýnt mér vanþóknun sína í nokkrar vikur, fannst mér nœst- um því þeir hafa á réttu að standa. Elín: Þetta hlýtur að vera áfall fyrir alla. Ég veit ekki, hvað ég á að segja. Birna: Þegiðu þá. 30 19. JÚNÍ

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.