19. júní - 19.06.1972, Page 35
Hvers konar persónuleika telur þú Sigrúnu vera?
Hún er miklu þverari og þrjózkari en systur hennar og á erfitt með að aðlagast.
Það er ekki víst að Sigrún nái því gamla keppikefli konunnar að verða hamingju-
söm og ég býst ekki við að hún myndi sjá eftir gerðum sinum.
Nú vill Sigrún læra og hafnar því manninum, sem biður hennar, en tekur að sér
barn systur sinnar?
Sigrún vill ekki binda sig, áður en hún hefur fullnægt námsþörfum sínum og hún
myndi alltaf leita sér að jafningja. Hún lifir ósjálfrátt eftir því, sem hún telur
siðferðilega rétt, þótt hún segist hafa hugsað málið og þess vegna vill hún hjálpa
systur sinni.
Telur þú rétt að bæta aðstæður námskvenna og annarra til að koma börnum sín-
um fyrir á dagheimilum eða leikskólum?
Tvímælalaust. Ég hef unnið úti hálfan og heilan vinnudag og haft mann í námi
og ekki í námi og haft börn á leikskóla. Og ég segi bara': Hvar er sú móðir, sem
gefur sér 2—3 tíma á dag til að lesa, syngja o. s. frv. fyrir þau?
— Annars finnst mér undarlegt, hvað konur hafa lítið skipað sér í hópa. Konur
eru yfirleitt heldur grimmari og kaldrifjaðri en karlar og þær hafa þurft meira á
því að halda, þar sem þær hafa staðið einar uppi og oft á móti hóp, og þurft að
berjast fyrir réttindum sínum.
Árni: Ekki slál ég, hvers vegna ég er að eltast við pig, sem
aldrei getur verið eins og annað fólk.
Sigrún: Er nauðsynlegt að vera eins og aðrir, hugsa eins og
aðrir, lifa eins og aðrir.
Árni: Ég kem ekki aftur.
Sigrún: Nei.
Árni: Vertu ekki svona helvíti prjózk. Þig langar, komdu með.
Sigrún: Nei.
19. JÚNÍ
33