19. júní


19. júní - 19.06.1974, Page 11

19. júní - 19.06.1974, Page 11
-— I Kulusuk er dönsk herstöð. Hermennirnir hafa gefið fólkinu matvæli og bjór. Grænlendingar hugsa öðru vísi en við. Þeir eru nægjusamir. Hér- aðsfólkið er að deyja út, það dugmeira flyst á brott. Það er óheppilegt að Islendingar skuli eingöngu sjá fólkið í Kulusuk, því að aðrir staðir eru betri til þess að átta sig á grænlensku þjóðinni. Þessi þjóð er svo nálæg okkur, en þekking okkar á henni ótrúlega takmörkuð. Ýmsir býsnast yfir ástandi mála þarna, en hvaða skoðun sem maður hefur á því, hvemig cg hvers vegna þróunin á Grænlandi hefur orðið á þennan veg, hlýtur niðurstaðan að verða sú, að Grænlendingum sé nauðsyn að fá að átta sig á brevt- ingunum sjálfir. Grænlendingar eru yfirleitt öllu lágvaxnari en Is- lendingar og áberandi handnettir og fótsmáir. Það getur að líta bláeyga og skolhærða Grænlendinga, jafnvel með liðað hár, enda er nokkuð langt síðan blöndun þeirra við aðra kynþætti hófst. Reynsla min er sú, að Grænlendingar séu mjög gott og vingjarnlegt fólk og vaxi hver af kunnings- skap við þá. Þeir eru glaðlyndir og sérlega trúræknir. Gömlu trúarbrögðin eru úr sögunni, fólkið er vel kristið og kirkjurækið svo af ber. Stundum þarf að koma fvrir hátalara utan kirkjunnar, vegna þess að ekki komast allir inn, sem messu vilja hlýða. En maður verður var við það, að unga fólkið vill breytingar, það hefur ekki áhuga á þvi að græn- lenskt þjóðfélag haldi áfram í sama horfinu. Marg- ir virðast ala með sér sterkar þjóðernistilfinningar og óska þess að losna undan stjórn Dana. Enda er hað mála sannast, að hjá Dönum gætir kynþátta- fcrdóma pcagnvart Grænlendingnm, þeir virðast eiga erfitt með að líta á þá sem menn. Að lokum get ég bætt því við, að mjólkurþambandi Islendingum bregður í brún er beir gista Grænland, þar er enga mjólk að fá, því kýrfóðrið vantar. Þun-- mjólk er eina úrræðið. Fjárbúskapur Grænlendinga á líka erfitt uppdráttar, en kindur þeirra eru allar af islenskum stofni. Það er svo rétt að ég upplýsi, að við vorum fjórir Islendingarnir í Julianehab þennan veturinn, — raf- virki, ég og tveir íslenskir hestar. Ég þakka Ragnhildi Ingólfsdóttur fyrir spjallið, hún hefur stundað nám i Loftskeytaskólanum síðast- liðinn vetur og mun halda ]iví áfram. Og ráðin er h\in í því að heimsækja Grænland á nýjan leik að loknu námi. GuSrún G. Stephensen ^JdundiK l?uö'(droc)a 'T Kyndill kvöldroðans J gullrauðum bjarma horfir liið óræða til þín í lieillandi fegurð sólarlags meðan ástheitur kyndill kvöldroðans dansar á skýjabólstrum við sjóndeildarhring ailó En eilífðarvonin réttir fram hvíta arma og krækir mjóum fingrum í litbrigðarikan skikkjufaldinn sem stígur upp af glóandi kyndli lækkandi sólar fetar sig léttstíg á bláum haföldum i'it við yzta sjónbaug til að hverfa i faðm hinnar glóðheitu hverfandi sólar til að sameinast bláma geimsins á vit stjarnanna Vonin blíða sem líður frá brjósti litillar mannveru á fjarlægri plánetu sóldýrðarinnar miklu Og mannveran sem býr á sinni köldu jörð hefur ornað sér við yl þeirrar sóldýrðar sem liverfur þegar kyndill kvöldrcðans hefur vafið bláhvelið undursamlegum blæbrigðum í hitaiiða litklæða sinna Sigríður Einars frá Muna'Öarnesi 19. JÚNÍ 9

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.