19. júní


19. júní - 19.06.1974, Blaðsíða 31

19. júní - 19.06.1974, Blaðsíða 31
Frá félagsstarfinu Á síðasta starfsári 1973 hafa verið haldnir 6 félagsfundir og 11 stjórnarfundir. Auk þess var að venju haldinn fundur í september með konum úr Reykjavík og nágrenni, til undir- búnings merkjasölu Menningar- og minningarsjóðs kvenna. Aðalefni á félagsfundum var: Á marsfundi flutti Bryndís Víglundsdóttir, skólastjóri, er- indi um fjölfötluð börn og kennslu þeirra. Aðallega skiptast þessi börn í 4 hópa: Börn, þeirra mæðra, sem fengu rauða hunda á meðgöngutímanum og börnin ]>vi með skerta heyrn og brenglaða sjón. — Börn með hreyfihömlur og heyrnarlitil eða sjónlítil. — Börn, stiflömuð og andlegur þroski hefur orðið á eftir. -—■ Börn, sem eru lömuð og með heyrnartapi. Á maifundinum var rætt um þátttöku kvenna í stjómmál- um og hvað hægt væri að gera til að auka hana. Framsögu- erindi fluttu: Salóme Þorkelsdóttir og Steinunn Finnbogadótt- ir. Til fundarins var boðið formönnum fulltrúaráða og for- mönnum kvenfélaga stjórnmálaflokkanna, ennfremur konum, sem sæti eiga á Alþingi og i borgarstjórn Reykjavikur. Á októberfundinum flutti Anna Sigurðardóttir erindi, sem hún nefndi: Verkakonur á Islandi í ellefu hundruð ár. A nóvemberfundinum var fundarefnið: Fjölmiðlar og áhrif þeirra. Framsöguerindi fluttu: Margrét Bjarnadóttir, um dag- blöðin og áhrif þeirra á lesandann. — Þorbjörg Jónsdóttir, um könnun á útbreiðslu blaða og lestur. — Aðalbjörg Jakobsdótt- ir, um könnun á áhrif fjölmiðla á börn. Á desemberfundinum flutti Sigurveig Guðmundsdóttir jóla- hugvekju. Elin Guðmundsdóttir, Geirlaug Þorvaldsdóttir og Katrín Árnadóttir fluttu ljóð og spiluðu undir á fiðlu og píanó. Bergþóra Gústafsdóttir, fóstra, sýndi ýmislegt jólaföndur. Fundur var haldinn með kvenréttindanefndum að vanda i september, vegna merkjasölunnar. Ekki var neinn fulltrúi frá K.R.F.l. á alþjóðafundinum á Indlandi i nóvember s. 1. En fundinum var send skýrsla um starf K.R.F.l. Á fund Samtaka norrænna kvenna, sem haldinn var í Finn- landi í júní fóru fjórir fulltrúar K.R.F.I.: Anna Sigurðardóttir, Auður Auðuns, Brynhildur Kjartansdóttir og Sigriður A. V aldimarsdóttir. Æviminnigabók Menningar og minnigarsjóðs kvenna kom út á s. 1. vetri. Það er fjórða bindi og er i breyttu formi. Aðalfundur K.R.F.l. var haldinn i febrúarlok. Ein lagabreyting var samþykkt á aðalfundi þess efnis, að almennir félagsfundir skulu vera á timabilinu frá október til maí eigi færri en þrir auk aðalfundar. Varaformaður Ásta Björnsdóttir baðst eindregið undan end- urkosningu og i hennar stað var kosin Bi-ynhildur Kjartans- dóttir. Stjórn K.R.F.l. skipa: Guðný Helgadóttir, formaður, Brynhildur Kjartansdóttir, varaformaður, Lára Sigurbjörnsdóttir, Sigriður Anna Valdimarsdóttir, Þóra Brynjólfsdóttir, Fanney Long Einarsdóltir, Guðrún Gísladóttir, Margrét Einarsdóttir, Valborg Bentsdóttir. Frá fundi Alþjóðusmnbands kvenna í Indkindi 1973 Fundurinn var haldinn 7.-14. nóvember 1973. Indira Gandhi forsætisráðherra Indlands setti fundinn. Hún gat þess i ræðu sinni m. a., að þótt einstakar konur í Indlandi gætu komist i háar stöður, þá væru konur þar siður en svo hættar að líða fyrir þær hindranir, sem eru að jafnaði á vegi kvenna til þess að komast áfram. Konurnar væru enn sem fyrr ófrjálsar fjárhagslega og fórnarlömb aldagamalla siða, þrátt fyrir ákvæði laga um jafnrétti. Fjöldinn allur hefði ekki hugmynd um rétt- indin, enda ólæs. Sagt var í Dellii, að þetta væri i fyrsta sinn, sem Indira Gandhi viðurkenndi opinberlega, að hún væri kvenréttinda- kona. Eundargerðin hefir enn ekki komið hingað, en fréttir eru af fundinum í blaði Alþjóðasambandsins, International Wo- men’s News, og i blaði danska kvenréttindafélagsins, Kvinden og Samfundet. Nokkurra af samjiykktum fundarins er þar getið, en tillögnrnar koma aðallega frá 7 fastanefndum sam- bandsins, sem auk stjórnarinnar vinna á milli fundanna, sem haldnir eru þriðja hvert ár. Samþykktirnar eru því starfs- áætlun sambandsins næstu þrjú ár, eða til 1976. Framfarir með samstarfi var kjörorð fundarins. 1 danska blaðinu segir lítillega frá umræðum. Formaður sænska félags- ins, Fredrika Bremar Förbundet, Karin Ahrland, sagði m. a. að enn væri langt i land, að konur og karlar stæðu jafnfætis að starfi innan veggja heimilanna, en hún lagði á það mikla áherslu. að efla ])á samvinnu, þannig að ekki væri bara um að ræða „hjálp“ frá hendi karlmanna. Ung kona frá Sviss, Anna Lísa Turninger, var ekki á sama máli. Hún hafði litla trú á samvinnu við karlmenn. Konur gætu ekki vænst ósvik- innar hjálpar frá þeirn. Af þeim samjiykktum fundarins, sem getið er í fyrrnefnd- um blöðum, er þetta að segja i stuttu máli: Fundurinn hvetur aðildafélög sín að vinna að því af alefli a) að auka hlutdeild kvenna í stjórnkerfi landa sinna, b) að bæta kjör einstæðra framfærenda, c) að auka fræðslu um fjölskylduáætlanir, d) að sett verði í lög ákvæði um, að foreldrar af mismun- andi þjóðerni ákveði sjálfir um ríkisfang barna sinna, en greini þá á um það, skeri dómstólar úr, e) að koma fleiri konum i launanefndir og starfsmatsstjórnir til ]>ess að tryggja það, að konur fái sömu laun og karlar fyrir jafnverðmæt störf, f) að hafa áhrif á, að stúlkur, sem hætt hafa skólanámi of fljótt, leiti sér siðar fullorðinsfræðslu, sem að gagni komi, g) að rannsaka kennslubækur vandlega og leita ]>ar uppi allt misrétti milli karla og kvenna og fá þvi útrýmt úr bókun- um, og auk þess vinna að þvi, að í framhaldsskólum verði tekin upp fræðsla um það misrétti, sem á sér stað milli kynjanna. Undir kjörorðinu — framfarir með samstarfi með hlið- sjón af: jöfnum réttindum og skyldum karla og kvenna væntir fundur alþjóðasambandsins þess, að aðildarfélög vinni að því, að auðæfum heimsins verði jafnar skipt, svo og að þau noti vel árið 1975, sem Sameinuðu þjóðirnar hafa valið sem alþjóSa kvennaár, og hvetji konur um víða veröld, að þær láti ekki sinn hlut eftir liggja til að auka og efla framfarir á sviði félags- og stjórnmála. 19. JÚNÍ 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.