19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1974, Qupperneq 13

19. júní - 19.06.1974, Qupperneq 13
lægsta leyfilegt meðlag með óskil- getnum börnum sínum, það var í apríl 1974 kr. 6.251. Með þess- ari túlkun laganna verður lítið úr því að foreldrar ókilgetins bams beri jafnar skyldur, eða dettur nokkrum manni í hug, að kr. 6.251 sé helmingur framfærslu- kostnaðar barns. Ef móðirin er heppin getur hún komið barninu fyrir á dagheimili til 6 ára aldurs. Á dagheimilum er dvalarkostnað- ur á mánuði kr. 5.800. Fái móð- irin ekki pláss á dagheimili fyr- ir barnið og verði að koma því í fóstur annars staðar, þá er það almennt mun dýrara. Þar fyrir utan skal móðirin sjá fyrir hús- næði, mat, fötum og öðrum þörf- um bamsins. f lögum um afstöðu foreldra til skilgetinna barna, en það em lög nr. 57 frá 1921, er lögð sama skylda á herðar beggja foreldra og er þar enginn greinannunur gerður á skyldum móður og skyld- um föður. Foreldrum báðum saman og hvom um sig er skylt að fram- færa börn sín þangað til þau eru 16 ára gömul. Jafnframt er þeim báðum saman og hvoru um sig skylt að uppala böm sín þangað til þau eru 16 ára gömul. í 19. gr. laganna er svohljóð- andi ákvæði: „Foreldrar skulu, svo sem þeir eru færir um, ala önn fyrir börn- um sínum 16 ára og eldri og mega börnin ekki verða sveitarþurfar meðan þau eiga foreldri á lifi, sem er þess umkomið að annast þau. Söm er skylda bams gagn- vart foreldri.“ Mig langar til að vekja sérstaka athygli á þessu síðast talda á- kvæði, það virðist ekki vefjast fyrir fólki af minni kynslóð og yngra fólki, að foreldrar eigi slcyldum að gegna gagnvart börn- um sínum töluvert fram á full- orðins ár, en þessu sama fólki kann að gleymast, að það hefur sjálft nákvæmlega sömu skyldur gagnvart foreldrum sínum og for- eldrar hafa gagnvart börnum, sem orðin eru 16 ára eða eldri. Framfærslulögin eru númer 80 frá 1947. Verða hér á eftir rakin nokkur ákvæði þeirra laga: 2. gr. „Skylt er hjónum að framfæra hvort annað, meðan hjónabandi þeirra er eigi slitið að lögum.“ 3. gr. „Skylt er foreldrum í félagi og hvoru fyrir sig að fram- færa og ala upp börn sín þangað til þau eru 16 ára.“ 4. gr. „Nú gengur maður að eiga konu þá, er átt hefur áður með öðrum manni barn eða börn, og er honum þá skylt að framfæra og ala upp til 16 ára aldurs það eða þau börn hennar, er ekki hafa náð þeim aldri, enda hafi hún foreldraráð yfir þeim, og helst sú skylda hans, þótt konan deyi, en hverfur ef hjónabandinu er slitið að lögum af öðrum orsökum. Framfærsluskylda föður slíkra barna er eins fyrir það söm og áður en konan giftist þessum manni sínum. Sömu skyldur að sínu leyti hef- ur og kona við börn eiginmanns síns, þau er hann hefur átt með annarri konu, áður en hún giftist honum. Framfærsluskylda móður þeirra barna er einnig hin sama og áður en maðurinn kvæntist aftur.“ 5. gr. „Skylt er kjörforeldri að ala upp og framfæra kjörbarn sitt sem eigið barn og verður eigi krafist framfæris og uppeldis af sönnum foreldrum barnsins.“ 6. gr. „Börn skulu ala önn fyrir foreldrum sínum, ef þau eru til þess fær, að svo miklu leyti, sem lífeyrir samkvæmt lögum um almannatryggingar og aðrar tekj- ur hrökkva ekki til. Á sama hátt skulu foreldrar ala önn fyrir börnum sínum 16 ára og eldri. Sama skylda hvílir á kjörforeldr- um og kjörbörnum.“ Eins og sjá má af þessum ákvæðum, leggja framfærslulögin jafnar skyldur á karla og konur. Lög um réttindi og skyldur hjóna eru númer 20 frá 1923. Áð- ur en þau voru sett giltu hér á landi lög nr. 3 frá 1900 mn fjár- mál hjóna. Fyrir gildistöku lag- anna nr. 3 frá 1900 var gift kona ómyndug, eignir hjónanna urðu að sameign þeirra, félagsbúi, sem maðurinn stýrði á sitt eindæmi. Eftir lögunum frá 1900 var gift kona myndug og hafði forræði yf- ir aflafé sinu af sjálfstæðri at- vinnu. Maðurinn hafði áfram for- ra'ði yfir félagsbúinu, en yfirráða- rétti hans voru nokkur takmörk sett. Samkvæmt lögunum frá 1923 skal vera jafnrœSi mé8 hjónum. Sú eign, sem hvort hjóna um sig flytur í búið, verður áfram eign þess og er hún nefnd hjúskap- areign. Hið sama gildir um eignir, sem maki flytur i bú eftir hjú- skaparstofnun og allt til hjúskap- arloka, þ. e. til skilnaðar að borði og sæng, eða lögskilnaðar, ef þvi er til að drevfa, annars dauða annars hjón. Nema eign hafi ver- ið gerð séreign, en það er hægt með kaupmála og einnig í þeim tilvikum, að annað hjóna hafi hlotið arf og arfleifandi hafi gef- ið þau fyrirmæli í erfðaskrá, að arfur skvldi vera séreign erfingja. Hvor maki um sig á forræði á hjúskapareign sinni, hann og hann einn getur afhent eignina eða skuldfest hana. Þrátt fyrir þetta einkaforræði maka yfir hjúskapareign sinni, þarf þó maki stundum að leita 19. JÚNÍ 11

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.