19. júní


19. júní - 19.06.1974, Page 14

19. júní - 19.06.1974, Page 14
samþykkis hins til ráðstöfunar yfir eign. Það er sérstaklega í sam- bandi við sölu eða veðsetningu á fasteign, búi fjölskyldan á eða í eigninni og ennfremur til sölu eða veðsetningar á lausafé teljist lausaféð til búsgagna á sameigin- legu heimili hjónanna. Um skuldarábyrgðina er einn- ig farin sú leið í lögunum, að skapa hjónunum fjárhagslegt sjálfstæði, sem lýsir sér í því, að maðurinn ábyrgist aðeins sínar skuldir og konan sínar, nema þau hafi með sérstakri yfirlýsingu tekizt á hendur ábyrgð á skuld- um hins. Frá þessu eru þó undan- tekningar, sem m. a. lúta að því, að hvoru hjónanna um sig er sam- kvæmt 12. gr. laganna heimilt á ábyrgð beggja að gera þá samn- inga við aðra, sem nauðsynlegir eru vegna heimilisþarfa og barn- anna og vanalegt er að gera í þeim tilgangi. f 12. gr. laganna er að finna eina ákvæði laganna, sem gerir réttarstöðu karla og kvenna mismunandi, en greinin er svo- hljóðandi: „Meðan sambúðin varir er hvoru hjónanna um sig heimilt á ábyrgð beggja að gera þá samn- inga við aðra, sem nauðsynlegir eru vegna heimilisþarfa eða bam- anna og vanalegt er að gera í þeim tilgangi. Slíkt hið sama gild- ir um samninga konunnar vegna sérþarfa hennar. Samningar þeir, er hér um ræðir, teljast gerðir á ábyrgð beggja lijóna, nema atvik segi öðru visi til. Ef sá, er samdi við annað hjóna, vissi eða átti að sjá, að því var eigi brýn þörf á því er um var samið, þá er hitt hjónanna eigi bundið við samn- inginn." Þarna er fjallað um samninga konunnar vegna sérþarfa hennar, ekki er samsvarandi ákvæði i lög- um varðandi sérþarfir mannsins. Eignir, sem hvort hjóna um sig á, verða hjúskapareign þess og um eignaraðild að hjúskapareign fer i megindráttum eins og um eign ógifts aðila sé að tefla. Við hjú- skaparslit sýnir samstaðan sig þó, þvi að þá er sú regla látin halda sér, að hjúskapareignum, eða öllu heldur nettóandvirði þeirra, er skipt í tvo hluta milli hjónanna og getur t. d. svo farið, að annað sé eignalaust og láti því ekkert af mörkum renna til hins aðilans, en hinn aðilinn eigi eignir, sem hann verður þá að afhenda að hálfu til hins. Hinn 1. janúar 1973 gengu í gildi ný lög um stofnun og slit hjúskapar og samkvæmt þeim lög- um er heimilt við skilnað hjóna að vikja frá reglunni um helminga- skipti og er það sérstaklega i þeim tilvikum, að hjúskapur hafi staðið skamma stund. T ögin um réttindi og skyldur h.ióna cg ^ög’.n um stofnun og slit ú.iúskanar m’ðn við sömu réttar- aðstöðu karla cg kvenna. En lög- in um réttindi og skyldur hjóna T,irðist við það miðuð, að bæði bjónin afli tekna. Við höfum nú btúð við þessi lög í 50 ár, en all- an þann lima hafa víst flest hjón í landinu lifað þannig, að maður- :nn hefur aflað tekna, en konan sinnt heimilisstörfum. Samkvæmt lögunum er það sá, sem aflar tekn- anna, sem hefur ráðstöfunarrétt yfir iekjunum og þeim eignum, sem verða til fyrir tekjurnar. Þ-vnnig, að gifti eignalaust fólk sig 0“ konan afli ekki tekna heldur einunqis maðu.rinn, þá eru allar tekjur og allar eignir búsins hjú- skapareign mannsins og hann einn getur ráðstafað þeim, með áður^reindum takmörkunum, en konan hefur ekki annan ráðstöf- unarrétt en samkvæmt 12. gr. lag- anna, sem áður er rakin. f lögum eru engin ákvæði að því lútandi, að móðir fái við hjónaskilnað frekara forræði barna en faðir, en í langflestum tilvikum fær hún það samt. Sem betur fer, virðast hjón oftast sam- mála um forræði barna og þá langoftast á þann veg, að konan fái þau. Það gengur jafnvel svo langt, að fvrir kemur, að menn sem krefjast skilnaðar vegna drykkjuskapar eða annarra lasta eiginkvenna sinna, svara þá er spurt er um forræði barna, „að konan fái börnin að sjálfsögðu“. En komi það fyrir að hjón séu sammála um, að faðir fái forræði barns, þá mun það algengast, að maðurinn taki einn að sér fram- færslu barnsins. Það kemur fyrir, að hjón, sem eiga tvö börn, koma sér samnn um, að maðurinn hafi annað barnið og konan hitt, oft semja þau þá þannig, að maður- inn sér einn um framfærslu þess barns sem hjá honum er, en greiði meðlag með þvi barninu, sem hjá konunni er. Þá er annað hjóna fer fram á lífeyri frá hinu við hjónaskilnað, þá er það allt.af konan, sem fer fram á lífevri frá manninum, en ekki öfugt. En oft gera konur ekki kröfu til lífeyris við hjóna- skilnað. Það er athyglisvert við skilnað- arsamninga lijóna, að þá er hjón hafa komið sér saman um það, að konan hafi forræði harns eða barna, þá er i langflestum tilvik- um samið um sama meðlag og Tryggingastofnun ríkisins greiðir með föður- eða móðurlausum börnum, það var i júni 1974 kr. 6.250 á mánuði með hverju barni, en eins og að framan hefur verið rakið er bannað með lögum að semja um lægra meðlag. Eftir að Tryggingastcfnun rikisins fór að greiða meðlag með föður- eða 12 19. .JXJNÍ

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.