19. júní - 19.06.1974, Qupperneq 27
okkar. AIH fram á síðasta áratug var litið svo á að
vangefnir ættu að vera á sérstökum stofnunum eða
hælum, þar sem þeim var safnað saman oft mörgum
hundurðum á sama stað. Hér á landi hefur slíkt þó
ekki gerst, en hjá stærri þjóðum var það ekki óal-
gengt. Með vaxandi skilningi á ástandi vangefinna,
meiri þekkingu hvað snertir meðferð og þjálfun and-
lega og líkamlega, hafa viðhorfin verið að breytast
hin siðari ár, m. a. í þá átt að hafa stofnanir minni
en fleiri og hyggja þær upp sem einingar tiltölulega
fámennra hápa. Ennfremur er nú víða erlendis stefnt
að auknum samfélagslegum úrbótum í formi leik-
skóla og annarra dagvistunarstofnana, verndaðir
vinnustaðir eru reistir fyrir þá sem ekki geta unnið
á hinum almenna vinnumarkaði. Sumardvalarheim-
ili og tómstundastarfsemi er talin nauðsynleg þjón-
usta við vangefna ekki síður en heilbrigða. Með
vaxandi félagslegum úrbótum er foreldrum og öðr-
um aðstandendum gert auðveldara fyrir að hafa
vangefin böi-n sín í heimahúsum, ef þau kjósa það
frekar en að vista þau á stofnun til frambúðar.
Hér á landi hefur verið starfrækt aðeins eitt dag-
vistunarheimili, sem tekur við vangefnum ljömum
á forskóla- og skólaaldri, en það er Lyngásheimilið
við Safamýri 5 í Reykjavík. Styrktarfélag vangef-
inna í Reykjavík stofnaði heimilið 1960 og hefur
rekið það siðan. Heimilið var upphaflega ætlað
36 börnum, en vegna mikillar eftirspurnar um pláss
hafa að undanförnu dvalið þar að jafnaði milli 45-
49 vistmenn. Börnin dvelja þarna daglangt frá kl.
9-17, í umsjá þroskaþjálfa og annars sérmenntaðs
starfsliðs, sem veitir ýmis konar þjálfun við hæfi
hvers og eins. Má þar nefna föndur og tónlistar-
„terapy“, bóklega kennslu, ennfremur sundnámskeið
og sjúkraleikfimi.
Óhætt er að fullyrða að skortur er á fleiri dag-
vistunarstofnunum fyrir vangefin böm, ekki að-
eins í Reykjavík heldur og úti um landsbyggðina,
sem stendur illa að vígi livað þetta varðar. Rétt er
að geta þess hér, að vistheimilið Sólborg á Akureyri
hefur einnig tekið börn í dagvist úr næsta nágrenni
heimilisins.
Vistmenn í Lyngási em að meginþorra úr Reykja-
vík, en auk þess njóta þessarar þjónustu börn úr
næstu byggðarlögum, t. d. Hafnarfirði, Garðahreppi
og Kópavogi.
Gert er ráð fyrir að börnin, sem dvelja á Lyngás-
heimilinu geti verið þar til 15-16 ára aldurs, en síðan
eiga þau kost á að vera í Bjarkarási, sem er vinnu-
og dagvistarheimili fyrir fullorðið, vangefið fólk.
Það heimili er einnig rekið af Styrktarfélagi van-
gefinna í Reykjavík og var stofnað 1971. Á báðum
þessum dagvistunarheimilum er dvalarkostnaður
greiddur af opinberum aðilum og foreldrum því
að kostnaðarlausu.
Á sumri komanda er í ráði að starfrækja sumar-
dvalarheimili fyrir vangefin börn, að Sogni í ölfusi.
Styrktarfélag vangefinna hefur tekið hús á leigu,
sem er eign Náttúrulækningafélags fslands, en þar
munu börn úr Lyngási dveljast um 2ja mánaða
skeið.
Höfðaskóli
Haustið 1961 tók til starfa sérskóli fyrir börn, sem
hafa svo skerta námshæfni að þeim nýtist illa eða
alls ekki kennsla í almennum skólum. Höfðaskóiinn
i Reykjavik er eini skólinn á landinu, sem einvörð-
ungu hefur með höndum kennslu vangefinna bama
Frá þvi að skólinn hóf starfsemi sína hafa hátt á
þriðja hundrað börn innritast í skólann. Stærsti
hópur nemendanna kemur úr Reykjavík og ná-
grannabyggðum, en einnig hafa setið í skólanum
nemondur, sem eiga heimili sín úti á landi, heima-
vist er þó engin við skólann.
Nemendur eru teknir inn i skólann að undangeng-
inni rannsókn á sálfræðideild skóla, en foreldrar
hafa frjálst. val um það hvort þeir fara að tilmælum
deildarinnar um að vista börn sín i skólanum eða
ekki. Nemendur eru á aldrinum 7-19 ára en í ráði
er að koma upp forskóladeild fyrir 6 ára börn.
Síðastliðinn vetur voru, um 100 nemendur i skól-
anum í 11 bekkjardeildum. Starfið í skólanum er
með svipuðu sniði og tiðkast i venjulegum barna-
skólum að öðru leyti en því, að farið er miklu hægar
vfir námsefnið og kennslan er meira sniðin við hæfi
hvers og eins i bekknum, enda eru nemendur aldrei
fleiii en tíu i hverri bekkjardeild.
Flestir nemenda ná allgóðri lestrar og skriftar-
kunnáttu. hagnýtri leikni í einskonar tölum, enn-
fremur fá þeir talsverða kennslu í ýmsum lesgrein-
um svo og félagslega þjálfun af ýmsu tagi. Flestir
kennaranna, sem starfa við skólann eru sérmenntað-
ir í kennslu vangefinna barna, en slikt sémám tekur
2-3 ár að loknu almennu kennaranámi. Eins og í
mörgum öðrum starfsgreinum er mikill skortur á
sérmenntuðu fólki til kennslu og þjálfunar van-
gefinna barna, talkennarar eru mjög fáir og er það
til baga þegar haft er í huga að stór hópur vangef-
19. .JÚNÍ
25