19. júní


19. júní - 19.06.1974, Side 32

19. júní - 19.06.1974, Side 32
Konan í íslenskri myndlist Rætt við Björn Th. Björnsson um hlutverk konunnar í íslenskri listasögu Hvenær er fyrst minnst á listsköpun kvenna? íslensk listosaga byrjar nieð konum. Þetta rná til sanns vegar færa, því áð í Eddukvœðum, seni eru elstu rit okkar, er sagt frá konum, sem „byrða“ myndir á borða. í Oddrúnargráti er talað um Bryn- hildi, sern vefur eða saumar afrek Sigurðar Fáfnisbana. Eins og í Guðrúnarkviðu hinni fornu. Þar er lögð í munn Guðrúnar Gjúka- dóttur frásögn af því, er hún dvaldist í Danmörku hjá Þóru Hákon- ardóttur og þœr saumuðu langa refla með rómantískum myndum, — „sali suðræna og svani danska“, en aðallega þó orustumyndir og bardaga. En eftir að íslensk listasaga er kominn fram í Ijós skrifáðra heimilda, má segja, að ein lista- og hagleikskonan taki við af ann- arri. Við eigum nokkuð af gömlum refilsaumuðum altarisklæðum, og eru þau öll ættuð frá Norðurlandi. Þess vegna verður mönnum all starsýnt á heimild í sögu Jóns Ögmundssonar biskups, sem er skrifuð rétt eftir dauða lians, árið 1121, og er því mjög góð heimild. Þegar sagan segir frá skóla Jón ögmundssonar biskups, kemur fram lýsing á stúlku, sem hét Ingunn: „Þar var og í frœðinámi hrein- ferðug júngfrú, er Ingunn hét. Öngum var hún lægri í sögðum bóklistum, kenndi hún mörgum grammaticam og frœddi hvern, sem nema vildi. JJrðu því margir vel menntir undir hennar hendi. Hún rétti mjög latínubœkur, svo áð hún lét lesa fyrir sér, en hún sjálf saumaði, tefldi (þ. e. óf spjaldvefnað) eða vann aðrar hcinn- yrðir með heilagra manna sögum, kynnandi mönnum guðs dýrð eigi aðeins með orðum munnsins, heldur og méð verkum hand- anna.“ Sérstaklega er það merkilegt að til skuli vera latínulœrð kona hér á þessum tíma. Konur voru jafnréttháar karlmönnum 30 19. JÚNÍ

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.