19. júní - 19.06.1974, Síða 39
„Hverjir?“, spurði Britt.
„Stúlkurnar, auðvitað", sagði ungfrú Hólm, og
horfði undrandi á Britt.
Britt settist og fór að reykja. Hún var píreygð,
þegar hún sagði: „En hvað með karlmennina?“
„Ekki karlmennimir“, sagði ungfrú Hólm. Henni
leið hálfilla. Svo áttaði hún sig og beitti hvassari rödd
en hún hafði ætlað. Hún vildi losna við þras. Það
var alltaf til baga að lenda í þrasi. „Ekki karlmenn-
irnir“, sagði hún. „Við verðum að bera fram kaffi
eða te, ef þeir óska þess. Og ef við förum út i hádegis-
hléinu verðum við að ná í brauð og þess háttar.
Og svo ýmislegt.“
„ . . . eins og hvað?“, sagði Britt.
„Ja, þú veist hvernig karlmenn em. Ef þá vantar
eitthvað handa konum sínum, nærföt, snyrtivörur
og fleira slíkt.“
„Nú þannig“, sagði Britt. „Þeir mega kaupa sínar
vörum sjálfir. Ég er ráðin til erlendra bréfaskrifta.
Ekki til að hita kaffi, ganga um beina, svara í síma
eða fara í sendiferðir. Skilurðu það?“
Hinar horfðn hver á aðra. Jæja, svona var hún.
Var það nú félagshyggja.
„Já en við verðum . . .“, sagði ungfrú Hólm,
vandræðalega.
„Gerði fyrirrennari minn allt þetta?“, spurði
Britt, eftir stundarkom.
„Nei en hann var . . .“
Þær horfðu hvor á aðra.
Britt sótti handa sér kaffi, drakk það, fór aftur
inn í kaffistofuna og þvoði bollann. Hún horfði á
stúlkuna, sem bar þungan bakka fullan af bollum
og öskubökkum.
„Þú ert ræfill“, sagði hún. Það sama sagði hún
við þær hinar. Engin svaraði.
En Alma Lund varð undarleg innvortis og það var
ekki í fyrsta skipti.
Og svo veiktist ræstingakonan, og þá horfði til
vandræða. öskubakkarnir fylltust og rykið var alls
staðar. Yfirmennimir urðu ergilegir.
„Einhver stúlknanna“, sagði skrifstofustjórinn.
„Eða einhver karlmaðurinn“, sagði Britt.
Skrifstofustjórinn varð hvumsa. Það var furðu-
leg sjón og stúlkumar urðu undirleitar. Þetta var
ansi slæmt.
„En það er þó kvenmannsverk", hrópaði hann.
„Afsakið11, sagði Britt. „Ég veit ekki hvort ég tók
rétt eftir. Ég ber mikla virðingu fyrir karlmönnum,
þeir gera margt vel. Ætti karlmaður ekki að vera
fær um að rykhreinsa teppi og hella úr öskubakka?
Þér valdið mér vonbrigðum, skrifstofustjóri.“
Stúlkurnar réttu úr sér og hlustuðu rjóðar í kinn-
um. Skrifstofustjórinn hafði of háan blóðþrýsting
og varð orðlaus. Þá ]x)ldi ungfrú Hólm ekki lengur
við. „Ég skal gera það“, sagði hún vingjarnlega.
„Þakka yður fyrir ungfrú Hólm. Ég vissi að yður
gat ég treyst.“ Og hann var lítillátur og beygði sig
yfir borðið.
Ungfrú Hólm leit út eins og píslarvottur. Hinar
horfðu á hana tvílráðar. „Þú ert ræfill“, sagði Alma
Lund allt í einu. Hún var með roðabletti í vöngum
og sveitt í lófum, en hún hirti ekki um það. „Britt
hefur rétt fyrir sér. Hvers vegna ættum við árum
saman að snúast um þessa, þessa . . . ?“ Og hún
hugsaði um hve oft forstjórinn hefði nær hrint á
hana hurðinni. En hann hljóp tindilfættur og opnaði
lyftudyrnar fyrir kvenveru i pelskápu með skart-
gripi. Hún bugsaði, nei. hún vissi ekki hvað hún
hugsaði. Hún fór inn til skrifstofustjórans, ákveðin
i spori og staðnæmdist fyrir framan skrifborð hans,
„Ég ætlaði bara að segja það, að framvegis geng
ég ekki um beina fyrir neinn, þvæ ekki upp og fer
ekki i sendiferðir.“
Skrifstofustjórinn horfði á hana steinhissa.
Skjálfandi á beinunum fór hún út.
Skrifstofustjórinn horfði dolfallinn á eftir henni.
Var það Alma Lund, sem hafði talað svona. Það
var það, sem var svo skrýtið.
V. B. þýddi
Islt-nskur kvengiiSfræft'infiiir vígður til prests
Þann 29. september s. 1. gerðist sá mikilvægi atburður, að
Auður Eir Vilhjálmsdóttir guðfræðingur var vígð til prests
af biskupi Islands Sigurbirni Einarssyni.
Sr. Auður Eir lauk guðfræðiprófi i janúar 1962 og sótti
fyrst um prestsstarf fyrir þremur árum í Kópavogi en er
nú vígð til Suðureyrar í Súgandafirði. Sr. Auður hefur starfað
mikið að trúmálum og félagsmólum á undanförnum árum.
19. júrti óskar sr. Auði allrar blessunar í starfi hennar,
fyrstu íslensku konurini, sem tekur prestvigslu.
Vonandi gefst tækifæri til að birta viðtal við sr. Auði í
næsta riti.
Fyrsta íslenska konan verður dýralæknir
Islensk kona Eufemia Hannali Gísladóttir lauk ágætu prófi
frá danska dýralæknaháskólanum „Den Kongelige Landbrugs-
hojskole í Kaupmannahöfn hinn 21. júni 1973. Eufemia er
fyrsta islenska konan, sem lýkur prófi, sem dýralæknir. Hún
er gift og á eina dóttur 3ja ára að aldri. Eufemia starfai á
rannsóknastofu danska dýralæknaháskólans.
19. júní óskar Eufemíu dýralækni alls góðs í starfi hennar.
37
19. JÚNÍ