19. júní - 01.10.1995, Blaðsíða 29
Sigrún Magnúsdóttir, Drífa Hjartardóttir,
Ingíbjörg Sólrún Gísladóttir, frú Vigdís
Finnbogadóttir og Anna Georgsdóttir viö
opnun sýningarinnar.
THOtVÁLD
Thorvaldsensfélagið hélt upp á 120 ára afmæli sitt með því
að opna sögusýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 6. októ-
ber. Thorvaldsensfélagið er elsta starfandi kvenfélag í
Reykjavík. Það var upphaflega stofnað af 24 stúlkum sem
fengu það verkefni að slétta Austurvöll og koma upp blóma-
beði í kringum styttu af Bertil Thorvaldsen, sem Kaup-
mannahafnarborg hafði gefið Islendingum vegna 1000 ára
afmælis íslandsbyggðar. Stúlkunum fannst svo gaman að
vinna saman að þær ákváðu að stofna félag til að vinna að
líknarmálum. Mikil fátækt var þá víða í Reykjavík og með-
al l’yrstu verkefna félagskvenna var að sauma föt og gefa fá-
tækum mat. Síðar settu þær á stofn skóla fyrir stúlkur á aldr-
inunr 7 til 14 ára og var kennsla bæði bókleg og verkleg.
Stúlkurnar héidu einnig fyrirlestra um ýmis menningarmál
kvenna. Þau 120 ár sem félagið hefur starfað hefur það
komið ýmsum mikilvægum velferðarmálum til leiðar. Eitt
stærsta verkefnið var bygging vöggustofu við Dyngjuveg
18 sem var afhent Reykjavíkurborg til rekstrar þann 19.
júní 1963. Síðar var byggt við vöggustofuna og er nú einnig
rekið þar skóladagheimili.
Meðal hátíðargesta var forseti Islands, frú Vigdís Finnboga-
dóttir. Avörp fluttu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri, Þóra Karítas Arnadóttir, formaður Thorvaldsensfé-
lagsins, Drífa Hjartardóttir, formaður Kvenfélagasambands
Islands, Þórey Guðmundsdóttir, formaður Bandalags
kvenna í Reykjavík, Anna Georgsdóttir, formaður sýningar-
nefndar og Arni Þórsson, yfirlæknir barnadeildar Landa-
kots. Deildin ílutti starfsemi sína á Borgarspítalann þann 1.
september s.l. og Árni þakkaði félaginu rausnarlega gjöf
sem það gaf við það tækifæri, eða 5 milljónir króna sem
varið var til kaupa á sjúkrarúmum og gjörgæslutölvu fyrir
sjúklinga. Gunnar Kvaran og Gísli Magnússon fluttu tón-
listaratriði við opnunina.
KORT KRFI
Kortin sem
Kvenréttindafé-
lagið og Jafn-
réttisráð gáfu út
hafa selst vel og
eru félagsmenn
hvattir til að
muna eftir þeim
þegarsenda
þarf tæki
færiskort.
Kortin eru seld
hjá Máli og
menningu,
Blómavali,
Blómálfinum,
Smíðum og
skarti og í blómabúðinni Undir stiganum.