Sameiningin - 01.08.1899, Blaðsíða 10
74
yröi ekki fyr en kl. 7 um kvöldið sökum jarðarfarar, er fram
átti að fara í kirkjunni eftir hádegið, og til að gefa hinum
ýmsu nefndum tíma til að starfa.
Fimti fundur, sama dag kl. 7 e. h.
Sungið 3. vers af sálminum 55. Allir á fundi nema Jakob
Benediktsson.
Skðlamálið
var þá tekið fyrir. Sigtryggur Jónasson lagði fram eftirfylgj-
andi skýrslu og tillögu frá skólanefndinni:
Yér undirskrifaðir, sem kosnir vorum á síðasta kirkjuþingi sem
stjórnarnefnd (Board of Directorsj hins fyrirhugaða lærða sköla (Acade-
my’s) kirkjufélagsins, leyfum oss að leggja fram eftirfylgjandi skýrslu
um starf vort síðan á seinasta kirkjuþingi.
Síðan vér vorum kosnir, sem stjörnarnefnd, höfum vér haft nokkra
fundi til þess að ráðstafa ýmsum málefnum skö'.asjöðsins. Á fyrsta
fundinum, er vér héldum í Winnipeg, hinn 30. júní 18P8, í samræmi við
samþykt, er gjörð var á síðasta kirkjuþingi, sömdum vér við Mr. Thos'
H. Johnson, lögfræðisnemanda, að annast um hökfærslu skölasjöðsins
gegn $25.00 þöknun á ári.
Út af samþyktinni, sem gjörð var á síðasta kirkjuþingi, í þá átt að
fela oss að ákveða hinum fyrirhugaða sköla (Academy) kirkjufélagsins
heimili í Winnipeg fyrir lok síðastliðins árs (1898), ef ákveðinn styrkur
fengist til hans í Winnipeg-bæ eða annarsstaðar í Canada, þá leyfum vér
oss að skýra frá, að þótt vér fengjum loforð fyrir all-miklum styrk í
Winnipeg tíl skólans vantaði samt mikið á, að þau loforð nægðu til að
fullnægja skilyrðum þeim er sett voru fyrir því, aðvér ákvæðum honum
heimili í Winnipeg, svo vér gjörðum engar ráðstafanir í þá átt. Vér
leyfum oss einnig að skýra frá, að vér höfum engin tilboð fengið um
styrk handa skólanum frá öðrum hæjum, hvorki í Norður.Dakota né
Manitoba, ef skóianum væri ákveðið heimili þar, síðan áseinastakirkju-
þingi, svo vér höfum ekki ákveðið honum heimili neinstaðar, né gjört
ráðstafanir til að löggilda stofnunina, hvorki i Dakota, né Manitoha.
Með því að hinum fyrirhngaða sköla kirkjufélagsins hefir þannig
ekki verið ákveðið heimili, og með því það var viðurkent í samþykt síð-
asta kirkjuþings, að Winnipeg-bær væri að ýmsu leyti betur settur en
aðrir hæir í Manitoba og nærliggjandi ríkjum sem heimili skólans, og
með því vissa er fengin fyrir því, að Winnipeg-búar, aðrir en einstakir
íslendingar, eru reiðubúnir að leggja fram all-mikið fé í byggingai sjóð
skölans, og með því, ennfremur, að vér álítum sérlega nauðsynlegt fyrir
þetta mál, að skólanum verði ákveðið heimili á þessu ári, skólastofnun-
in löggilt á næsta vetri og kensla byrjuð eins fljótt og unt er,—leyfum
vér oss að koma fram með eftirfylgjandi tillögu. sem vér ráðum kirkju-
þinginu til að samþykkja:
Kirkjuþingið gefur skölanefnd þeirri (Board of Directors), sem kosin