Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.08.1899, Side 20

Sameiningin - 01.08.1899, Side 20
84 Séra Jónas A. Sigurösson flutti þinginu kveöju og bless- unarósk frá séra Jóni Bjarnasyni, forseta kirkjufélagsins, úr bréfi, sem hann haföi nýskeð meðtekið frá honum, skrifuðu í Edinborg á Skotlandi 8. júní. Eftir io mínútna fundarhlé var aftur tekið til fundar- starfa. Séra Jónas A. Sigurðsson lagði fram svohljóðandi nefnd- arálit: Nefndin í General Council-málinu leggur liér með fram álit sitt á þessa leið: I fimm ár hefir mál þetta verið árlega til meðferðar á þingum kirkju- félagsins, og sömuleiðis að einhverju leyti í flestum söfnuðum þess. Á þingum hafa menn talið það eitt hið langstærsta og þýðingarmesta mál, sem komið hafi inn á kirkjuþing, talið heiður þings ogheill kirkjufólags- ins hygða á framkvæmdum í því máli. Öll þessi ár hafa nefndir verið kjörnar, nema á síðasta þingi, sem starfa áttu að framkvæmd málsins. Málið hefir verið all-ýtarlega rætt,og um það skrifað meira enmörgönn- ur þingmál; formenn og leiðtogar þinganna og kirkjufélagsins hafa jafn- an verið og eru enn meö inngöngu kirkjufélagsins í General Council, og meirihluti þingmanna sömuleiðis. Sjálft General Council hefir sýnt oss margfalda velvild, trívegis sent fulltrúa sína til þinga vorra, svarað öllum spurningum og greitt fyrir öllu snertandi inngönguna mjög fús- lega. Margir söfnuðir kirkjufélagsins hafa einnig í liðinni tíð samþykt meðmæli með inngöngunni. En þrátt fyrir öll siík meðmæli frá prestum kirkjufélagsins og sam- þyktir kirkjuþinganna, á sér enn stað svo raunalegur misskilningur eða vanskilningur á málinu hjá einstökum söfnuðum, sem birtir sorglegt vantraust á tillögum þeirra manna, er hafa um mál þetta fjallað í nafni og umboði kirkjufélagsins, að vér sjáum oss ekki fært að ráða til, að innganga kirkjufélagsins í General Council sé samþykt á þessuþingi, en vér ráðum til, að grundvallarlög og aukalög Gen. Councils verði þýdd og prentuð í ,,Sam,“ og málið enn skýrt fyrir fölki safnaðanna á árinu. Ennfremur ráðum vér til, að sendur verði fulltrúi i,Eraternal Dele- gate) frá kirkjufélaginu til að mæta á þingi General Council-manna, sem kemur saman í Chicago í haust. Skal hann kosinn á þessu þingi, og síð- an hafa forgöngu þsss máls með höndum til næsta kirkjuþings. Eftir nokkrar umræður var nefndarálitið borið upp til atkvæða og samþykt. þá var séra N. Stgr. þorláksson kosinn í einu hljóði er- indsreki kirkjufélagsins á þing General Conncils í Chicago í haust. Til vara var kosinn séra Björn B. Jónsson. Sáhnabókarmálið yar þá tekið fyrir. Séra J. A. Sigurðsson skýrði frá, að Sig-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.