Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1899, Page 24

Sameiningin - 01.08.1899, Page 24
88 til, a5 næsta þing verði haldiö í Selkirk, og var tillaga nefndar- innar samþykt. Fundi slitið. Tólfti fundur, sama dag kl. 2 e. h. Sungiö var versið nr. 400. Fjarverandi voru: J. Benediktsson og J. þórðarson. J)á byrjuðu hinar ákveðnu umræður um trúaratriðið: ,, GnSlegur innblástur heilagrar ritningar11. Fyrst flutti séra Björn B. Jónsson fyrirlestur um þetta efni, til innleiðslu málsins. Auk hans tóku þessir þátt í umræðun- um: séra R. Marteinsson, séra J. J. Clemens, séra N. Stgr. J)orláksson, Jón Björnsson, J. Kristjánsson, Jóh. Pétursson, G. B. Björnsson, séra J. A. Sigurðsson, J)orst. Jóhannesson, Jóh. Sigurðsson, Pálmi Hjálmarsson og Sv. Sölvason. Eftir að umræðurnar höfðu staðið all-lengi var stungið upp á, stutt og samþykt, að slíta þeim. Séra Björn B. Jónsson bar fram svo hljóðandi frumvarp til þingsyfirlýsingar: ,,Vér, kirkjuþingsmenn, viljum innilega þakka forseta vorum, sóra Níels Steingrími Þorlákssyni, fyrir ágæta stjörn lians á þinginu og með- ferð hans á málefnum þingsins. Vér þökkum söfnuðunum á þessum stöðvum fyrir bróðurlegar við- tökur og höfðinglegan viðurgjörning meðan vér höfum dvalið hér. Vér óskum söfnuðunum til lukku og blessunar með hinar nývígðu kirkjur, og biðjum guð að láta þær lengi standa, til blessunar fólki því, er á þessum stöðvum býr. Vér endum þing þetta með því, að biðja til guðs fyrir hinum kæru bræðrum vorum, séra Jöni Bjarnasyni, forseta kirkjufólagsins, og séra Friðrik J. Bergmann, sem oss eru nú fjarlægir og vér svo mjög höfum saknað á þingi þessu. Vér biðjum guð að leiða þá heila á höfi aftur til vor, svo þeir geti haldið áfram hinu þýðingarmikla starfl sinu hér hjá oss.“ J)ingið samþykti yfirlýsinguna í einu hljóði. Gjörðabók þingsins var þá lesin og samþykt. Sunginn var sálmurinn nr. 566. Séra Jónas A. Sigurðsson flutti bæn, og síðan sagði forseti þinginu slitið. Björn B. Jónsson, skrifari.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.