Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.08.1899, Side 25

Sameiningin - 01.08.1899, Side 25
89 Bandalagsþing, haldið í kirkju Hallson-safnaðar í Norður-Dakota. mánudaginn 26. júní, 1899. Fundur var settur kl. 2 e. h. af séra Jóni J. Clemens. Sunginn var sálmurinn nr. 17. Séra B. B. Jónsson, séra R. Marteinsson og séra J. A. Sigurösson voru settir í kjörbréfa- nefnd, og samkvæmt skýrslu hennar, er var samþykt, áttu sæti á fundinum eftirfylgjandi fulltrúar: Jón Sigfússon og Jakob J. Erlendsson, frá bandalagi Vídalíns-safnaðar; S. Th. Westdal, frá bandal. St. Páls-safn.; J. Hannesson og G. V. Leifur, frá bandal. Pembina-safn.; Miss G. Thomson, Miss S. Jónsdóttir og J. K. Johnson, frá bandal. Fyrsta lút. safn. í Winnipeg; Sigurgeir Björnsson, frá bandal. J)ingvalla-safn.; séra J.J.Clemens frá bandal. Frelsis- og Fríkirkju-safn. Ennfremur áttu sæti á fundinum: séra N. Stgr. þorláksson, séra J. A. Sigurösson, séra R. Marteins- son, séra B. B. Jónsson, séra O. V. Gíslason og B. J. Brands- son (ex officio). Öörum kirkjuþingsmönnum var veitt mál- frelsi á þinginu. Séra Jón J. Clemens var kosinn forseti fundarins, og S. Th. Westdal skrifari. þá var tekið til umræðu, hvort stofnað skyldi allsberjar- bandalag það, sem gjört var ráð fyrir á fundinum í fyrra, og var fyrst lesin upp samþykt þessu viðvíkjandi frá þeim fundi. Kirkjuþings-erindsrekinn einn frá Garðar-söfn. skýrði frá, að bandalag þess safnaðar hefði ekki sent neinn fulltrúa og gæti því ekki verið með í þessu allsherjar-bandalagi að svo stöddu, þó það yrði stofnað. En hann bar fundinum hlýja bróðurkveðju og einlæga heillaósk frá bandalagi sínu og sagð- ist vonast til, að síðar mundi það bandalag einnig verða með í félagsskapnum. Fulltrúarnir frá öllum hinum bandalögum kirkjufélagsins lýstu yfir því, að sín félög hefðu samþykt grundvallarlög þau, er borin voru fram á fundinum í fyrra, og hefðu samþykt inn- göngu í þetta allsherjar-bandalag, ef það yrði stofnað. Jón Sigfússon stakk upp á, og séra J. J. Clemens studdi,

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.