Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.08.1899, Side 30

Sameiningin - 01.08.1899, Side 30
94 þessu, aö taka samskot til aö borga þann kosnað, sem þingin hefðu í för með sér, en engin föst gjöld höfð. Samskot voru þá tekin, er námu $3.93. Að starfsmálum fundarins loknum söng séra Jón Clemens ,,solo“ og séra R. Marteinsson flutti ræðu um „starfsþrá unga fólksins“. Að endingu var sunginn sálmurinn nr. 420 og ,,Faðir vor“ lesið af öllum í sameiningu. Svo var þingi slitið. S. Th. Westdal, skrifari. —■——'—vvrtTVaiev'SWv---* Kirkjuvígslur tvær fóru fram meðan kirkjuþing þetta hið síðasta stóð yfir. Sunnudagurinn (25. júní 1899) reis upp úr ,,myrkranna geigvænum geim“ hátíðlegur og dýrðlegur, og hélt hann fegurð sinni til enda. Um kl. 11 f. h. hófst vígsla kirkju Hallson-safnaðar, samkvæmt hinu venjulega formi við slíkar athafnir í kirkjufélagi voru. Mikill fjöldi fólks hafði safnast saman, og gátu sumir ekki inn komist. Allir prestar kirkjufélagsins, sem nærverandi voru, tóku þátt í vfgslunni. Séra Björn B. Jónsson flutti vígsluræðuna. Séra N. Stein- grímur þorláksson, vara-forseti kirkjufélagsins, framkvæmdi aðal vígsluathöfnina. Altarisganga fór fram fyrir kirkjuþings- menn og fólk þar í söfnuðinum, og útdeildi séra Jónas A. Sig- urðsson sakramentinu. Kl. 4 e. h. sama dag vígði séra N. Steingrímur þorláks- son, með aðstoð hinna sömu presta, kirkju Péturs-safnaðar, sem er 3 mílur fyrir norðan Hallson. Séra Rúnólfur Mar- teinsson prédikaði við það tækifæri. Altarisganga fór þar einnig fram. Fjöldi fólks var saman kominn hér, eins og á Hallson. Kirkjur þessar báðar eru myndarlegar og söfnuðum sínum til sóma, og var þessi sunnudagur mikill og dýrðlegur hátíðis- dagur fyrir þá. Vonandi er, að söfnuðirnir verði ætíð eins sann- arlega helgaðir guði eins og guðsþjónustuhúsin þeirra voru vígð þennan dag. í næsta blaði flytur ,,Sam. “ yfirgripsmeiri ritgjörð um kirkjur þessar og söfnuði.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.